Bændablaðið - 07.11.2019, Blaðsíða 24

Bændablaðið - 07.11.2019, Blaðsíða 24
Bændablaðið | Fimmtudagur 7. nóvember 201924 BÚVÖRUSAMNINGAR Fulltrúar Bændasamtaka Íslands og stjórnvalda skrifuðu undir samkomulag um endurskoðun á samningi um starfsskilyrði nautgriparæktar föstudaginn 25. október síðastliðinn. Markmið samkomulagsins er að stuðla að framþróun og nýsköpun í nautgriparækt. Áhersla er lögð á rannsóknir og menntun ásamt sjálfbærari og umhverfisvænni framleiðslu. Samkomulagið er liður í endurskoðun samnings um starfsskilyrði nautgriparæktar frá 19. febrúar 2016. Greiðslumarkið heldur velli Fallið verður frá niðurfellingu heildargreiðslumarks sem átti að taka gildi þann 1. janúar 2021 og mun því greiðslumark gilda áfram út samningstímann. Greiðslumark heldur sér þar af leiðandi sem kvóti sem tryggir forgang að inn- anlandsmarkaði og sem viðmiðun fyrir beingreiðslur. Viðskipti með greiðslumark verða leyfð að nýju frá og með árinu 2020 og munu þau byggja á tilboðsmarkaði sem er sama markaðsfyrirkomulag og gilti á árunum 2011–2016. Vissar takmarkanir verða á viðskiptum með greiðslumark sem verða útfærðar nánar í reglugerð. Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðar- ráðherra, sagði við undirritun samkomulagsins að það væri mikilvægt fyrir framþróun íslenskrar nautgriparæktar. Í fréttatilkynningu sem send var út samhliða undirrituninni sagði hann að með því að viðhalda kvótakerfi í mjólkurframleiðslu væri ýtt undir þá miklu hagræðingu sem orðið hefur í greininni til hagsbóta fyrir bændur og neytendur. Hann sagði það ekki síður mikilvægt fyrir hagsmuni neytenda að samstaða væri um að efla og tryggja forsendur til samkeppni við vinnslu mjólkurafurða og því verður gerð greining á tækifærum til frekari aðskilnaðar milli söfnunar og sölu á hrámjólk frá vinnslu mjólkurafurða og öðrum rekstri. „Samhliða er stefnt að því að stýritæki við verðlagningu mjólk- urafurða verði þróuð til meira frjálsræðis með því að taka upp nýtt fyrirkomulag í stað verðlags- nefndar búvöru, enda er núverandi fyrirkomulag að mörgu leyti tíma- skekkja. Loks er rétt að fagna sér- staklega þeirri sterku og metnaðar- fullu stefnumörkun sem bændur og stjórnvöld sameinast um að íslensk nautgriparækt verði að fullu kolefn- isjöfnuð eigi síðar en árið 2040,“ sagði Kristján Þór. Fjármagni ráðstafað til kolefnisbindingar Samningsaðilar eru sammála um það markmið að íslensk nautgriparækt verði að fullu kolefnisjöfnuð eigi síðar en árið 2040. Þetta verði gert m.a. með því að byggja upp þekkingu á losun og bindingu kolefnis, bættri fóðrun, meðhöndlun og nýtingu búfjáráburðar, markvissri jarðrækt og öðrum þeim aðgerðum er miða að því að kolefnisjafna búskap. Slíkar áherslur falla vel að öðrum verkefnum, að mati samningsaðila, á sviði kolefnisbindingar svo sem skógrækt. Skal að því stefnt að allar afurðir frá íslenskum nautgripabændum verði vottaðar sem kolefnishlutlausar fyrir árið 2040. Til að stuðla að kolefnishlutleysi íslenskrar nautgriparæktar eru samningsaðilar sammála um að ráðstafa fjármagni af samning um starfsskilyrði nautgriparæktar til aðgerða í loftslagsmálum. Tekið verður til skoðunar að innleiða fjárhagslega hvata fyrir bændur til að ná árangri í að auka bindingu kolefnis. Verðlagsmál endurskoðuð Í samkomulaginu sameinast stjórn- völd og bændur um að skoða breytingar á verðlagsmálum mjólk- urafurða. Gerð verður greining á tækifærum til frekari aðskilnaðar milli söfnunar og sölu á hrámjólk frá vinnslu mjólkurafurða og öðrum rekstri. Þá verður fyrirkomulag verð- lagningar mjólkurvara á heildsölu- stigi tekið til endurskoðunar og skoðaður sá möguleiki að hætta op- inberri verðlagningu mjólkurafurða. Þá er einnig stefnt að því að þróa