Bændablaðið - 07.11.2019, Blaðsíða 1
21. tölublað 2019 ▯ Fimmtudagur 7. nóvember ▯ Blað nr. 550 ▯ 25. árg. ▯ Upplag 32.000 ▯ Vefur: bbl.is
Hafberg Þórisson garðyrkjubóndi er óhress með stefnu Orkuveitu Reykjavíkur í verðlagningu á heitu vatni:
Íhugar að loka gróðrarstöðinni Lambhaga í
Reykjavík vegna stórhækkana á heitu vatni
– Skoðar líka þann kost að reisa kyndistöð á svæðinu sem brennir plasti, timburkurli og kolum við háan hita
Hafberg Þórisson, aðaleigandi
gróðrarstöðvarinnar Lambhaga
í Úlfarsárdal í Reykjavík, segir
framtíðarstöðu fyrirtækisins í
höfuðborginni ekki glæsilega.
Ástæðan er gríðarleg hækkun á
verði hitaveituvatns frá Orkuveitu
Reykjavíkur sem fyrirhuguð er um
næstu áramót.
Hafberg er stór á íslenskan mæli-
kvarða í ræktun á salati og hefur
stöðugt verið að efla starfsemina
ofan við Vesturlandsveginn en fyr-
irtækið á fjörutíu ára afmæli á þessu
ári. Er hann nú með 15.000 fermetra
gróðurhús á svæðinu sem óvíst er
um rekstur á vegna ört hækkandi
orkuverðs. Þar eru að jafnaði um 25
starfsmenn.
Segir 97% hækkun fyrirhugaða
um áramótin á heitu vatni
„Það á að hækka verð á heita vatninu
til mín um 97% frá 1. janúar 2020.
Hérna verður verðið eftir hækkun
um 120 krónur fyrir rúmmetrann
á vatni, en það er 37 krónur uppi í
Mosfellsdal. Við erum að nota um og
yfir 100 þúsund tonn af heitu vatni
í Lambhaga. Við erum að borga um
6–800 þúsund krónur á mánuði fyrir
heitt vatn. Ef þessi hækkun verður
um áramótin, þá fer kostnaðurinn
í um 1,4 milljónir króna á mánuði,
eða nærri 16,8 milljónir á ári. Síðan
erum við að nota yfir 60 milljónir
kílówattstunda af raforku á ári.
Ef þessi hækkun á heitavatnsverði
gengur eftir er aðeins tvennt í stöð-
unni. Annaðhvort að starfsemin hér
leggist af og flytjist annað eða að sett
verði upp kyndistöð við Lambhaga
sem brenni þá plasti, timburkurli og
kolum við háan hita líkt og gert er
í Noregi og Danmörku. Mér finnst
sorglegt að borgin sé að reyna að ýta
okkur í burtu með þessum hætti.“
Kostnaður við að reisa kyndistöð
gæti að mati Hafbergs numið á bilinu
15 til 20 milljónir króna, þannig að
hún yrði mjög fljót að borga sig upp
miðað við hækkað orkuverð.
Hagkvæmt að setja upp kyndistöð
sem brennir kolum, kurli og plasti
Hafberg segir að trúlega þurfi leyfi
fyrir slíkum brennsluofni en honum
mun fylgja skorsteinn sem líklega
þarf að vera 15 til 25 metra hár. Hann
segir að það sé vissulega hálf an-
kannalegt að þurfa að reisa kyndistöð
sem brennir kolum og timburkurli í
landi sem stærir sig af hreinni raforku
og jarðhita. Þetta sé nú samt sú stað-
reynd sem blasi við honum vegna
gróðasjónarmiða þeirra sem stjórni
Orkuveitu Reykjavíkur. Hann seg-
ist hafa kannað með eldsneyti fyrir
stöðina og nóg sé t.d. til af kolum
og trjákurli í Helguvík sem búið var
að safna þar upp vegna fyrirhugaðs
reksturs kísilmálmverksmiðjunnar.
Bendir hann á að danskir bændur hafi
einmitt farið þessa leið og séu hættir
að nota gas til að kynda upp sínar
stöðvar.
Hafberg er þegar búinn að gera
kostnaðaráætlun og finna tvo líklega
framleiðendur að kyndistöð sem
hugsanlega yrði sett upp í Lambhaga.
