Bændablaðið - 07.11.2019, Blaðsíða 38

Bændablaðið - 07.11.2019, Blaðsíða 38
Bændablaðið | Fimmtudagur 7. nóvember 201938 MENNING&MINNINGAR LESENDABÁS Sveigt af leið Nýlega var skrifað undir samkomulag um breytingar á samningi um starfsskilyrði naut- griparæktar, eða a.m.k. áfanga að þeim, sé innihald samkomulagsins rétt skilið. Ástæða er til að þakka því fólki sem að þessu vann fyrir hönd okkar bænda fyrir sín störf. Þau störf eru gjarnan vanmetin, sjaldnast þakklát og gjarnan háð duttlungum aðstæðna. Í þessu samkomulagi er að finna nokkur nýmæli, svo sem afar metnað- arfull markmið í loftslagsmálum. Þá er þar tæpt á ýmsum góðum málum sem taka á til skoðunar, s.s. aukinn stuðning við minni bú, aðgerðir á svæðum þar sem framleiðsla hefur dregist saman, rannsóknarstarf og skattaumhverfi í tengslum við kyn- slóðaskipti. Öll horfa þessi atriði til bóta og styrkja undirstöðu samnings- ins í heild. En í meginatriðum er þó með þessu samkomulagi sveigt af leið í nokkrum grundvallarþáttum frá upphaflegum samningi. Gefur það ástæðu til að horfa lítillega yfir það rekstrarumhverfi sem samningurinn snertir og umræddar breytingar taka til. Snúið til baka Ein helsta breytingin sem verður með þessu samkomulagi er að horfið er frá niðurfellingu greiðslumarks í mjólk. Er þetta í samræmi við niðurstöðu atkvæðagreiðslu meðal kúabænda sem fram fór fyrr á árinu, þar sem stór meirihluti greiddi atkvæði gegn niðurfellingu núverandi kvótakerfis í mjólkurframleiðslu. Í samkomulaginu er síðan tekið á fyrirkomulagi viðskipta með greiðslumark og er ástæða til að hrósa nefndinni fyrir þá ákvörðun að taka aftur upp fyrirkomulag kvóta- markaðarins sem tók gildi 2011. Það fyrirkomulag á að geta, ef rétt er að staðið, tryggt jafnræði milli kaup- enda og seljenda og stöðugleika í verðþróun greiðslumarksins. Það er þó miður að samningsaðilar virðast ekki hafa gefið sér tíma til að gaum- gæfa aðferðina betur og setja um hana skýrari skorður, þannig að frá henni séu engin frávik eða undanþág- ur. Þvert á móti eru í samkomulaginu atriði sem gefa tilefni til að ala á tor- tryggni gagnvart framkvæmdinni. Fyrir það fyrsta má nefna ákvæði um heimild ráðherra til að setja hámarksverð á greiðslumark. Ljóst er að slík ákvörðun hefur ígildi opinberrar verðlagningar þar sem að líkindum muni öll viðskipti með greiðslumark eftir það fara fram á því verði og gangverk markaðarins þar með verða óvirkt. Öllu verra er þó að hafa slíka ákvörðun hangandi yfir, enda virkar hún einungis sem spennuvaldur í viðskiptunum. Annan afar sérkennilegan hlut er að finna í samkomulaginu, en hann er sá að bann er lagt við tilfærslu greiðslumarks milli lögbýla í eigu sama aðila frá og með 25. október 2019. Eftir því sem best er vitað var lagt bann við þessum tilflutningi með reglugerð í júní 2018. Hvernig má vera að því sé breytt? Hvaða knýjandi ástæður voru til að breyta þeirri dagsetningu? Hvenær verða þær aðstæður komnar upp aftur? Kjörlendi kostnaðarauka Þegar núgildandi samningur var undirritaður í febrúar 2016 var 12 mánaða sala á fitugrunni 132,8 milljónir lítra og 122,5 m. ltr. á próteingrunni. Þá var íbúafjöldi landsins 332.529 manns; sala á íbúa var 399 ltr. á fitugrunni og 368 ltr. á próteingrunni. Í dag eru íbúar landsins orðnir 356.991 og hefur því fjölgað um 7,4% frá undirritun, sala á fitugrunni er 145,3 m.ltr. og sala á próteingrunni 126,8 m.ltr.; reiknað á íbúa er salan 407 ltr. á fitugrunni, 1,9% aukning, en 355 ltr. á prótein- grunni, 3,5% samdráttur. Þegar litið er til þróunar á fjölda ferðamanna á þessu tímabili sést að