Bændablaðið - 07.11.2019, Blaðsíða 25

Bændablaðið - 07.11.2019, Blaðsíða 25
Bændablaðið | Fimmtudagur 7. nóvember 2019 25 Lely Center Ísland Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600 KEÐJUR OG KEÐJUVIÐGERÐAREFNI GOTT ÚRVAL www.volkswagen.is HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.isHöldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · BVA Egilsstöðum www.hekla.is/volkswagensalur Vertu klár fyrir veturinn Volkswagen atvinnubílar Volkswagen Caddy 1.2 TSI beinskiptur Tilboðsverð 2.690.000 kr. Verðlistaverð 2.990.000 kr. Volkswagen Transporter 2.0 TDI Beinskiptur Tilboðsverð 4.390.000 kr. Verðlistaverð 4.950.000 kr. *Búnaður á mynd getur verið frábrugðinn bílum á tilboðsverði. Sjá staðalbúnað á volkswagen.is. TÖLVUPÓSTUR sala@bkhonnun . is SÍMI 865-9277 VEFFANG www .bkhonnun . is 8 x 20 x 3,5 m - 7.200.000 kr. m/vsk. 10 x 20 x 3 m - 7.600.000 kr. m/vsk. 12 x 30 x 3,5 m - 10.440.000 kr. m/vsk. 18 x 35 x 3 m - 16.200.000 kr. m/vsk. ÓEINANGRAÐ 12 x 30 x 3,5 m - 8.100.000 kr. m/vsk. ÓEINANGRAÐ 18 x 35 x 3 m - 11.300.000 kr. m/vsk. Z STÁLGRINDARHÚS Hágæða yleiningar fyrir veggi og þök. Veggeiningar 40-220 mm. Þakeiningar 40-220 mm. Bjóðum einnig skrúfur, þéttingar, áfellur, ylplast og þakglugga. Afgreiðslufrestur u.þ.b. 4 vikur. YLEININGAR - STEINULL OG PIR Vönduð gróðurhús til í miklu úrvali. Tryggðu þér gróðurhús fyrir vorið á frábærum kjörum. Fást beint af lager hjá framleiðanda. Tilvalin jólagjöf fyrir fólk með græna fingur! GRÓÐURHÚS - MARGAR GERÐIR TIMBUR EININGAHÚS Einbýlishús Rað- og parhús Frístundahús Ferðaþjónustuhús Starfsmannahús Bílskúrar LÍMTRÉSHÚS MEÐ YLEININGUM Skemmur úr límtré og yleiningum í miklu úrvali. CNC skorið límtré í hæsta gæðaflokki sem fæst meðal annars vaxborið og er því afar hentugt í gripahús. Nú er rétti tíminn til að panta einingahús fyrir vorið. Flottar lausnir fyrir ferðaþjónustu og íbúðarhús. Framleiðandi sér um uppsetningu. Hús hönnuð á Íslandi og framleidd í Litháen Margar stærðir Z stálgrindarhúsa í boði. Bjóðum bæði staðlaðar húsagerðir og sérhönnun fyrir viðskiptavini. Þaulreynd hús við íslenskar aðstæður. Innifalið Z stálgrind, 40 mm. PIR yleiningar og teikningar. Innifalið Z stálgrind, óeinangruð trapisu klæðning og teikningar. LANDNÝTING&SAUÐFJÁRRÆKT Landvernd og Náttúrverndarsamtök Íslands: Krefjast þess að landnýtingarþáttur gæðastýringar verði lagður niður – Þingsályktunartillaga lögð fyrir Alþingi en LS hafnar ásökunum um lögbrot Í tölvupósti sem Landvernd og Náttúruverndarsamtök Íslands sendu Skúla Eggertssyni ríkisend- urskoðanda 28. ágúst síðastliðinn er ábending til embættisins um að vafi leiki á að framkvæmd gæða- stýringar í sauðfjárrækt standist lög og lögmæta stjórnsýsluhætti. Í tölvupóstinum segir m.a. að sterkar líkur séu til að nokkur atriði er varðar framkvæmd reglugerðar um gæðastýrða sauðfjárframleiðslu séu ekki í samræmi við gildandi lög, reglugerðir eða góða stjórnsýslu- hætti. Reglugerðirnar sem vísað er til í þessu sambandi eru: 1160/2013, 536/2015, 1166/2017, 511/2018. Þingsályktunartillaga um málið Fyrir Alþingi liggur nú þingsá- lyktunartillaga sem