Reiknar hann með að stöðin hiti loft
sem dælt yrði í gegnum stokk inn í
garðyrkjustöðina og að auki um 70
tonn af vatni til hitamiðlunar. Miðað
við fyrirhugaða hækkun á verði á heitu
vatni frá Orkuveitu Reykjavíkur, þá
myndi slík kyndistöð, að teknu tilliti
til rekstrarkostnaðar, trúlega borga sig
upp á einu og hálfu til þremur árum.
Gerir Hafberg ráð fyrir að sækja um
leyfi fyrir brennslustöðinni í vetur,
eða um leið og teikningar liggja fyrir.
Raforkuverðið mun hærra en í
Noregi, Danmörku og Hollandi
Hafberg segir að raforkuverðið hafi
vissulega hækkað mikið þegar
ákveðið var að skipta upp fram-
leiðslu og flutningi á raforku að
kröfu Evrópusambandsins. Þeir
hafi þó sætt sig við það verð þótt
það sé mun hærra en gróðrar-
stöðvar bæði í Noregi og Hollandi
þurfi að greiða fyrir raforkuna.
Þrátt fyrir hátt orkuverð seg-
ist Hafberg vera með ódýrara
salat heldur en t.d. kollegar hans
í Noregi. Sýndi Hafberg blaða-
manni gögn frá Noregi því til
stuðnings. Segir hann að á meðan
hann sé að borga um 10,40 krón-
ur fyrir kílówattstund af raforku
með flutningi séu kollegar hans
í Noregi að borga ígildi um 6,30
íslenskra króna (m.v. verð í ágúst)
fyrir kílówattstundina.
„Það kom til okkar í Lambhaga
á dögunum viðskiptanefnd frá
Hollandi þar sem m.a. var farið
yfir rafmagnsverðið. Þá kom í
ljós að gróðrarstöðvar í Hollandi
eru að greiða örlítið lægra verð en
sambærilegar stöðvar í Noregi. Í
Danmörku er verðið aðeins hærra
en í Noregi, eða sem svarar um 7
krónum á kílówattstund.
„Það er því algjört bull að raf-
orkuverðið sé lágt á Íslandi. Það
er athyglisvert að skoða hvar þetta
háa orkuverð til okkar verður til.
Það er að stórum hluta við flutning
orkunnar,“ segir Hafberg Þórisson.
Hlutfall íslensks grænmetis
á markaðnum er nú um 50%
Þegar skoðaðar eru tölur Hagstofu
Íslands um grænmetisneysluna á
Íslandi, þá var hún ríflega 22 þús-
und tonn á árinu 2018. Af því voru
íslenskir framleiðendur með um
52% eins og sjá má á bls. 2.
Hlutdeild íslenskra framleið-
enda hefur verið að dragast veru-
lega saman á undanförnum árum,
eða úr 75% árið 2010 í 52% árið
2018. Þá er garðyrkjubændum
stöðugt að fækka, m.a. vegna
hækkana á orkuverði. Þetta þýðir
að innflutningur á grænmeti sem
hér væri hægt að rækta, mun aukast
hröðum skrefum.
Skýtur þetta mjög skökku við
yfirlýsingar frá stjórnvöldum, fal-
leg orð ráðherra í garð íslensks
landbúnaðar og áætlanir við að
sporna við losun kolefnis út í and-
rúmsloftið. /HKr.
– Sjá einnig frétt á bls. 10 um
upp bygg ingu garðyrkjustöðvar
sem hafin er í Mosfellsdal.
Hafberg Þórisson, garðyrkjubóndi í Lambhaga í Reykjavík, er afar ósáttur við áform Orkuveitu Reykjavíkur um að hækka til hans verð á heitu vatni um 97% um áramótin. Á innfelldu myndinni
má sjá að Hafberg lætur ekki deigan síga þótt hann þurfi mögulega að loka starfsemi sinni í Reykjavík og er þegar kominn af stað með gríðarmikla uppbyggingu í Mosfellsdal. Mynd / HKr.
Ekkert vegan er til sem ekki
hefur áhrif á dýralíf
20–21
Of mörg sýni með
of mikla seigju
14
Fjölmörg tækifæri í boði
fyrir unga bændur
26