Bændablaðið - 07.11.2019, Blaðsíða 29
Bændablaðið | Fimmtudagur 7. nóvember 2019 29
ríghaldið í orðalag reglugerða,
heldur miðað við praktískan
raunveruleika bænda. Í þeim
efnum skal þó tekið fram að ekki
er gert ráð fyrir að bandarískir
bændur slátri miklu magni lamba
heima, þó að það séu ekki nein
takmörk á fjölda í þeim efnum í
regluverkinu. Skilyrði er á hinn
bóginn að bóndi selji beint til
neytanda. Engin þörf eru talin á
því að dýralæknir komi nálægt
ferlinu, né heldur að aðstaða sé
vottuð af USDA (United States
Department of Agriculture) en
sláturbíllinn og kjötvinnslustöðin
eru vottuð af WSDA (Washington
State Department of Agriculture).
WSDA vottun er tiltölulega ein-
falt að fá og má segja að hún sé af
öðru sauðahúsi en USDA vottun.
Eftirspurn eftir vörum minni
bænda í beinum viðskiptum er
mikil og hefur aukist síðustu ár, í
takti við aukna meðvitund neytenda
fyrir misjöfnum aðstæðum dýra
í þauleldi/verksmiðjubúskap
og umhverfisáhrifum slíkrar
fram leiðslu. Selma býður
viðskiptavinum í heimsókn til
hennar, þar sem þeir geta séð
aðstæður dýra hennar af eigin
raun og ræður slík heimsókn
því gjarnan hvort af viðskiptum
verður eða ekki. Viðskiptavinirnir
greiða svo hluta af kjötinu fyrir
fram (down payment) til að
tryggja sín kaup, sem hjálpar
Selmu við búreksturinn fram að
sláturtíð. Bændur í nágrenninu
selja gjarnan með svipuðum hætti
eða í gegnum svokallað CSA
verkefni (Community Supported
Agriculture program).
Sveinn Margeirsson
og Selma Bjarnadóttir
Að lokinni slátrun er farið með
lambsskrokka til kjötiðnaðarmanns.
Þar fá þeir að hanga í kæli í 3–5 daga
til að meyrna uns þeir eru unnir eftir
forskrift frá Selmu.
Selma nýtir ull af gærum, enda reyta menn sauðinn sakir ullar. Hún selur ullina til Kaliforníu og Olympia í Washington
þar sem hún er nýtt í staðbundna garnframleiðslu. Í Kaliforníu er hún nýtt í ýmiss konar vörur fyrir listamenn og
til námskeiðahalds fyrir fólk sem vill læra meira um ull og nýtingu hennar. Selma selur ullina af einni gæru fyrir
um 1.800 krónur.
Anastasia er einn af fastakúnnum Selmu. Henni er mjög umhugað um að
kaupa sín matvæli beint frá bónda í nágrenni við heimili sitt. Auk lamba-
kjöts kaupir hún svínakjöt, nautakjöt og jógúrt af Selmu og grænmeti frá
nágranna sínum.
Kjötiðnaðarmaður í nágrenni við Selmu vinnur íslensku lömbin eftir forskrift
og pakkar þeim til dreifingar. Selma keyrir vörurnar síðan út. Eins og sjá má
á pakkningum fá kaupendur íslenskukennslu í kaupbæti, en menning tengd
íslenska lambinu skiptir Selmu miklu máli.
byko.is
YLEININGAR ERU LÉTTAR STÁL-
KLÆDDAR SAMLOKUEININGAR
SEM FÁST MEÐ ÞÉTTIFRAUÐS-
EÐA STEINULLARKJARNA.
Einingarnar eru sterkar og burðarmiklar og
fást með mismunandi yfirborði og litum að
eigin vali. Helstu kostir þess að nota samloku-
einingar er auðveld og fljót uppsetning, auðveld
þrif, mikil burðargeta, mikið einangrunargildi og er
ódýr kostur ef miðað er við hefðbundnar lausnir.
Yleiningar henta vel fyrir eldri gripahús þar sem
skipta þarf út þak- og eða veggjaklæðningum.
BALEX yleiningar eru framleiddar undir
ströngu eftirliti samkvæmt viðurkenndum
evrópskum stöðlum.
Hafðu samband: bondi@byko.is
YLEININGAR
Thermomix TM6 er eins og aukahendur í eldhúsið!
Ótrúlegir notkunarmöguleikar, bylting í matargerð og eldamennsku,
innbyggðar uppskriftir og þú nýtir tímann í annað en matseld.
• Á markaði síðan 1961
• Þýsk hönnun og gæði
• Allt eldað frá grunni
• Minni matarsóun
• Einfalt í notkun
• Sparar tíma
• Hagkvæmt
• Innbyggt wi-fi
VANTAR ÞIG AÐSTOÐ VIÐ
ELDAMENNSKUNA?
ELDHÚSTÖFRAR EHF.
SÍÐUMÚLI 29 108 REYKJAVÍK
INFO@ELDHUSTOFRAR.IS
S: 696-7186 & 690-0909
THERMOMIXICELAND
THERMOMIX Á ÍSLANDI
ICELAND.THERMOMIX.COM
15 NOTKUNARMÖGULEIKAR í einu tæki
• Gufusýður
• Hitastýrir
• Sous vide
• Hægeldun
• Gerjun
• Hrærir
• Fleytir
• Þeytir
• Saxar
• Eldar
• Blandar
• Mixar
• Hnoðar
• Vigtar
• Malar
Hvar auglýsir þú?
Sími 563 0300 / Netfang: bbl@bondi.is / bbl.is
Lestur Bændablaðsins: BÆNDABLAÐIÐ ER GEFIÐ ÚT Í 32 ÞÚSUND
EINTÖKUM Á TVEGGJA VIKNA FRESTI
20,4% 45,6%
á landsbyggðinni
á höfuðborgarsvæðinu
29,5%
landsmanna lesa
Bændablaðið
29,5%
landsmanna lesa
Bændablaðið
Heimild: Prentmiðlakönnun Gallup, okt.-des. 2018. Aldur 12-80 ára.