Bændablaðið - 07.11.2019, Síða 35

Bændablaðið - 07.11.2019, Síða 35
Bændablaðið | Fimmtudagur 7. nóvember 2019 35 HURÐIR Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is • Stuttur afhendingartími • Hágæða íslensk framleiðsla • Val um fjölda lita í RAL-litakerfinu • Vindstyrktar hurðir Bílskúrs- og iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir með gönguhurð Bílskúrshurðir Hurðir í trékarma Tvískiptar hurðir Smíðað eftir máli Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf að þessu sinni en aðeins nefnd til Bryggjuhátíð á Stokkseyri sem félagið stóð fyrir með að- ilum á staðnum og fleirum að koma í framkvæmd sumarið 2004. Einnig „Samvinnuferðin – landsferð“ með forystusauðinn GORBA frá Brúnastöðum sem Hrútavinafélagið gaf í Forystufjársetrið að Svalbarði í Þistilfirði. Þjóðlegt Hrútavinafélagið vinnur í anda þess „að viðhalda og efla þjóð- lega menningararfleifð til sjávar og sveita og er samafl brottfluttra Vestfirðinga og heimamanna á Suðurlandi“ og sýna verkin vissu- lega slíkt á margan hátt. Grunnur félagsins liggur í bændamenn- ingunni í Flóanum og vestfirskum sjómönnum og beitustrákum eins og sést á því hvernig félagið varð til. Félagið hefur fengið góða svörun við starfinu sem sést best á því að samkomur og uppákom- ur þess eru ætíð mjög vel sóttar. Hrútavinafélaginu er gríðarlega kær einstök viðurkenning sem það fékk nokkru eftir stofnun á samkomu í troðfullu félags- heimilinu Þjórsárveri. Sigurður Sigurðarson, f.v. yfirdýralæknir, kvaddi sér þar hljóðs og veitti félaginu áratuga heilbrigðisvott- orð vegna hins margþætta mann- lífs og menningarstarfs Hrútavina. Þetta vottorð er í fullu gildi enn. Afmæliskveðjur Björn Ingi Bjarnason forseti Hrútavinafélagsins Örvars á Suðurlandi. Þegar Hrútavinir koma saman þá er gaman. Hér er Jón Kr. Ólafsson á Bíldudal 70 ára þann 22. ágúst 2010 og nokkrir Vestfirðingar með afmælisbarninu á Hvolsvelli. F.v.: Jón Kr. Ólafsson, Magnús Björnsson, Ólafur Helgi Kjartansson, Hafliði Magnússon og Pétur Bjarnason. Kristján Runólfsson er höfuðskáld Hrútavinafélagsins Örvars. Hér flytur hann ljóð á samkomu hjá Hrútavinafélaginu í maí 2011. Blessuð sé minning hans. Hrútavinafélagið Örvar hefur gefið út dægurrit, Séð og jarmað, og er það gríðarlega vinsælt. Það er í stóru broti á burðarmiklum pappír og plastað þykku plasti. Upplagið hverju sinni er eitt eintak og staðsett í Skálanum á Stokkseyri fyrir gesti og gangandi. Síðan hefur Séð og jarmað verið lánað til lestrarviku í senn á heimili, fyrirtæki og stofnanir á Suðurlandi. Á myndinni er Séð og jarmað að koma í hús til Guðrúnar Kristmannsdóttur í Brekkholti. Með henni eru t.v.: Jón Jónsson og t.h. er Þórður Guðmundsson. Á 10 ár afmæli Hrútavinafélagsins Örvars árið 2009 var farið í fimm daga sögu- og menningarferð um Vestfirði. Hér eru Hrútavinir við minnisvarðann um Kollabúðafundina á Kollabúðaeyrum í Þorskafirði sem haldnir voru á árunum 1849 til 1868. „Að viðhalda og efla þjóðlega menningararfleifð til sjávar og sveita“ er eitt af markmiðum Hrútavinafélagsins Örvars. F.v.: Hlynur Gylfason, Ásmundur Sigurðsson, Gunnar Marel Friðþjófsson, Einar Loftur Högnason, Jóhann Páll Helgason, Bjarkar Snorrason, Hafliði Magnússon, Einar Valur Oddsson og Friðrik Sigurjónsson. Mynd / Björn Ingi Bjarnason Bænda Vestfirðingurinn Björn Ingi Bjarna- son tekur í spaðann á Vestfirðingn- um Gísla Halldóri Halldórssyni, bæj- arstjóra í Árborg. Aðalfundur Landssamtaka raforkubænda verður haldinn í Bændahöllinni, Hótel Sögu (salur Hekla I), laugardaginn 9. nóvember n.k. og hefst hann kl. 13:00 Dagskrá fundarins verður eftirfarandi: 1. Setning fundarins og skipun starfsmanna 2. Skýrsla stjórnar 3. Umræða um skýrslu stjórnar 4. Erindi Harðar Braga Helgasonar, frá Vatnaskilum, um ákvörðun á innrennsli til smávirkjana 5. Erindi Arnars Bergþórssonar, stjórnarform. Arnarlækjar, um Urðarfellsvirkjun 6. Erindi Tjörva Bjarnasonar, frá Bændasamtök- um Íslands, um samstarfsverkefnið, Hleðsla í hlaði 7. Fyrirspurnir til framsögumanna og orðið frjálst 8. Afmæliskaffi, áætlað kl. 15:00 í tilefni af 20 ára afmæli samtakanna 9. Reikningar LRB 2018 lesnir upp 10. Reikningar bornir undir atkvæði, og árgjald ákveðið 11. Kosning stjórnar og tveggja skoðunarmanna til eins árs 12. Önnur mál Fundarslit, (áætluð eigi síðar en 17:00). Heimasíða samtakanna: www.raforkubondi.wordpress.com

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.