Bændablaðið - 05.10.2017, Qupperneq 2

Bændablaðið - 05.10.2017, Qupperneq 2
2 Bændablaðið | Fimmtudagur 5. október 2017 Sauðfjárbændur telja tillögur ráðherra ekki til þess fallnar að leysa þeirra vanda: Ríkur vilji til að halda áfram búskap en mikil óánægja með afurðastöðvarnar Nýleg könnun sem Landssamtök sauðfjárbænda gerði meðal félags- manna sinna um afstöðu þeirra til ýmissa hagsmunamála þykir um margt athyglisverð. Þar kom m.a. fram megn óánægja bænda með hugmyndir fráfarandi landbún- aðarráðherra um lausn á þeirra vanda. Alls töldu 83% aðspurðra að tillögur ráðherra væru ekki til þess fallnar að leysa þann bráðavanda sem steðjaði að sauðfjárræktinni. Mikil óvissa ríkir þó greinilega einnig meðal bænda um hvernig skuli bregðast við vandanum. Ríkur vilji bænda til að halda áfram búskap Spurt var hvort sauðfjárbændur teldu líklegt að þeir myndu nýta sér þann möguleika í framkomnum tillögum ráðherra að hætta sauðfjár- rækt haustið 2017 og halda 90% af greiðslum samkvæmt sauðfjársamn- ingi í 5 ár ef það byðist. Svarið var mjög afgerandi og ótvírætt. Kom þar fram greinilegur og ríkur vilji sauð- fjárbænda til að halda áfram búskap þótt á móti blási. Þannig sögðust 80,7% bænda ekki, eða líklega ekki, vilja nýta sér slíkan möguleika ef hann stæði til boða. Jafnframt kom þar fram að 8,2% bænda svöruðu þessari spurningu játandi og um 5% töldu það mjög líklegt. Talið er að í þeim hópi sé talsvert af yngstu bændunum sem eru oft einnig mjög skuldsettir. Afstaða bændanna breyttist lítið þótt spurningin væri orðuð aðeins öðruvísi og miðað við að þeir hættu 2018 og væri boðið 70% af greiðsl- um til þriggja ára samkvæmt sauð- fjársamningi. Að vísu voru enn færri tilbúnir að stökkva á þann vagn. Mikil óánægja með afurðastöðvarnar Þegar spurt var um afstöðu bænda til afurðastöðvanna er yfirgnæfandi meirihluti þeirra óánægður með hvernig afurðastöðvarnar standa að slátrun, úrvinnslu, sölu og markaðssetningu kindakjöts. Nær 86% aðspurðra sögðust vera mjög eða frekar óánægðir með framgang afurðarstöðvanna. Virðist þar einkum endurspeglast megn óánægja bænda með mjög mikla lækkun á afurðaverði til bænda. Vekur þetta ekki síst athygli þar sem bændur eiga bæði hluti í flestum afurðastöðvunum og einnig aðild að stjórnum þeirra. Virðist sem þessi afstaða bænda sé jafnvel ekki að skila sér inn í þeirra eigin fyrirtæki. Mikil umræða hefur verið um markaðssetningu kindakjöts að undanförnu og m.a. hart deilt á afurðastöðvarnar og verslanafyrirtækin um að sinna ekki kröfum neytenda, m.a. um annan skurð á kjöti og pökkun afurða. Hefur þar t.d. flogið hátt í fjölmiðlum gagnrýni á að ekki hafi verið hægt að fá íslenskt kindahakk í verslunum fyrr en erlenda verslunin Costco fór að bjóða slíkt í sinni verslun. Bændur jafn mikið með og á móti frekari sameiningu afurðastöðva Í könnun LS var einnig spurt um hvort sauðfjárbændur teldu skyn- samlegt að sameina afurðastöðvar ef lagaleg forsenda væri fyrir hendi. Þar voru bændur nokkurn veginn jafn mikið með frekari sameiningu og á móti. Þess má geta að á liðnum árum og áratugum hefur orðið mikil samþjöppun í þessum geira með mikilli fækkun sláturhúsa. Hefur því líka komið fram töluverð gagnrýni á að heilu landsfjórðungarnir séu nú án sláturhúsa og fyrir suma bændur því mjög langt að fara með fé til slátrunar. /HKr. FRÉTTIR Spurt var: Telur þú líklegt að tillögur ráðherra séu til þess fallnar að leysa þann bráðavanda sem steðjar að sauðfjárræktinni? Spurt var: Telur þú líklegt að þú munir nýta þér þann möguleika að hætta sauðfjárrækt haustið 2017 og halda 90% af greiðslum samkvæmt sauðfjársamningi í 5 ár ef það býðst? Spurt var: Ert þú ánægð/ur með hvernig afurðarstöðvar standa að slátrun, úrvinnslu, sölu og markaðssetningu kindakjöts? Spurt var: Að því gefnu að lög heimili eða lagaheimild fáist, telur þú skynsamlegt að sameina afurðastöðvar? Íslenskir sauðfjárbændur vilja efla sölu lambakjöts til ferðamanna: Mikil ánægja með markaðsátak Icelandic lamb og Markaðsráðs kindakjöts Unnið hefur verið að sérstöku átaki á vegum Icelandic lamb ehf. sem er í eigu LS og Markaðsráðs kinda- kjöts um að auka sölu á lambakjöti á innan lands- mark aði. Virðast sauðfjár bændur almennt vera mjög ánægðir með það framtak ef marka má könnun Lands samtaka sauðfjárbænda. Icelandic lamb hefur tekist að fá um 100 veitingastaði um allt land til liðs við sig á undanförnum mánuðum til að auka kynningu og sýnileika íslensks lambakjöts fyrir gesti veitingastaðanna. Er mælanleg verulega söluaukning á kindakjöti vegna þessa. Er það sem nemur um 25% að meðaltali á hvert veitingahús sem þátt hefur tekið í átakinu. Í könnun LS var spurt hvort bændur teldu skynsamlegt að halda áfram að leitast við að selja lambakjöt til erlendra ferðamanna á Íslandi. Var svarið við þeirri spurningu mjög afdráttarlaust. Þannig töldu um 97,6% það mjög eða frekar skynsamlegt. Einungis tæplega 1% töldu það mjög eða frekar óskynsamlegt. Í könnuninni var einnig spurt um hvort skynsamlegt væri að halda áfram útflutningi á kindakjöti. Þar kom fram að um 79% sauðfjárbænda telja slíkt mjög eða frekar skynsamlegt. Einungis 2,6% telja það mjög óskynsamlegt og 6,5% telja það frekar óskynsamlegt. Greinilegt er af niðurstöðum úr þessum tveim spurningum að sauðfjárbændur eru mjög ánægðir með framgöngu Icelandic lamb í markaðsmálum á sauðfjárafurðum. /HKr. Spurt var: Telur þú skynsamlegt að halda áfram að leitast við að selja lambakjöt til erlendra ferðamanna á Íslandi? Þær höfðu greinilega ekki miklar áhyggjur af stöðu mála þessar kindur sem Mynd / HKr.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.