árlegur fjöldi þeirra fór úr 1,3 milljónum árið 2015 í 2,3 milljónir árið 2018; fjölgun um 82%. Samdráttur í sölu á íbúa er því umtalsverður á tímabilinu, sérstak- lega í próteinflokknum þar sem margar framlegðarhæstu vörurnar eru. Það eru því blikur á lofti um það hvert greiðslumarkið verður næstu ár. Til að greiðslumarkskerfið geti gegnt hlutverki sínu þarf að hafa öfl- uga lagaumgjörð, sem tryggir að öll sú mjólk sem framleidd er umfram innanlandsþarfir fari til útflutnings. Á haustfundi Auðhumlu sem haldinn var á Flúðum nýlega kom m.a. fram að áætla megi innflutning mjólkurafurða síðustu misseri 4–6 milljónir lítra á ársgrunni, þar kom jafnframt fram að erfitt sé að nýta tollkvótana inn á ESB-svæðið og hagkvæmara sé að nota erlent hráefni til framleiðslu á íslensku skyri þar. Þá kom fram á umræddum fundi að skilaverð fyrir útfluttar mjólkurvör- ur skilaði 29 krónum fyrir umfram- mjólkurlítrann til framleiðenda. Þetta er að líkindum mun lægra skilaverð en erlendum kollegum var greitt fyrir hráefnið sem fór í innfluttu mjólk- urvörurnar. Kostnaður við mjólkurframleiðslu á Íslandi er hár og háir greininni í samkeppni bæði heima og erlendis. Fyrir því eru margar ástæður, bæði landfræðilegar og veðurfarslegar, en einnig kerfislægar þar sem bændur þurfa að kaupa sér aðgang að sínum eigin heimamarkaði. Lítil hreyfing hefur verið á til- færslu greiðslumarks síðustu ár, því verður að reikna með spennu í viðskiptunum þegar kvótamarkaður- inn verður opnaður og að það sjáist í verðinu. Hversu hátt það stígur er ekki gott að segja né hversu mikil skuldsetning greinarinnar í heild verður vegna þess. Æskilegt hefði verið að í þessu samkomulagi væri með einhverjum hætti ríkari áhersla á lækkun framleiðslukostnaðar. En því miður virðist fremur lagt upp kjörlendi til hins gagnstæða. Flangsast með fjöregg Um árabil hefur staða núverandi verðlagningarkerfis mjólkur verið óljós, skilvirkni þess ekki nægjanleg og pólitísk staða verið mjög að veikj- ast. Í 12. grein gildandi nautgripa- samnings er kveðið á um nýtt fyrir- komulag við verðlagningu sem taka átti gildi samhliða gildistöku samn- ingsins, svokölluð tekjumarkaleið. Þessum hluta samningsins lauk þó löggjafinn ekki við afgreiðslu máls- ins á Alþingi haustið 2016 og hefur málið verið í undanslætti hjá samn- ingsaðilum allar götur síðan. Sú óvissa sem sköpuð hefur verið með þessu um verðlagningarfyrir- komulagið er afleit og því miður tekur hið nýja samkomulag með engum hætti á henni, heldur þvert á móti. Skipa á starfshóp til að útfæra hugmyndir að breyttu kerfi. Greina á tækifæri til frekari aðgreiningar á milli söfnunar og sölu hrámjólkur til vinnslu, með fremur óljósu markmiði um aukna samkeppni. Því til viðbótar er vakinn upp gamall draugur frá því fyrir síðustu aldamót, að hætta opin- berri verðlagningu mjólkurafurða. Starfshópurinn á að skila tillögum sínum innan sjö mánaða, verki sem ekki hefur tekist að koma af í tæp fjögur ár. Í hnotskurn er það þannig að kvótakerfið er gagnslaust án verð- lagningar til bænda og sú verð- lagning er gagnslaus sé mjólkur- iðnaðinum ekki tryggðar tekjur til að mæta henni. Mjólkuriðnaðurinn er fjöregg greinarinnar, í gegnum hann fá kúabændur ríflega 60% tekna sinna. Umhugsunarvert er að skrifað sé undir samkomulag um framlengingu kvótakerfisins án þess að fyrir liggi hvernig eigi að fjármagna þau réttindi sem það gefur. Galin stjórnvöld? Lakasti þáttur þessa samkomulags er líklega að hætt er niðurtröppun „greiðslna út á greiðslumark“, en þær greiðslur áttu að hverfa út í lok samningstímans og færast á