Bændablaðið - 05.10.2017, Síða 31

Bændablaðið - 05.10.2017, Síða 31
31Bændablaðið | Fimmtudagur 5. október 2017 Getum einnig útvegað rafstöðvar frá 6 til 1000 KVA. Verktakar, Iðnaðarmenn, Húsbílaeigendur ljosboginn@ljosboginn.isljosboginn.is Startarar og alternatorar Fyrir flestar gerðir fólksbíla, jeppa, vörubíla og vinnuvélar. Höfum einnig varahluti í alternatora og startara ALLT FYRIR MATVÆLAIÐNAÐINN - Vacumpokar - Umbúðir - Kjötnet og garnir - Vélar og tæki - Krydd og hjálparefni - Hnífar og stál - Hlífðarfatnaður NOKK EHF. volundarhus.is · Sími 864-2400 GARÐHÚS 14,5 m² www.volundarhus.is TILBOÐ 10% afsláttur af öllum GARÐHÚSUM www.volundarhus.is GARÐHÚS 4,7m² GARÐHÚS 4,4m² GARÐHÚS 9,9 m² án gólfs GARÐHÚS 9,7m² 50% afsláttur af flutningi á GARÐHÚSUM og GESTAHÚSUM á allar þjónustu- stöðvar Flytjanda. GESTAHÚS og GARÐHÚS sérhönnuð fyrir íslenskar aðstæður Sjá fleiri GESTAHÚS og GARÐHÚS á tilboði á heimasíðunni volundarhus.is Nánari upplýsingar á heimasíðu okkar volundarhus.is og í síma 864-2400. Gnúpverjahreppi árið 1972, þegar almennur sveitarfundur mótmælti áformum um Norðlingaölduveitu harðlega og hefur staðið með hléum síðan. Það er til ítarleg fundargerð frá þeim fundi. Síðasta baráttulotan hófst síðan 2001 en nú hillir undir að friðlandið verði stækkað. Þetta er því orðin þriggja kynslóða barátta. Mér finnst að viðhorf manna til verndunar Þjórsárvera hafi breyst og æ fleiri átti sig á hvers konar dýrmæti þau eru.“ Ungt fólk í sveitinni sem vill búa þar Eins og gefur að skilja vegna baráttu Sigþrúðar og fleira fólks um verndun Þjórsárvera, þá kemur ekki til greina að virkja Þjórsá og skapa þannig störf, uppistöðulón og rafmagn? „Hvaða störf? Er verið að virkja til að búa til störf í sveitinni? Nei, það fer enginn í milljarða framkvæmd til þess. Virkjunin mun ekki skapa nema örfá framtíðarstörf. Það yrðu mjög dýr störf sem að auki kostuðu fórnir á náttúru og landslagi sem gleymist að virða. Framkvæmdatíminn yrði einhvers konar æði og það er ekki huggulegt að hugsa til alls þess bram- bolts og umferðar sem yrði þá. Það er ekki árennilegt að búa í nágrenni við svona stórframkvæmdir,“ segir Sigþrúður. „Við verðum líka að hugsa um hvaða störf yrðu ekki til ef virkjun verður reist. Ég vil treysta á frum- kvæði manna til að skapa sér vinnu og minni á að ungt fólk í sveitinni sem vill búa þar hefur komið fram með margar atvinnu- og uppbyggingarhug- myndir sem lofa góðu og eru í sátt við náttúru og menn. Þetta er umdeilt og hefur haft slæm áhrif á samfélagið. Uppistöðulón eru í sjálfu sér úrelt fyrirbæri og hafa oftast tortímt gróðri, jarðvegi og vistkerfum. Því verður að linna. Við höfum ekki efni á að eyða meira af þeirri dýru og óafturkræfu auðlind sem jarðvegur er. Hann er undirstaða lífs okkar og nær öll fæða manna kemur úr jarðvegi. Þjórsá er líka iðandi af lífi og ein mesta lax- veiðiá landsins. Því er stefnt í hættu. Það er fáviska að horfa einungis á ár renna sem megavött, en ekki lífæð og lifandi vistkerfi.“ Það er allra hagur að fara vel með landið Blaðamanni lék forvitni á að vita hjá Sigþrúði hvaða skoðun hún hefði á íslensku sauðkindinni og land- græðslu. „Þetta er samspil margra þátta. Í þessu gildir að fara með gát og ofgera ekki gróðurauðlindinni, því sé það gert hnignar henni og hún gefur minna af sér og það getur leitt til jarðvegseyðingar. Minni uppskera og stundum verri beitarplöntur hafa áhrif á þrif búfjárins. Það er allra hagur að fara vel með landið. Við stöndum hins vegar í þeim sporum að hafa tapað um helming af grónu landi frá landnámi svo við þurfum að byggja upp jarðveg, gróður og virk vistkerfi. Það er mikið verkefni en nauðsynlegt. Annars er hægt að lesa meira um beitarfræði í bæklingi eftir mig sem Landgræðslan gaf út 2010 og nefnist Sauðfjárhagar.“ Lúpína á ekki erindi í gróin lönd Þegar talið berst að lúpínunni hafði Sigþrúður þetta að segja. „Lúpínan er framandi ágeng tegund sem ber að fara varlega með en hún er mjög öflug niturbindandi jurt. Hún er að dreifast mjög hratt og er komin víða inn í gróin lönd þar sem hún á ekk- ert erindi. Það væri farsælt ef menn gætu lyft sér upp úr skotgröfunum vegna þessarar plöntu og horfst í augu við kosti hennar og galla án þess að missa sig.“ Dýrmætt að eiga góða vini Nú berst talið að áhugamálum Sigþrúðar og fjölskyldu hennar, þar ber margt á góma. „Já, okkur finnst gaman að fara í gönguferðir saman, stuttar og langar. Við förum flest sumur í gönguferð- ir um Þjórsárver og stundum víðar. Einnig hef ég verið önnur þeirra sem í 15 ár hef leitt gönguhópa að fossun- um miklu í Þjórsá á Gnúpverjaafrétti, beinlínis til að koma þeim á kortið, það er alltaf gaman. Ég hef óbilandi áhuga á landbótum og sameina því göngur og landbótastörf með ýmsum hætti heima í Geldingaholti. Hef gaman af að sjá góð leikrit og hef tekið þátt í leiklistarstarfi í sveitinni. Við Axel eigum mikið af bókum, margar eru fræðilegs eðlis um náttúr- una, landið, gróður, jarðfræði, heilsu og heilbrigðara líf, sögu, andleg mál- efni, samfélagsmál og manninn í til- verunni. Sjálf er ég heilluð af sauðfé og hef stúderað atferli þeirra lengi. Svo er dýrmætt að eiga góða vini og njóta samfunda með þeim.“ Áformin deyja smátt og smátt Að lokum er Sigþrúður spurð um Þjórsárver og framtíð þeirra, hvað muni gerast. Það stendur ekki á svar- inu. „Nú verður friðlandið stækkað og síðar verður það stækkað enn meira niður með Þjórsá. Smátt og smátt deyja áform um að setja upp lón á svæðinu og menn átta sig á að það verður ekki liðið. Þjórsárver eiga svo gríðarlega stóran og öflugan stuðn- ingshóp úti um allt.“ /Magnús Hlynur Hreiðarsson Sigþrúður og Axel þegar Sigþrúður tók á móti Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti á Degi íslenskrar náttúru 16. september sl. Viðurkenn- inguna fékk Sigþrúður fyrir áralanga baráttu sína fyrir verndun Þjórsárvera. Mynd / Úr einkasafni.

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.