Bændablaðið - 07.11.2019, Blaðsíða 47
Bændablaðið | Fimmtudagur 7. nóvember 2019 47
Áður í þessum pistlum hef ég
nefnt að sennilega er ég með
meiri hrakfallabálkum sem til
eru og því góður í það að skrifa
um forvarnir. Flestir eiga eitthvað
sem þeir hafa keypt sér til öryggis
samanber öryggisgleraugu, hjálm,
sýnileikafatnað og fleira. Ótrúlega
oft kemur það fyrir að einhver
meiðir sig vegna þess að öryggis-
búnaðurinn sem viðkomandi á var
ekki notaður.
Einmitt þetta kom fyrir mig síð-
asta sunnudag í október þegar ég var
að leika mér á mótorhjólinu mínu á
ís. Ég hafði klætt mig í það þykkar
buxur að ég gat ekki verið með hnjá-
spelkurnar mínar sem eiga að tryggja
vörn fyrir liðböndin í kringum hnén.
Of seint að grípa um rassinn
þegar kúkurinn er dottinn
Fátt finnst mér skemmtilegra en að
keyra mótorhjól á ísilögðum vötnum
í skemmtilegri beygjubraut og það
var ég að gera. Í beygjum á vissum
hraða halla ég hjólinu aðeins meira
en margir og hef því lítið svigrúm
ef eitthvað óvænt gerist. Það óvænta
gerðist, hnefastór steinn var úti á
svellinu og fór undir framdekkið og
ég beint á hausinn, 100 kg hjól og
ég önnur 100 kg og þessi saman-
lagði þungi lagðist allur á vinstra
hnéð sem þoldi ekki allan þennan
þunga og það teygðist hressilega á
liðböndunum. Fyrir vikið gat ég ekki
stigið í fótinn í tvo daga og geng enn
haltur viku seinna og á erfitt með
svefn vegna sársauka.
Hefði ég verið með spelkurnar,
sem eru tveir aukahnjáliðir á hvort
hné, hefði ekkert komið fyrir mig og
ég þyrfti ekki að gretta mig í hverju
skrefi. Óásættanleg mistök að nota
ekki rándýran öryggisbúnað sem
maður á. Notum öryggisbúnaðinn
sem við eigum, það er of seint að
grípa um rassinn þegar kúkurinn er
dottinn.
Skoðun ökutækja misdýr
Fyrir nokkru nefndi ég í þessum
pistli í samhengi við skoðun á heilsu
að almennt finnist fólki það sjálf-
sagt að láta skoða bílana sína árlega.
Í ár er búið að skoða öll ökutæki
heimilisins, en þegar skoðaðir voru
greiðslureikningar bíla heimilisins
kom í ljós mikill verðmunur á milli
skoðunarstöðva, en allir bílar heim-
ilisins eru í sama flokk, sem kallast
undir 3.500 kg.
Skoðunarstöðvarnar eru fjórar
og með því að fara inn á heimasíðu
þeirra þá er þar uppgefin verðskrá
hjá þeim öllum. Samkvæmt uppgef-
inni verðskrá er Frumherji dýrasta
skoðunarstöðin með uppgefið verð
á bíl undir 3.500 kg 13.660 krónur.
Skoðun á bíl sem er 3.500–7.500
kg kostar 14.720 kr. Næstdýrast er
að láta Aðalskoðun skoða bíl undir
3.500 kg, en þar kostar það 13.500
og stærri bílarnir 14.295 kr. Þar á
eftir er Tékkland, en þar er lægra
verðið 11.995 og stærri bílarnir
12.995. Ódýrasta skoðunarstöðin
er jafnframt sú nýjasta og er bara á
einum stað á höfuðborgarsvæðinu,
Betri skoðun. Þar er bara eitt verð
á alla bíla að 7.500 kg., eða 11.495
krónur.
Góð heimsókn fyrir lesendur
Bændablaðsins í Betri skoðun
Í síðustu viku kom ég við í Betri
skoðun á Stapahrauni 1 í Hafnarfirði
og spjallaði aðeins við starfsfólkið.
Fyrir svörum varð Hörður Harðarson,
sem er einn af eigendunum, og sagði
hann mér að þau teldu sig ekki þurfa
að vera með hærra verð. Aðspurður
hvort þeir væru með einhvern af-
slátt frá þessu verði var svarið að
það megi alltaf reyna að semja um
hóp afslátt og í framhaldi, þegar ég
spurði hvort nóg væri að segjast vera
lesandi Bændablaðsins var svarið:
„Bændablaðið er gott blað og við
gerum eitthvað gott fyrir lesendur
Bændablaðsins.“
Viðgerðir og sala á alternatorum og startörum
í flestar gerðir bíla, báta og vinnuvéla.