aðra liði samningsins. Það er afar umhugsunarvert að stjórnvöld skuli telja eðlilegt að undirrita ítrekað samninga, þar sem stuðningsgreiðslur sem ætlaðar eru starfandi bændum eru gerðar að söluvöru. Í stefnuyfirlýsingu núverandi ríkisstjórnar er að finna metnað- arfull markmið landbúnaðinum til handa, þar sem m.a. er talað um heil- næmi, nýsköpun, verðmætasköpun, byggðafestu og sjálfbærni. Hvernig þessir þættir fara saman við að beina þriðjungi stuðningsgreiðslna mjólk- urframleiðslunnar í framseljanlegar stuðningsgreiðslur er óskiljanlegt, jafnvel þó að það sé vilji greinar- innar sjálfrar. Því miður þjónar þessi aðferð einkum hagsmunum þeirra sem komið hafa sér vel fyrir og/eða ætla út úr greininni. Í ljósi þeirra áskorana sem greinin stendur frammi fyrir á komandi árum og þeirra markmiða sem stjórnvöld hafa sett sér í umhverfis- og lofts- lagsmálum, hlýtur að teljast galið að gera þennan viðsnúning á samningn- um, ekki síst þar sem hann bauð upp á aðra valkosti. Sigurður Loftsson, Steinsholti Sigurður Loftsson. Bæjaryfirvöld í Stokkhólmi í Svíþjóð hafa skrifað undir samkomulag um umhverfisvæn matvæli sem minnkar neyslu á kjöti í skólum og á elliheimilum og fer niður í 16 kíló á manneskju á ári hverju. Í kringum 160 þúsund nem- endur fá mat í skólum bæjarins og fer sem fyrr sagði talan niður í 16 kíló af kjöti og um 90 kíló af mjólkurvörum á mann á ári. Árið 2018 át meðal-Svíi um 85 kíló af kjöti árlega (reiknað með beini og sláturúrgangi) og um 355 kíló af mjólkurvörum. Félag eldri borgara í borginni eru ósáttir við þessi áform. Bæjaryfirvöld í Osló í Noregi hafa einnig farið sömu leið. /Bondelaget - ehg UTAN ÚR HEIMI Bæjaryfirvöld í Stokkhólmi í Svíþjóð: Minna kjöt og mjólkurvörur í skólum og á elliheimilum Mjólkurmarkaður í Evrópu er í góðu jafnvægi og frá í júlí hefur innlögn aukist um 0,2%. Þrátt fyrir þetta fá sem dæmi þýskir kúabændur einungis um 77% af kostnaði sínum greiddan. Horfur fyrir nautgripabænd- ur lítur verr út en til dæmis fyrir árið 2018 sem getur að sumu leyti hafa orðið vegna Brexit-málsins. Meðalverð fyrir svínakjöt hefur ekki verið hærra síðan 2013 og hefur hækkað um 28% á þessu ári. Það á sér útskýringar í aukinni eftirspurn frá löndum í Asíu vegna svínapestar. Ávextir og grænmeti í Evrópu halda sinni markaðsstöðu á meðan verð á sykri er lágt og ólífubændur hafa ekki verið í svo erfiðri stöðu í ára- tugi. /Bondelaget - ehg Matvælamarkaður í Evrópu: Misjöfn staða landbúnaðarvöruflokka Landbúnaðarráðherrar frá Ítalíu og Frakklandi hafa óskað eftir því við Evrópusambandið að nota markaðsstuðning til að hjálpa bændum við áhrifin sem tollurinn sem settur var á í Bandaríkjunum hefur. Tollurinn, sem er 25%, var inn- leiddur eftir að Bandaríkin fengu staðfestingu á því að evrópska félagið Airbus hafði fengið ólög- legan stuðning. Vín, viskí, ólífur og mjólkurvörur eru meðal þeirra vöruflokka sem verða fyrir barðinu á tollinum. Ítalir óska eftir stuðn- ingi á sérstakri geymslu á dýrum ostum og Frakkar vilja ráðstafanir fyrir vín. Ólífubændur, sem áttu í vandræðum áður en tollurinn var settur á fá nú þegar aðstoð en eftir um það bil ár er reiknað með úrskurði í svipuðu máli gegn Boeing sem getur endað með því að Evrópusambandið setji á ráð- stafanir gegn Bandaríkjunum. /Bondelaget - ehg Bændur í Evrópusambandinu: Biðja um markaðsstuðning vegna bandarískra tolla Frá Stokkhólmi. Mynd / HKr. Frá Bæjaralandi í Þýskalandi. Mynd / HKr. Frá Müller-kúabúinu í þorpinu Schwabendorf í Hessen í Þýskalandi. Mynd / HKr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.