Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1998, Síða 39
s
sumardögum barst til
okkar fréttatilkynning um
nýja túlkaþjónustu sem til
starfa væri tekin. Hraðar hendur
héti sú og mun sannarlega réttnefni
vera.
Samkvæmt lögum annast
Samskiptamiðstöð heyrnarlausra
og heyrnar-
skertra tákn-
málstúlkun fyr-
ir heyrnarlausa
og hefur með
ágætum gjört,
en hér er um
kærkomna við-
bót að ræða.
H r a ð a r
hendur eru á
einkar hentug-
um stað, hafa aðstöðu hjá Félagi
heyrnarlausra að Laugavegi 26, 4.
hæð, en er með öllu ótengd félaginu
sem slík. Ritstjóra þótti sem að
verðugum verkefnum væri unnið:
táknmálstúlka- og rittúlkaþjónusta,
námskeið í táknmáli og þýðing-
arvinna, þýtt af og á myndbönd.
Hann fékk því til viðtals við sig
táknmálstúlkinn og forsvarskonuna
hjá Hröðum höndum: Sigrúnu
Eddu Theodórsdóttur.
Fer hér á eftir nokkurt fróð-
leikságrip frá þessu viðtali
okkar á hásumri. Sigrún Edda sagði
að eftir langan og mikinn undir-
búning hefði allt verið frágengið á
liðnu vori.
Þær eru þrjár sem að þessu
standa: Sigrún Edda sjálf er við
táknmálstúlkun í fullu starfi, Þórný
Björk Jakobsdóttir rittúlkur sér um
rittúlkunarþáttinn og er í hlutastarfi
hjá Hröðum höndum og Anna Guð-
laug Gunnarsdóttir þroskaþjálfi og
táknmálskennari sér um táknmáls-
Hraðar
hendur
kennslu en hún er einnig í hluta-
starfi - sér um námskeiðin.
Sigrún Edda sagði tvö slík nám-
skeið þegar hafa verið haldin og
þau vel sótt. Hún vildi taka skýrt
fram að þær væru ekki í samkeppni
við Samskiptamiðstöð heldur væri
þetta viðbót við þá þjónustu við
heyrnarlausa sem fyrir væri og ekki
væri vanþörf á að auka.
Hin sígilda spurning varðandi
fjárhagshliðina kom hér upp og
Sigrún Edda sagði það meginreglu
að þær stofnanir sem túlkað er hjá
greiddu fyrir túlkunina, aðallega
sagði hún þetta vera stofnanir á
mennta- og heilbrigðissviði.
Aðaláhugamál þeirra væri þó að
leita nýrra leiða, komast að
hjá fleirum, opna heyrnarlausum
fleiri leiðir svo þeir megi enn hlut-
gengari vera á öllum sviðum. Hún
tók fram að frekar væri neitað um
túlkun en að hinn heyrnarlausi væri
látinn greiða, en fátítt að þess þyrfti.
Sigrún Edda sagðist vilja sjá miklu
meiri túlkun í sjónvarpi t.d. á
fræðslu- og forvarnarefni, einnig
túlkun almennt á ýmsum hagnýtum
upplýsingum fyrir heyrnarlausa inn
á myndbönd, tók sem dæmi bækl-
ing með skattframtali.
Margt slíkt efni væri á of flóknu
máli því málskilningur heyrnar-
lausra er mjög misjafn.
Sigrún Edda kvaðst hafa verið
túlkur sl.vetur hjá Berglindi
Stefánsdóttur skólastjóra Vestur-
hlíðarskóla. Það hefði kennt sér
margt m.a. það hve mikið skortir á
að málin séu notuð samhliða:
íslenskan og táknmálið eða talað
mál og táknmál og væru próf t.d.
gott dæmi þar um.
Sigrún Edda segist hafa byrjað
fyrir um 5 árum og henni þætti
mjög athyglisvert hversu skilningur
hefði aukist á því að heymarlausir
þurfi beinlínis á þessu máli sínu að
halda og þ.a.l. góðri túlkaþjónustu.
Talið barst að starfi táknmáls-
túlks sem ritstjóra hefur sýnst afar
krefjandi og erfitt. Sigrún Edda
ítrekaði sannleiksgildi þeirrar
skoðunar ritstjóra og gat um það í
leiðinni hve hlutleysið væri í raun
þungbært, það að mega aldrei
blanda sér í umræðuna, hversu sem
hún færi og til hvers sem hún svo
leiddi.
Af þessu tilefni gat hún þess að
skv. könnun sem gerð hefði
verið í Bandaríkjunum þá væri
lífaldur táknmálstúlka í starfi að
meðaltali 5 ár og segði það sína
sögu. Sigrún Edda segir að þær
stöllur hlakki til að takast á við
verkefnið sem sjálfstæðir aðilar og
vonar að það verði samfélaginu í
heild til góðs og þá heyrnarlausum
alveg sérstaklega. Hraðar hendur
hafa aðsetur á Laugavegi 26,4 hæð
eins og fyrr segir og hægt er að
panta túlk í síma 562-8577 og 861-
2626 eða þá með símbréfi: 562-
8577.
Sigrúnu Eddu og hennar félög-
um er alls góðs árnað og það vonað
að sá tilgangur þeirra að opna æ
fleiri aðgangsleiðir heyrnarlausra
megi sem bestan árangur bera.
Sigrúnu Eddu er þakkað fróðlegt
og gott spjall.
H.S.
Sigrún Edda
Theodórsdóttir
Svör við gátum
á bls. 35
1. a. Melur (planta).
b. Mölur (fluga).
2. Hattur.
3. Kaffibaunir.
4. Eldast.
5. Tennur.
6. Mynd.
7. Einar (karlmannsnafn)
8. Sjóveiki.
9. Þau hafa bæði betri helminginn
niðri íjörðinni.
10. Líkkista.
11.1 kjöltu minni.
12. Ekkert.
13. Buxur.
14. Varða.
15. Samviskan.
16. Grýlukerti.
Hlerað í hornum
Maður nokkur var afar ómannglögg-
ur. Eitt sinn var hann staddur erlendis
á hóteli og sem hann kemur út úr
herbergi sínu blasir þar við honum á
ganginum stór spegill. Sagan segir
að hann hafi staldrað við og tautað svo
fyrir munni sér: “Heyrðu mig nú.
Mér finnst nú endilega að ég kannist
við þennan.”
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
39