Hjólastillingar, úrval af ljósum á kerrur og
eftirvagna, kerrutenglar, kaplar, perur og tengi.
Sendum um allt land.
www.pgs.is
pgs@pgs.is
s 586 1260
Viðarhöfði 1, 110 Reykjavík
Alternatorinn eða
startarinn bilaður?
ÖRYGGI – HEILSA – UMHVERFI
KROSSGÁTA Bændablaðsins
Lausn á krossgátu í síðasta blaði
Hjörtur L. Jónsson
liklegur@internet.is
Smáauglýsingar 56-30-300
TÆPLEGA VARKÁRNI UMFRAM FUGLA-HLJÓÐ FUGL YFIRRÁÐ SVALL
HKJAFTFOR V A S S Y R T U R
RFLOKKA A Ð A MÓTAPYNGJUR F O R M A
EGRÖM R G P I P A R L
L Á T U R
HOLU-
FISKUR
SNÁÐA N Á L
HARLA ELDUR
EFNI
BERIST TIL S A T Í N SKÍTUR T A Ð UMHYGGJA
ÁTTÖRVA
SINNMATUR
KRYDD
SKATTUR
L A B B A DRAUP FUGLÁMÆLA U G L A RUNNI ÓNEFNDUR ÖGANGA
O F Á T LJÁMÆTTU L Á N A
SNYRTI-
LEGUR
MUNDA P E N NOFNEYSLA
K A L
TAK
AF-
KLÆÐIST H A L D
SKJÓL-
LAUS
YNDIS O P I N NFROST-SKEMMD
K R TVÍSTÍGAÓSKÖP H I K A ÁNÁGENGUR U T A N ÁÞEKKUR RÆÐA LEYNILEGAGJALD-MIÐILL
A KÆNULAUT B Á T BENDA Á S Ý N A ANGANHANDA I L M
F L Ý T T SÓÐAALDUR A T A EIN-SÖNGUR A R Í AHRAÐAÐ
L Æ S T U R INNYFLITVEIR I Ð U R TVEIR EINSFRÁ K KLOKAÐUR
Ó
Ð
G
Ð
N
RISPAN
A
R
JAFNT
Á
E
K
I
I
N
N
S
REIKA
KÁSSA
V
M
A
A
F
U
R
K
A
HÓTA
TVEIR
EINS
117
H
Ö
FU
N
D
U
R
B
H
•
K
R
O
SS
G
A
TU
R
.G
A
TU
R
.N
ET
ÆSIR ÞJÁLFUN TERTA LÆRIR SVARI YNDIS HUGUR
MEINLAUS
HEGNA
FJALLSNÖF
TILRÆÐI
VÆTA
FAG
SKÍNA
KÚNST
KVEIF
RÓMVERSK
TALA
HÆÐ
TVEIR EINS
ÁTT
GETSPAKUR
VÖRU-
MERKIARGUR
LEIFAR
SAMSULL
MAUKIÐ
SLÉTTA
REYKJA
FÖST
STÆRÐ
ÍÞRÓTT
BLUNDA STRITREIÐUR
HRÆÐA
MARGVÍS-
LEGAR
BLÁSA
FLÝTIR
TALA
STARFA
SKYNFÆRA
GAGN
ÆVINLEGA
Í RÖÐ
MÁNUÐUR
VÖRU-
FLUTNINGUR
ESPAST
ÁKÆRA
SÁÐJÖRÐÓHREINKA
ÞAKBRÚN
ÁVÖXTUR
FÉLAGI
TÆRA
RAGN
SAMTÖK
LYKT
MARR
SIÐA
GRENNA
EINKENNI
UPP-
HRÓPUN
SVÖRÐ KRINGUMÓVARÐARI
ÞJÁLFA
NIÐURLAG TANN-STÆÐI
FRUMEIND
HÖGG
TVEIR
M
Y
N
D
:
H
ER
M
A
N
N
SC
H
A
CH
N
ER
(
CC
0)
H
Ö
FU
N
D
U
R
B
H
•
K
R
O
SS
G
A
TU
R
.G
A
TU
R
.N
ET
118
Ekki nóg að eiga öryggisbúnað, það þarf líka að nota hann
Það er ekki mikið svigrúm í svona halla ef eitthvað óvænt kemur undir fram-
eða afturdekk. Mynd / Óskar Sigurðson
Starfsfólk Betri skoðunar á Stapahrauni 1 í Hafnarfirði, talið frá vinstri:
Hörður, Grétar og Halldóra. Mynd / HLJ