Bændablaðið - 07.11.2019, Blaðsíða 7
Bændablaðið | Fimmtudagur 7. nóvember 2019 7
LÍF&STARF
Mér barst á dögunum ljóðabók eftir Kristbjörgu Freydísi Steingrímsdóttur, Boggu
í Hrauni í Aðaldal. Hér er á ferðinni
mikil gersemisgerð. Kristbjörg var og
er mikilvirkur hagyrðingur, en hún er
líka skáld eins og ættmenni hennar
mörg. Föður hennar þarf ekki að kynna,
Steingrím Baldvinsson, skáldbónda í
Nesi í Aðaldal. Bogga var og er ugg-
laust afar virk á vísnavefnum „Leir“, og
góður liðsmaður í hagyrðingahópnum
Kveðanda sem lifir og starfar í Suður-
Þingeyjarsýslu. Óhætt er að mæla með
þessari ljóðabók Boggu við lesendur, og
eru næstu ferskeytlur þáttarins fengnar
úr ljóðabók Kristbjargar, „Döggslóð í
grasi“:
Ekki er glóðin ennþá dauð,
yfir sjóðnum vökum,
smáa þjóðin erfðaauð
á í góðum stökum.
Og ótal fleiri hringhendur á Bogga í pússi
sínu:
Áfram streymir stuðlamálið,
stefjahreimur tær,
ýmist geymist eða bálið
orðaseiminn fær.
Óði snjöllum orðin vanda,
er það köllun flestra,
jafnvel öll í stuðlum standa
sterkleg fjöllin vestra.
Og síðan enn meiri dýrleiki:
Enn er tíð við alla blíð
engum stríðir hríðin,
auð hinn fríða fjallahlíð
færis bíða skíðin.
Mikla myndauðgi er að finna í mörgum
vísum Boggu:
Kertaljóssins ljúfa skin
lýsir myrkrið svarta,
líkt og koss frá kærum vin
kveikir gleði í hjarta.
Þar sem logar ljós á kveik
loka ei með þjósti,
það er eins og vonin veik
viðkvæmt fyrir gjósti.
Í ljóðinu „Ritdómur“ sýnir Bogga skáldlega
hæfileika sína:
Hann sagði: Ég hefi séð þín kvæði,
sum eru góð.
Segðu mér, hvers vegna yrkir þú aldrei
óbundin ljóð?
Ég svaraði: Formið, af fávisku minni
fyrir mér vefst,
aldrei skil ég hvar endar prósinn
og óðurinn hefst.
Ef mið væri tekið af gnótt þeirra vísna
sem fæðast daglega með Ingólfi Ómari
Ármannssyni, þá hlýtur að styttast í útgáfu
á vísum hans. Blekið er tæpast þornað á
þessum tveimur vísum hans:
Ungum var mér áður kennt
yfir dyggð að vaka,
þó mig stundum hafi hent
hliðarspor að taka.
Örðug þó sé ævitíð
elju lífið gaf mér,
marga villu stapp og stríð
staðið hef ég af mér.
Til að fylla þáttinn þá verður gripið til
gamalla vísna úr Austur-Húnavatnssýslu.
Um höfund næstu vísu veit ég fátt, en auð-
sætt að ágætur hagyrðingur er sá Ingvar
Hannesson sem yrkir svo um Kristján
Arinbjarnarson, lækni á Blönduósi:
Blönduósshéraðs brennsluspritt
bakteríum varnar.
Klínir því á kaunið mitt
Kristján Arinbjarnar.
Umsjón:
Árni Geirhjörtur Jónsson
kotabyggð1@gmail.com
237MÆLT AF
MUNNI FRAM
Um 1.200 manns gerðu sér glaðan dag á
landbúnaðarsýningunni Hey bóndi sem
haldin var í Hvolnum á Hvolsvelli síðast-
liðinn laugardag. Viðburðurinn var haldinn
að frumkvæði Fóðurblöndunnar sem heldur
sýninguna á tveggja ára fresti, nú í þriðja
sinn.
Á sýningunni kynntu fjölmörg fyrirtæki
innan landbúnaðarins starfsemi sína auk þess
sem boðið var upp á fjölbreytta og fróðlega
fyrirlestra allan daginn. Fyrir utan Hvolinn
var glæsileg tækjasýning sem vakti mikla
athygli.
Fleiri myndir af sýningunni er að finna á
vefsíðu Bændablaðsins, www.bbl.is
Pétur Pétursson, starfsmaður Fóðurblöndunn-
ar, bar hitann og þungann af skipulagningu
Hey bóndi líkt og fyrri ár.
Hrönn Jónsdóttir, verslunarstjóri hjá Fóður-
blöndunni á Selfossi.
Kátir bændur mættu í Hvolinn á landbúnaðarsýninguna Hey bóndi. Myndir & texti / MHH & TB
Eyjólfur Pétur Pálmason hjá Vélfangi stóð
vaktina á útisvæði.
Guðni Ágústsson, fyrrverandi land-búnaðar-
ráðherra, skálaði fyrir sýningunni og gestum
hennar.
Guðrún S. Tryggvadóttir, formaður BÍ, og
Finnbogi Magnússon í Jötunn vélum stungu
saman nefjum.
Starfsmenn Fóðurblöndunnar mega vera stoltir af hátíðinni sinni „Hey bóndi“. Á myndinni eru,
frá vinstri, Erling Valur Friðriksson, Stefanía Gunnardóttir og Eyjólfur Sigurðsson.
Guðbjörg Jónsdóttir, verkefnastjóri hjá
Bændasamtökunum, fræddi gesti um starfsemi
samtakanna og spjallaði við bændur.
Frumkvöðlar í matvælageiranum mættu á svæðið og kynntu sínar vörur. Þórgnýr Thorodd-
sen hjá Álfi brugghúsi gaf gestum sýningarinnar bjórsmakk og Berglind Hilmarsdóttir hjá
Landbúnaðarklasanum kynnti starfsemi hans.
Hundur í óskilum skemmti gestum með sínu
lagi og Hjörleifur Hjartarson söng af miklum
móð.
Þessir þrír félagar kunnu vel að meta vöfflur
með sultu og íslenskum rjóma.
Landbúnaðarsýningin Hey bóndi