Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.2001, Side 5

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.2001, Side 5
Fatlaðir, aðstandendur og stuðningsnienn fjölmenntu á Austurvöll. Á vinnustöðuni og í skólum var gefið frí, en þau Hrafn Sæmundsson og Ásta B. Þorsteinsdóttir höfðu farið dagana á undan á milli stofnana og vinnustaða til þess að hvetja fólk til dáða. 1986 var hún ráðin framkvæmda- stjóri bandalagsins. Gegndi hún því starfi fram til ársins 1998 er Helgi Seljan tók við því starfi. Stofnanir Öryrkjabandalagsins Árið 1966 var Hússjóður Öryrkja- bandalagsins stofnaður. Á vegum hans hafa verið byggðar og keyptar um 580 íbúðir um allt land og hefur þessi starfsemi skipt sköpum fyrir fjölda fólks. Lögfrœðiráðgjöf Öryrkjabanda- lags Islands var stofnuð árið 1975 en þá var Halldór S. Rafnar, lögfræðing- ur, ráðinn í hlutastarf hjá bandalag- inu. Halldór hafði orðið blindur skömmu áður. Hann átti að baki langa reynslu sem lögfræðingur og var því bandalaginu dýrmætt að fá hann til starfa. Síðar tók Jóhann Pétur Sveinsson, hinn mikli eldhugi og hugsjónamaður, við þessu starfi og gegndi því þar til hann lést árið 1994. Árið 1976 voru Vinnustaðir Önrkjabandalagsins stofnaðir þegar sett var á stofn tæknivinnustofan Örtækni. Síðan bættist við sauma- stofa árið 1981, Pijónastofan Peysan árið 1993 og ræstingadeild Vinnu- staðanna sama ár. I lok 9. áratugarins hófust afskipti bandalagsins af málefnum Glits hf. sem enduðu með því að bandalagið sat uppi með þann rekstur. Þar hafði nokkur hópur fatl- aðs starfsfólks unnið árurn santan. Ekki tókst að skjóta stoðum undir þann rekstur og var starfsemi fyr- irtækisins hætt árið 1993. Hringsjá, starfsþjálfun fatlaðra, var sett á stofn árið 1987. Undanfari hennar var Skóli fatlaðra sem Stjórn- unarfélagið, Rauði krossinn, Öryrkjabandalagið o.fl. hrundu af stað sem tilraunaverkefni veturinn 1983. Hefur sú starfsemi löngu sann- að gildi sitt og er nú stefnt að stofnun deildar Hringsjár á Akureyri. Baráttan Á áttunda og níunda tug síðustu aldar varð mikil vakning í málefnum fatlaðra. Alþjóðlegir straumar bárust þá hingað til lands og fatlað fólk skynjaði að með bættum kjörum þjóðarinnar ætti það rétt á sínum skerfi þjóðarkökunnar. Jafnréttis- ganga fatlaðra sem farin var haustið 1978 var gríðarlega fjölmenn. Sumir halda því fram að um 20.000 manns hafi tekið þátt í þessari aðgerð sem Magnús Kjartansson, fyrrum ritstjóri og ráðherra skipulagði að mestu. Um svipað leyti var farið að huga að sérstökum lögum um málefni fatl- aðra. Fyrst voru sett lög um málefni þroskaheftra árið 1979 en nokkrum árum síðar voru þau afnumin og við tóku lögin um málefni fatlaðra. Þá voru um þetta leyti einnig sett ákvæði í reglugerð um aðgengi. Nýjar stofn- anir tóku til starfa sem unnu að end- urhæfingu og fleira- svo sem Heyrn- ar- og talmeinastöð ríkisins, Blindra- bókasafn ísiands, Sjónstöð Islands og fleiri stofnanir. Farið var í auknum mæli að flytja fotluð böm út í al- menna skóla og svo mætti lengi áfram telja. Á ári fatlaðra 1981 varð umræða einnig mikil um málefni fatlaðra og í kjölfar hennar efldist mjög barátta fatlaðra fyrir auknum réttindum sín- um. Stjórnmálamönnuni sýnt í tvo heimana Þegar Framkvæmdasjóður fatlaðra var stofnaður var honum markaður sérstakur tekjustofn sem voru tekjur Erfðaljársjóðs. Frá fyrstu tíð voru tekjur sjóðsins skertar. Haustið 1986 keyrði þó um þverbak þegar þáver- andi ríkisstjórn lagði fram fjárlög þar sem gert var ráð fyrir mun meiri skerðingu en áður. Gekkst þá Öryrkjabandalagið fyrir því að stofn- að var svo kallað Byltingarráð. Ráðið skipulagði öflugan mótmælafund á Austurvelli í desember það ár og skammdegisvöku sem haldin var að Hótel Borg. Þar var því lýst yfir að þolinmæði fatlaðra væri á þrotum og rétt væri að huga að sérstöku fram- boði. Voru forystumenn Öryrkja- bandalagsins einhuga í þessari af- stöðu auk Landssamtakanna Þroska- hjálpar. Samtök aldraðra komu einn- ig nærri umræðunni. Árangur þessara aðgerða var sá að horfið var frá skerðingaráformum ríkisstjórnar- innar. En Öryrkjabandalagið lét ekki þar við sitja. Skammdegisvakan hafði sýnt og sannað að Öryrkjabandalagið og Landssamtökin Þroskahjálp áttu ýmis sameiginleg hagsmunamál og var því samstarf þeirra styrkt. Fyrir kosningar árið eftir var haldin kosn- ingavaka á Hótel Sögu þar sem for- ystumenn stjórnmálaflokkanna voru krafðir svara við ýmsum áleitnum spurningum. einkum voru húsnæðis- og kjaramál öryrkjum hugleikin. Af ýmsum ástæðum var horfið frá fram- boði að þessu sinni. í lok 9. áratugarins fór kjarabarátt- an enn harðnandi. Vegna sífelldra skerðinga á Framkvæmdasjóði fatl- aðra tókst ekki að vinna á þeim hús- næðisvanda sem blasti við fötluðu fólki og Ijölskyldum þeirra. Þá hófst ríkisstjórnin handa við að breyta lögum um almannatryggingar og þrengdi aö hag lífeyrisþega. Á síðasta áratug var enn hert á með alls konar tekjutengingum og hefur svo farið að SJÁ NÆSTU SÍÐU FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS 5

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.