Bændablaðið - 07.11.2019, Blaðsíða 46
Bændablaðið | Fimmtudagur 7. nóvember 201946
Það sem af er ári hef ég mikið
verið að prófa vistvæna bíla eins
og rafmagns-hybrid og vetnisbíla.
Það var kominn tími á að skoða
ódýran hefðbundinn bensínbíl
sem ætti að henta öllum.
Fyrir valinu var Fiat Tipo frá
Ísband í Mosfellsbæ, ódýr, kraft-
mikill og eyðslugrannur bensínbíll
með 5 ára ábyrgð.
Lítil sparneytin bensínvél sem
skilar 120 hestöflum
Bíllinn sem prófaður var nefnist Fiat
Tipo Easy og er 5 dyra beinskiptur
með sex gíra kassa framhjóladrifinn
bensínbíll. Ísband pantar mikið af
sínum bílum með aukabúnaði sem
þeir kalla „Íslandspakka“, en í þeim
pakka er m.a. stærri alternator (raf-
all), öflugri startari, hiti í hliðar-
speglum, þokuljós í framstuðara,
meira frostþol og ryðvörn fyrir
Ísland, sannarlega nauðsynlegur
búnaður fyrir íslenskar aðstæður.
Fiat Tipo Easy er með 1,4 lítra
bensínvél sem á að skila 120 hestöfl-
um og uppgefin eyðsla í blönduðum
akstri er 6,3 lítrar á hundraðið. Ég
var með 6,4 lítra eyðslu samkvæmt
aksturstölvu í lok prufuaksturs eftir
um 100 km akstur í blönduðum
akstri og er langt síðan ég prufu-
keyrði bíl þar sem ég er svona nálægt
uppgefinni eyðslu.
Prufuaksturinn mjög blandaður
Fyrst ók ég bílnum innanbæjar ná-
lægt 20–30 km, og fannst mér þessi
litla vél vera glettilega lipur og
snögg að ná umferðarhraða úr kyrr-
stöðu. Að leggja í stæði þá fannst
mér hliðarspeglarnir sýna vel aftur
fyrir bílinn, en bakkmyndavélin
frekar lítil.
Næst var það stuttur malarrúntur
um Heiðmörkina, en frá grófum
vetrardekkjunum komu smástein-
ar upp undir bílinn að framanverðu
og heyrðist aðeins í þeim, en nánast
ekkert frá afturdekkjunum.
Á möl er bíllinn ágætur og
tekur fjöðrunin hefðbundnar holur
ágætlega, en ef maður er of ákafur
í beygjum á möl er bíllinn aðeins
laus að aftan.
Næst var það langkeyrslan sem
var upp að Hellisheiðarvirkjun og
til baka. Á Sandskeiðinu var tekin
hávaðamæling inni í bílnum á 90
km hraða og þrátt fyrir að vera á
grófum vetrardekkjum mældist
hávaðinn inni í bílnum ekki nema
á bilinu 70–74 db. Á þessari leið sá
ég oft á aksturstölvunni eyðslu upp
á 2,5–3,5 lítra á hundraðið þannig
að ég mundi halda að þessi bíll sé
mjög hagkvæmur í lengri keyrslum.
Útbúnaður, öryggi og þægindi
Verðið á bílnum segir mikið til um
aukabúnað og þægindi. Þrátt fyrir
lágt verð er mikið af góðum dýrum
búnaði í bílnum s.s. stöðugleika-
stýring, rafknúinn bakstuðningur í
bílstjórasæti, rafdrifnar rúður framan
og aftan, hiti í framsætum, USB
tengi, AUX tengi og á a.m.k. tveim
stöðum var 12 volta rafmagnstengi,
svo eitthvað sé nefnt.
Bíllinn er rúmgóður að innan,
fótapláss gott. Farangursrými
ágætt (440 lítrar) og varadekk í
fullri stærð (sem er að verða ansi
fáséð í nýjum bílum).
Eftir margar yfirferðir yfir
bílinn var aðeins tvennt sem ég
fann til að gefa bílnum mínus
og það voru frekar litlir mínusar.
Framsætin fannst mér ekkert sér-
staklega þægileg og skjárinn fyrir
bakkmyndavélina fannst mér vera
lítill (sennilega bara væll í mér þar
sem sjónin er byrjuð að gefa sig).
Tvær útgáfur af Fiat Tipo
Fiat Tipo Easy er í boði bæði
bensín og dísil. Bensínbíllinn sem
prófaður var mengar aðeins meira
en dísilbíllinn og eyðir meira, en
er ódýrari og kostar ekki nema
3.090.000. Dísilbíllinn er líka 120
hestöfl og með 1,6 l dísilvél. Hann
er beinskiptur og uppgefin eyðsla
á honum er 3,8 lítrar á hundraðið
af dísilolíu í blönduðum akstri og
kostar hann 3.490.000.
VÉLABÁSINN
Hjörtur L. Jónsson
liklegur@internet.is
ódýr og rúmgóður
Fiat Tipo Easy. Myndir / HLJ
Afturljósin eru alltaf á þessum, engar áhyggjur af sekt fyrir ljósleysi að aftan.
Með þessum búnaði er það bara
einbeittur brotavilji að dæla röngu
eldsneyti á bílinn.
Hávaðamælingin var mjög hagstæð
á 90 km hraða. Hávaðinn var ekki
nema á bilinu 70–74 db.
Þótt hliðarspeglar séu litlir þá sést mjög vel aftur fyrir í þeim.
Það er stöðugt sjaldgæfara að sjá varadekk í fullri stærð í nýjum bílum.
Þrátt fyrir að bíllinn væri á grófum
vetrardekkjum heyrðist lítið veghljóð
inn í bílinn.
Þyngd 1.195 kg
Hæð 1.490 mm
Breidd 1.790 mm
Lengd 4.360 mm
Helstu mál og upplýsingar