Bændablaðið - 07.11.2019, Blaðsíða 22
Bændablaðið | Fimmtudagur 7. nóvember 201922
TÆKNI&VÍSINDI
Klettagörðum 5 | 104 Reykjavík | Óseyrarbraut 12 | 220 Hafnarfirði
Hafðu
samband
568 0100
www.stolpigamar.is
Gámurinn
er þarfaþing
Þurrgámar
Hitastýrðir gámar
Geymslugámar
Einangraðir gámar
Fleti og tankgámar
Gámar með hliðaropnun
Til leigu eða sölu: Gámahús og salernishús
Færanleg starfsmannaðstaða
Bos gámar og skemmur
HROSS&HESTAMENNSKA
„Fyrst og fremst erum við að þakka
fyrir gengin spor. Við fáum fyrir
tæki til að styrkja þetta framtak
og það hefur gengið vel, þannig að
enginn borgar neitt, bara mætir og
hefur gaman. Við lítum svo á að
„heldri félagar okkar hafi greitt
fyrir sig áður með ómetanlegu fram
lagi sínu til uppbyggingar félags
ins,“ segir Sigfús Ólafur Helgason,
framkvæmdastjóri Hesta manna
félagsins Léttis.
Félagið hefur þann sið að bjóða
eldri félagsmönnum, 65 ára og eldri,
þrisvar til fjórum sinnum á ári í gleð-
skap af einhverju tagi. Nú rétt um
daginn var hópnum boðið í Skeifuna,
félagsheimili Léttis í Reiðhöllinni,
og þar var í boði mjólkurgrautur og
slátur eins og hver gat í sig látið.
Sýnum þakklæti okkar
fyrir unnin verk
Sigfús segir að án þessa fólks væri
félagið ekki það sem það nú er, „og
við viljum sýna þakklæti okkar fyrir
unnin verk með þessu, en ekki síður
er hugmyndin líka sú að fá þetta
góða fólk til að koma í félagsheimili
okkar, heyra sögur frá liðinni tíð, búa
til sögur úr fortíð sem við sem yngri
erum þekkjum ekki,“ segir hann.
„Mér finnst stundum að við sem
yngri erum gleymum því að félagið
okkar var til áður en við gengum í
það, Léttir er 90
ára gamalt félag
og nauðsynlegt
fyrir okkur að
vita að það var líf
og það er til saga
hestamennsku á
Akureyri fyrir reiðhöll, styrki frá
bænum og fleira og fleira sem okkur
þykir sjálfsagt núna.“
Margir leggja félaginu enn lið
Sigfús segir að hestamenn beri
virðingu og sé þakklátt eldra
„heldra“ fólkinu sínu og það sé því
dásamlegt þegar það kemur á við-
burði sem efnt er til fyrir það, „og ég
veit að þau meta það mikils,“ segir
hann. Margir leggja félaginu enn lið,
fólk á þessum aldri er margt hvert
hætt að vinna en hefur nægan tíma til
að stússast í ýmsum sérverkefnum,
smíðavinnu, þrifum og tiltekt eða
hverju svo sem til fellur í félags-
starfinu. Þannig að vissulega sé líf
í hestamennskunni þótt 65 ára aldri
sé náð.
Að þessu sinni var sem
fyrr segir boðið upp á mjólkurgraut
og slátur, svona í tilefni af því að
sláturtíð hefur staðið yfir síðustu
viku. Hafdís Gylfadóttir og Guðlaug
Reynisdóttir, báðar silfurmerkishaf-
ar Léttismanna, stóðu í ströngu við
grautargerðina, eru konurnar á bak
við tjöldin. Næst segir Sigfús að til
standi að bjóða heldri manna-hópn-
um upp á kráarkvöld og verður það
öðru hvorum megin við áramótin
næstu. /MÞÞ
Hólmgeir Valdimarsson við grautarpottinn. Myndir / MÞÞ
Frá vinstri, Halldóra Steindórsdóttir og Ásta Dúna Jakobsdóttir. Frá vinstri eru Margrét Árnadóttir, Sigríður Guðmundsdóttir og Hólmfríður
Hreinsdóttir.
Hestamannafélagið Léttir gerir vel við eldri félagsmenn:
Mjólkurgrautur og slátur í boði í hádegissamveru
Sigrún Aðalsteinsdóttir, Garðar Lárusson, heiðursfélagi Léttis, og Kjartan
Helgason gerðu grautnum góð skil.
Björn Jóhann Jónsson, formaður Léttis og heiðursfé-
lagi, sat til borðs með þeim Sverri Pálmasyni og Haraldi
Höskuldssyni.
Einar Örn Grant fær sér graut.
Það var létt yfir þeim Halldóru Steindórsdóttur, Ástu Dúnu Jakobsdóttur og
Júlíu Sjöfn Sigurjónsdóttur í grautarstundinni í Skeifunni.