stýritæki við verðlagningu mjólkur- afurða til meira frjálsræðis. Umgjörð verðlagsnefndar búvöru verður tekin til endurskoðunar með það að mark- miði að taka upp nýtt fyrirkomu- lag í stað verðlagsnefndar búvöru, án þess að slíkt raski forsendum búvörusamnings. Strax í kjölfar undirritunarinnar verður skipaður starfshópur sem fær það hlutverk að útfæra þessi atriði nánar. Nefnd til að skoða aðlögunarsamninga og aukinn stuðning við minni bú Í samkomulaginu er kveðið á um skipan starfshóps sem hefur það hlutverk að fara yfir hugmyndir samningsaðila varðandi aðlögunarsamninga og aukinn stuðning við minni bú. Hópnum er ætlað að meta þörf á aðgerðum annars vegar vegna svæða þar sem framleiðsla hefur dregist saman og hins vegar vegna fyrirhugaðs banns við básafjósum. Jafnframt verði skoðað hvernig hægt er að styðja betur við rannsóknarstarf og hagnýtar rannsóknir fyrir greinina ásamt fræðslu og menntun kúabænda. Undirritað með fyrirvara um samþykki félagsmanna Samkomulagið var undirritað af hálfu Bændasamtaka Íslands og Landssambands kúabænda með fyr- irvara um samþykki félagsmanna í atkvæðagreiðslu sem fer fram dagana 20. nóvember til 27. nóvember. Samkomulagið í heild sinni má nálgast á vef BÍ, bondi.is. /TB Saman náum við árangri Samskip eru með gáma af ýmsum gerðum og stærðum til sölu. Gámar eru ódýr lausn sem má nýta á marga vegu, sem tækjageymslu, kaffiskúr, vörugeymslu, vinnuskúr og margt fleira. Fáðu tilboð hjá okkur á gamar@samskip.is eða í síma 458 8000 Við flytjum ekki bara vörur. Við seljum líka gáma. Endurskoðun nautgripasamnings: Íslensk nautgriparækt verði að fullu kolefnisjöfnuð og greiðslumark áfram við lýði Kynning á samningnum hefur staðið yfir síðustu daga en full- trúar Landssambands kúa- bænda hafa haldið haustfundi um allt land og kynnt efni samkomulagsins. Fyrirhugað er að halda kynningarfund í beinni útsendingu á Netinu á vegum Bændasamtakanna og Landssambands kúabænda mánudaginn 11. nóvember kl. 12.00. Á veffundinum gefst bændum kostur á að senda inn spurningar og fá svör frá forystufólki í samninga- nefndinni. Upplýsingar um fundinn og hvernig hægt er að tengjast honum verða settar inn á bondi.is og Facebook-síðu Bændasamtakanna skömmu fyrir fund. Þá verður einnig útbúið kynningarmyndband um atriði samningsins sem dreift verður á vefsíðum LK og BÍ þegar nær dregur atkvæðagreiðslunni. Atkvæðagreiðsla meðal bænda Búið er að boða til atkvæðagreiðslu um samkomulagið en kosningarétt hafa félagsmenn í Bændasamtökum Íslands sem eru jafnframt með virkt bú í skýrsluhaldi fyrir nautgriparækt. Þá hafa félagsmenn í Landssambandi k ú a b æ n d a e i n n i g kosninga rétt. A t k v æ ð a - greiðslan mun fara fram með r a f r æ n u m hætti og verður aðgengileg á vef Bænda- samtak anna www.bondi.is. Hún stendur yfir frá kl. 12.00 á hádegi þann 20. nóvember til kl. 12.00 á hádegi þann 27. nóvember. Hægt verður að kanna aðild að kjörskrá í gegnum rafrænan aðgang frá kl. 12.00 á hádegi þann 13. nóvember. Ef kjósandi hefur ekki aðgang að tölvu, skal viðkomandi hafa samband við skrifstofu BÍ í síma 563-0300 og fá leiðbeiningar. Allar nánari upplýsingar um fram- kvæmd atkvæðagreiðslunnar er að finna á vef Bændasamtak- anna, www.bondi.is. Í kjörstjórn sitja Elías Blöndal Guðjónsson formaður, Guðbjörg Jónsdóttir og Guðrún Vaka Steingrímsdóttir. Netfang kjörstjórnar er kjorstjorn@ bondi.is. Kynning og at- kvæðagreiðsla Bændur í Eyjafirði á haustfundi LK á dögunum. Mynd / HS Samkomulagið var undirritað í fjármálaráðuneytinu 25. október. Frá vinstri: Unnur Brá Konráðsdóttir, Kristján Þór Júlíusson, Guðrún S. Tryggvadóttir, Arnar Árnason og Bjarni Benediktsson. Mynd / TB
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.