Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.2001, Page 7

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.2001, Page 7
• •_f Garðar Sverrisson, formaður OBI: ÍSLENDINGA SKORTIR ALM ANNATRY GGINGAR Um miðbik síðustu aldar höfðu íslendingar eins og grann- þjóðir þeirra vaknað til vit- undar um að fátækt er fjarri því að vera óhjákvæmilegt hlutskipti hins fátæka, heldur í langflestum tilvikum ákvörðuð af samfélaginu og þeim sem með völdin fara. Ráðamenn gerðu sér vaxandi grein fyrir því að fátækt fólk hafði í fæstum tilvikum unnið til fátæktar sinnar. En jafnvel þótt svo kynni að virðast í einstaka tilfelli, bæri okkur engu að síður sam- félagsleg skylda til að gera hinum fátæka kleift að taka þátt í samfélag- inu með okkur. Sögulegasta sáttin Það er engin tilviljun að þessi skilningur á eðli og orsökum fátæktar skuli hafa borist hingað til lands í sama mund og réttindalítið verkafólk hóf að bindast skipulögðum samtök- um og gera lágmarkskröfu til mann- sæmandi lífs. Þótt mótspyrnan væri harðskeytt, mátti hún sín lítils gagn- vart þeim röksemdum sem fulltrúar fólksins höfðu fram að færa. Smátt og smátt tóku íhaldsöflin að skynja sinn vitjunartíma. Undir lok fimmta ára- tugarins var svo komið að fulltrúar þeirra höfðu ekki einungis fallist á margar mikilvægustu réttarkröfur alþýðunnar, heldur höfðu þeir að auki dregið þann lærdóm af baráttu verkalýðsaflanna að nú viðurkenndu þeir bæði í orði og verki mikilvægi öflugra almannatrygginga. Návígi okkar litla samfélags hafði kennt þeim að það var þjóðfélaginu dýrt að njörva fólk niður í vítahring fátæktar. Þeim fór að skiljast að almannatrygg- ingar voru hvorki munaður né kostn- aðarsöm yfirbygging heldur þvert á móti einn af mikilvægustu horn- steinum heilbrigðs og trausts hag- kerfis. Reynsla grannríkjanna hafði fært ráðamönnum heim sanninn um að þeim þjóðum vegnaði best sem báru gæfu til að treysta þá mikilvægu innviði sem sterkar almannatrygging- ar eru hverju þjóðfélagi. Forystu- mönnum þjóðarinnar, hvar í flokki sem þeir stóðu, varð ljóst að það beinlínis “borgaði sig” að uppræta það kostnaðarsama þjóðfélagsmein sem fátæktin er. Þannig væru stjórn- völd ekki aðeins að koma til móts við siðferðissjónarmið samtímans heldur GARÐAR SVERRISSON um leið að styrkja stoðir hagkerfisins og treysta í sessi þjóðhagslega vel- nregun. Ný tegund ráðamanna Fyrir um þrem áratugum tók hópur íslenskra skólapilta að gera sig gildandi með linnulausum árásum á þá hugmyndafræði sem liggur að baki velferðarríkinu. Eins og gengur var almennt litið á kaldhömruð sjón- armið þessara ungu manna sem frem- ur saklaus ærsl í ungliðum sem hefðu takmarkaða þekkingu á lífinu utan veggja lagadeildar Háskóla íslands. Með aukinni reynslu og þroska myndu þeir vitaskuld temja sér ábyrgari viðhorf. Sagan hefði jú sýnt að slíkur hafði verið ferill margra málsmetandi stjórnmálamanna, að með vaxandi kynnunr af margbreyti- legum veruleika mannlífsins hefðu þeir tileinkað sér aukna víðsýni og umburðarlyndi í stað þess að láta pólitískar trúarsetningar byrgja sér sýn franr eftir öllum aldri. Sá er munurinn á fyrri kynslóðum ráðamanna og þeirri sem nú um stundir fer með völd að sú síðar- nefnda virðist hvorki hafa kynnt sér að gagni né öðlast fordómalausan skilning á öllu litrófi þess samfélags sem hún býr í. Þar við bætist, sem öllu hörmulegra er, að þessir menn virðast enn haldnir sömu hugmynd- um um velferðarríkið og þegar þeir voru að stíga sín fyrstu spor í ung- liðapólitík. Gagnstætt forverum þeirra virðist lífið ekki enn hafa kennt þeim að einstaklingarnir, þar með taldir þeir sjálfir, eru ekki að öllu leyti sinnar eigin gæfu smiðir - að það er ekki aðeins eigið ágæti sem sker úr um hvort einstaklingur verður ráðherra í ríkisstjórn eða öryrki í heilsuspillandi kjallaraholu. Umfangsmiklar viðhorfakannanir hafa staðfest það sem við þóttumst vita að í afstöðu til almannatrygginga deila þessir menn ekki skoðunum með meirihluta þjóðarinnar. í vand- aðri rannsókn Félagsvísindastofn- unar Háskóla íslands kemur í ljós að yfirgnæfandi meirihluti íslensku þjóðarinnar - 8 af hverjum 10 - vilja að kjör öryrkja verði bætt, jafnvel þótt það kostaði lítilsháttar hækkun skatta, sem vitaskuld væri þó alls engin nauðsyn þegar um eina tekjuhæstu þjóð veraldar er að ræða. Hvað kjör öryrkja snertir ætti því öllum að vera ljóst að íslensk stjórn- völd ganga eins þvert á þjóðarviljann og hugsast getur í einu máli. En hvernig má slíkt vera? Hvernig má það vera að í lýðræðisríki sé gengið svo á svig við siðferðiskennd þjóðar, og það í jafnveigamiklum málaflokki sem almannatryggingar eru? A byrgð Framsóknarflokksins Til að svara þessu nægir okkur ekki að vísa til þeirra einstefnumanna sem tekist hefur að laða ffam gagnrýnis- lausa hlýðni, undirgefni og áður óþekkt hjarðeðli meðal þingmanna stærsta flokks þjóðarinnar. Því hvað SJÁ NÆSTU SÍÐU FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS 7

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.