Bændablaðið - 07.11.2019, Blaðsíða 35
Bændablaðið | Fimmtudagur 7. nóvember 2019 35
HURÐIR
Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is
• Stuttur afhendingartími
• Hágæða íslensk
framleiðsla
• Val um fjölda lita í
RAL-litakerfinu
• Vindstyrktar hurðir
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir með gönguhurð
Bílskúrshurðir
Hurðir í trékarma
Tvískiptar hurðir
Smíðað eftir máli
Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf
að þessu sinni en aðeins nefnd
til Bryggjuhátíð á Stokkseyri
sem félagið stóð fyrir með að-
ilum á staðnum og fleirum að
koma í framkvæmd sumarið
2004. Einnig „Samvinnuferðin
– landsferð“ með forystusauðinn
GORBA frá Brúnastöðum
sem Hrútavinafélagið gaf í
Forystufjársetrið að Svalbarði í
Þistilfirði.
Þjóðlegt
Hrútavinafélagið vinnur í anda
þess „að viðhalda og efla þjóð-
lega menningararfleifð til sjávar
og sveita og er samafl brottfluttra
Vestfirðinga og heimamanna á
Suðurlandi“ og sýna verkin vissu-
lega slíkt á margan hátt. Grunnur
félagsins liggur í bændamenn-
ingunni í Flóanum og vestfirskum
sjómönnum og beitustrákum eins
og sést á því hvernig félagið varð
til.
Félagið hefur fengið góða
svörun við starfinu sem sést best
á því að samkomur og uppákom-
ur þess eru ætíð mjög vel sóttar.
Hrútavinafélaginu er gríðarlega
kær einstök viðurkenning sem
það fékk nokkru eftir stofnun
á samkomu í troðfullu félags-
heimilinu Þjórsárveri. Sigurður
Sigurðarson, f.v. yfirdýralæknir,
kvaddi sér þar hljóðs og veitti
félaginu áratuga heilbrigðisvott-
orð vegna hins margþætta mann-
lífs og menningarstarfs Hrútavina.
Þetta vottorð er í fullu gildi enn.
Afmæliskveðjur
Björn Ingi Bjarnason
forseti Hrútavinafélagsins
Örvars
á Suðurlandi.
Þegar Hrútavinir koma saman þá er gaman. Hér er Jón Kr. Ólafsson á Bíldudal 70 ára þann 22. ágúst 2010 og nokkrir
Vestfirðingar með afmælisbarninu á Hvolsvelli. F.v.: Jón Kr. Ólafsson, Magnús Björnsson, Ólafur Helgi Kjartansson,
Hafliði Magnússon og Pétur Bjarnason.
Kristján Runólfsson er höfuðskáld Hrútavinafélagsins Örvars. Hér flytur hann
ljóð á samkomu hjá Hrútavinafélaginu í maí 2011. Blessuð sé minning hans.
Hrútavinafélagið Örvar hefur gefið út dægurrit, Séð og jarmað, og er það
gríðarlega vinsælt. Það er í stóru broti á burðarmiklum pappír og plastað
þykku plasti. Upplagið hverju sinni er eitt eintak og staðsett í Skálanum á
Stokkseyri fyrir gesti og gangandi. Síðan hefur Séð og jarmað verið lánað til
lestrarviku í senn á heimili, fyrirtæki og stofnanir á Suðurlandi. Á myndinni
er Séð og jarmað að koma í hús til Guðrúnar Kristmannsdóttur í Brekkholti.
Með henni eru t.v.: Jón Jónsson og t.h. er Þórður Guðmundsson.
Á 10 ár afmæli Hrútavinafélagsins Örvars árið 2009 var farið í fimm daga
sögu- og menningarferð um Vestfirði. Hér eru Hrútavinir við minnisvarðann
um Kollabúðafundina á Kollabúðaeyrum í Þorskafirði sem haldnir voru á
árunum 1849 til 1868. „Að viðhalda og efla þjóðlega menningararfleifð til
sjávar og sveita“ er eitt af markmiðum Hrútavinafélagsins Örvars. F.v.: Hlynur
Gylfason, Ásmundur Sigurðsson, Gunnar Marel Friðþjófsson, Einar Loftur
Högnason, Jóhann Páll Helgason, Bjarkar Snorrason, Hafliði Magnússon,
Einar Valur Oddsson og Friðrik Sigurjónsson. Mynd / Björn Ingi Bjarnason
Bænda
Vestfirðingurinn Björn Ingi Bjarna-
son tekur í spaðann á Vestfirðingn-
um Gísla Halldóri Halldórssyni, bæj-
arstjóra í Árborg.
Aðalfundur
Landssamtaka
raforkubænda
verður haldinn í Bændahöllinni, Hótel Sögu
(salur Hekla I), laugardaginn 9. nóvember
n.k. og hefst hann kl. 13:00
Dagskrá fundarins verður eftirfarandi:
1. Setning fundarins og skipun starfsmanna
2. Skýrsla stjórnar
3. Umræða um skýrslu stjórnar
4. Erindi Harðar Braga Helgasonar, frá
Vatnaskilum, um ákvörðun á innrennsli til
smávirkjana
5. Erindi Arnars Bergþórssonar, stjórnarform.
Arnarlækjar, um Urðarfellsvirkjun
6. Erindi Tjörva Bjarnasonar, frá Bændasamtök-
um Íslands, um samstarfsverkefnið, Hleðsla í
hlaði
7. Fyrirspurnir til framsögumanna og orðið
frjálst
8. Afmæliskaffi, áætlað kl. 15:00 í tilefni af 20
ára afmæli samtakanna
9. Reikningar LRB 2018 lesnir upp
10. Reikningar bornir undir atkvæði, og árgjald
ákveðið
11. Kosning stjórnar og tveggja skoðunarmanna
til eins árs
12. Önnur mál
Fundarslit, (áætluð eigi síðar en 17:00).
Heimasíða samtakanna:
www.raforkubondi.wordpress.com