Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1998, Síða 42

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1998, Síða 42
Minning + EINAR AÐALSTEINSSON að hefur sannarlega syrt að í ranni, sumarið hefur brugðið lit sínum og ljóma í harmi slegnum hug, þegar við sjáum nú á bak okkar ein- læga og trausta samstarfsmanni. Sviplegt slys í fjarlægu landi hefur svipt okkur ágætum vini. I andrá snöggri er öll saga mikils sómamanns, sem átti svo ótalmargt ógert á akri sinna mætu áhugamála, á starfsvett- vangi sínum við hlið okkar einnig. Eftir sitjum við hljóð og hugur reikar til ljúfra, liðinna stunda með hinurn lyndisglaða og prúða félaga sem Einar var. Hér átti hann handtök mörg og mæt, mikla og fjölþætta átti hann þekkinguna, hann skildi manna best töfra tækninnar og tileinkaði sér þá, útsjónarsamur, athugull og úrræðagóður. Til hans var leitað ef eitthvað fór úr lagi, fumlaust og af ágætu innsæi kom hann öllu í samt lag á ný. Verkstjórn hans á vinnustað var til fyrirmyndar, samviskusamur og ákveðinn ef því var að skipta og hlýja hans og hjálpfýsi gerði það að verkum að undir handleiðslu hans hlaut mönnum að þykja harla gott að starfa. Einar var hugsandi maður og leitandi, hann vildi laða fram hið besta í mannssálinni, guðspekin átti hug hans og var honum mikils virði og engum kom á óvart þótt hann veldist þar til forystu fremst. A vettvangi guðspekinnar átti hann afar farsæla sögu, enda ágætlega fróður um öll þau mál og víðlesinn vel, ritaði margar greinar og var fær fyrirlesari. Guðspekin var honum hjartans mál, og öfgaleysi hennar í eilífri leit hennar að einhverju æðra og sannara höfðaði mjög til hans. Fyrir félag sitt var hann verðugur fulltrúi á erlendum vettvangi og jók þannig þjóðarhróður. Einar var maður fremur dulur og flíkaði ekki mjög innri hug né til- finningum, en einlægni hans og ágæta málafylgju mátum við mikils. Og stutt var í streng góðrar gleði, hann kunni þá list að henda góðlátlegt gaman að hlutunum, frásögn hans öll ljós og lifandi og leiftrandi átti hann tilsvörin þegar við átti. Smitandi hlát- ur hans ómar í eyrum í eftirsjá okkar nú. Við minnumst með söknuði sárum hins hjartahlýja drengskaparmanns, ljúflyndis hans og heillyndis, hversu góður félagi hann var í dagsins önn og amstri. Fyrir vinnustaði Öryrkjabanda- lagsins er missirinn mikill og ekki síður öllum þeim er fengu að eiga hann að í styrkri handleiðslu í starfi, þar munu menn sakna góðs vinar og stjórnanda. En sárastur og tilfinnan- legastur er missir eiginkonu hans og barna sem og annarra er áttu hann nánastan. Héðan eru þeim sendar innilegustu samúðarkveðjur og þess einlæglega beðið að mætar minningar um mannkostamann megi létta þeim þeirra sáru sorg. Örlögin í öllu sínu óræða víðfeðmi voru Einari vini okk- ar hugleikin sem og lífsgátan öll í sínum margbreytileik. Vakandi huga og leitandi vildi hann fá þar sem sönnust svör. Örlög grimm hafa nú bundið enda á ævigöngu þessa önd- vegisdrengs. Við lútum höfði í hryggð er við þökkum frábæra fylgd um árin öll, fylgd sem vörðuð er merl- andi minningum sem munu varðveitt- ar í huga okkar. Blessuð sé björt minning, Helgi Seljan. r Iminningunni er eins og sumir hafi alltaf verið til. Þannig er það með Einar Aðalsteinsson, tæknifræðing, að ég veit hvorki hvenær ég heyrði hans fyrst getið né man ég hvenær fundumokkarbarfyrstsaman. Mað- urinn var einhvem veginn hluti þess umhverfis sem stóð mér næst hátt á annan áratug. Við áttum samleið um tólf ára skeið eða þann tíma sem ég sat í stjórn Öryrkjabandalags Islands. Á meðan ég var formaður þess áttum við mikil og góð samskipti. Einar veitti þá vinnustofum bandalagsins forstöðu en hann hafði m.a. átt þátt í því að öryrkjar fengu störf við há- tækniiðnað hér á landi. Víða erlendis inna öryrkjar slík störf af hendi og hafði Einar jafnan mikinn áhuga á að kynna sér nýjungar á þessu sviði. Mér verður stundum hugsað til þess hversu rangt sé að setja afburða- menn á ýmsum sviðum í stjómunar- störf. Hefði Einar kannski betur notið sín við hönnun. nýsmíðar, og upp- finningar? Hugur hans stóð til þess en hann hrjáði tímaskortur sem fleiri. Einar hafði þann sið að koma til mín ekki sjaldnar en einu sinni í mánuði og skeggræða og bollaleggja um vinnustofur Öryrkjabandalagsins, en þær og starfsfólkið bar hann mjög fyr- irbrjósti. Byggðum viðýmsarskýja- borgir sem hrundu flestar vegna fjár- skorts og aðstöðuleysis. Við vomm hins vegar sannfærðir um að hægt væri að byggja þær á föstum grunni ef vilji og aðstaða væru fyrir hendi. Einar sýndi jafnan á sér nýjar hlið- ar og fáir ætla ég að þekkt hafi hann til hlítar nema Anna S. Bjömsdóttir, ljóðskáld, eiginkona hans og börn þeirra. Við Einar höfðum þekkst lengi þegar ég komst að því hversu mikill hugræktarmaður hann var. Stúlka nokkur úr austurvegi, sem unnið hafði að málefnum fatlaðra, heimsótti okkur eitt sinn hjá Örykja- bandalaginu og voru henni kynntir ýmsir þættir starfseminnar. Þegar þau Einar hittust var undir eins ljóst að þau höfðu um margt annað að tala en vinnustaði og bar þá meðal annars trúarbrögð og mannrækt á góma. Varð ég þess þá vís að hann var í stjórn Guðspekifélagsins og síðar 42

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.