Hanna Katrín Friðriksson, þingflokksformaður Viðreisnar, mælti fyrir um endur- skoðun á ráðstöfun almannafjár við gæðastýringu í sauðfjárrækt. Þar segir m.a.: „Alþingi ályktar að fela sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og umhverfis- og auðlindaráðherra að endurskoða ráðstöfun almannafjár við gæðastýringu í sauðfjárrækt, með það að markmiði að landnýtingarþáttur hennar samræmist lögum og góðum stjórnsýsluháttum. Ráðherrarnir setji nýjar reglur um viðmiðunarmörk fyrir ástand heimalanda, upprekstrarheimalanda og beitilanda á afrétti, sem byggist á ráðgjöf Landgræðslunnar um slík viðmið og tryggi að greiðslur verði ekki inntar af hendi til þeirra framleiðenda sem liggur fyrir að nái ekki núgildandi viðmiðum. Við þá vinnu verði jafnframt tryggt að núgildandi landbótaáætlanir samkvæmt reglugerð um gæðastýrða sauðfjárframleiðslu verði felldar úr gildi og landnotendum gert að gera nýjar landbótaáætlanir sem standist lög og ný viðmið. Endurskoðun verði lokið og ný viðmið sett fyrir 1. janúar 2020.“ Í samræmi við lög segja sauðfjárbændur Landssamtök sauðfjárbænda hafna því að landnýtingarþáttur gæðastýringar (LGS) í sauðfjárrækt samræmist ekki lögum og góðum stjórnsýsluháttum eins og kemur fram í þingsályktuninni. Í greinagerð frumvarpsins segir: „Talið er að 10–20% fjárstofnsins gangi af þeim sökum á svæðum þar sem ástand og eðli vistkerfa standast ekki viðmið sem sett eru í tengslum við framkvæmd núverandi búvöru- laga. Þeir sem eiga þessa gripi hafa því fengið greiðslur úr ríkissjóði þrátt fyrir að uppfylla ekki nauðsynleg skilyrði samkvæmt ákvæðum laga þar um.“ Þessu hafna Landssamtök sauðfjárbænda og segja m.a. í umsögn um tillöguna: „Þeir aðilar sem nýta land sem ekki stenst viðmið hafa fullan rétt á að fá greiðslur í gegnum gæðastýringuna svo lengi sem þeirra landnýting er í samræmi við þær kröfur sem settar eru fram í landbótaáætlun. Þeir aðilar sem óskar eftir því að taka upp gæða- stýrða framleiðslu senda umsókn þess efnis þar sem m.a. er tilgreint það land sem ætlað er til nýtingar. Meginreglan er sú að landnýting skal vera sjálfbær á öllu landi sem nýtt er til framleiðsl- unnar. Landgræðslan sem eftirlitsaðili leggur mat á það land sem óskað er eftir að framleiðslan sé stunduð á. Ef beitarlandið stenst viðmið um ástand er hægt að taka upp gæðastýrða fram- leiðslu.“ Krefjast afnáms landnýtingar­ þáttar gæðastýringar Í lokaorðum tölvupósts Landverndar og Náttúruverndarsamtaka Íslands er harðorð afstaða til málsins, en þar segir: „Í ljósi þess sem hér hefur komið fram krefjast undirrituð samtök þess að landnýtingarþáttur gæða- stýringarinnar verði felldur niður í núverandi mynd. Ennfremur, að réttmætum aðila (Landgræðslan, sbr. lög 155/2018) verði falið að semja nýjar reglur. Greiðslur sam- kvæmt gæðastýringarhluta samnings ríkis og bænda til þeirra framleið- enda sem ekki standast núverandi viðmið og munu ekki gera á samn- ingstíma núverandi landbótaáætlana verður stöðvaðar. Slíkar greiðslur af almannafé standast ekki lög, reglur og kröfur um góða stjórnsýsluhætti.“ /HKr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.