Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands


Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.2001, Qupperneq 24

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.2001, Qupperneq 24
AF VETTVANGI GEÐFATLAÐRA Nýtt afl - nýjar leiðir Ráðstefna um málefni geðfatlaðra Dagana 21.-23. maí síðastlið- inn efndi Klúbburinn Geysir til ráðstefnu um málefni geð- fatlaðra. Auk íslendinga sóttu ráð- stefnuna norrænir fulltrúar og Bandaríkjamenn, fulltrúar sambæri- legra klúbba. Hin svokölluðu “Fountainhouse” sem þýða mætti sem uppsprettuhús á íslensku, njóta nú æ meiri vinsælda víða um heim. Hefur á vegum þeirra verið lyft Grettistaki í mál- efnum geðfatlaðra. Klúbburinn Geysir hélt ráðstefnu sína að Hótel Geysi í Haukadal og átti það vel við. Bæði er nafnið sameiginlegt og þar um slóðir streymir úr jörðu gíf- urleg orka sem ekki hefur verið beisluð. Ekki spillti það fyrir að veður var eins og best verður á kosið, sólskin og breyskju- hiti. A mánudeginum og fyrri hluta þriðjudagsins 22. maí störfuðu vinnu- hópar. Fjölluðu þeir um ýmislegt sem brennur á geðfötluðu fólki og aðstandendum þess. Voru þar m.a. bornar saman aðstæður á Norður- löndum og í Bandaríkjunum og mis- munandi aðferðir við endurhæfingu geðfatlaðra. Þá var einnig rætt um umfjöllun íjölmiðla og hvernig snúa mætti við hinni neikvæðu umræðu sem oft er viðhöfð um málefni geð- fatlaðra. Eftir hádegi 22. maí voru fyrir- lestrar haldnir sem öllum voru opnir. Fyrirlesarar voru þau Elín Ebba Asmundsdóttir, yfiriðjuþjálfi á geð- deild Landspítala háskólasjúkrahúss og John Bowish, fyrrum heilbrigðis- ráðherra Breta. Ekki er allt sem sýnist í erindi sínu fjallaði Elín Ebba Ásmundsdóttir, iðjuþjálfi um at- vinnuendurhæfingu geðfatlaðra. í upphafi erindisins stökk hún upp á borð og lagði með því áherslu á viðhorf fólks til þess sem kalla mætti afbrigðilega hegðun. Ymislegt í framkomu og hegðun geðfatlaðra samþykkir samfélagið ekki. Elin Ebba sagði að það að geta stundað vinnu, notið tómstunda og elskað sé tákn heilbrigðis. Þörfin fyrir að stunda ýmsa iðju er okkur nauðsynleg og tengist því að lifa af. Vinna fólks skapar því hlutverk, býr til ramma um tilveru þess, hefur áhrif á sjálfsmynd, gefur tekjur og veitir stöðugleika. Sá sem rnisst hefur vinnuna veit hvaða áhrif það hefur á stöðu hans í samfélaginu og lang- flestir sem stríða við geðsjúkdóma, hafa misst vinnuna. Erlendar rannsóknir sýna að 85 af hverjum 100 geðíotluðum einstakl- ingum eru án atvinnu. Taldi Elín Ebba að hið sama ætti við hér á landi. Ýmsir heilbrigðisstarfsmenn nota vinnu aðeins í meðferðarskyni en ekki sem lokatakmark. „Þegar ég kom hingað um 11-leytið í morgun sá ég að flestir þátttakendurnir á þessari ráðstefnu höfðu eitthvert ákveðið hlutverk. Öllum er nauðsynlegt að hafa eitthvert hlutverk í lífinu. Vinn- an eykur sjálfstraust fólks og sjálfs- álit. Þetta er í fyrsta sinn sem ég hef verið viðstödd ráðstefnu hér á landi þar sem neytendur geðheilbrigðis- þjónustunnar eru þátttakendur í um- ræðu um sjálfa sig ásamt fagfólki og stjórnmálamönnum. Ég vona að þetta sé upphafið að breyttum áherslum og að í framtíðinni átti menn sig á að sam- ræður milli stjórn- málamanna, fagfólks og neytenda myndi nýtt afl til að sigrast á áður óyfirstíganleg- um hindrunum.” Rétturinn til aó vera öðruvísi en aðrir. Allir eiga rétt á starfi, ekki einungis þeir sem eru minnst veikir. Störfin eiga að miðast við hæfileika og áhuga hvers og eins. Stuðningur skiptir miklu máli. Stuðningur frá að- standendum er gífurlega mikilvægur og hingað til hefur skort eftirfylgni frá fagfólki. Elín Ebba lagði áherslu á að menn yrðu að aðlagast fotlun sinni og að samfélagið yrði að fræðast meira um geðfötlun. Hún taldi ein- ungis hægt að ráðast gegn fordómum með aukinni fræðslu. Fyrir áratug hefði fólki með geðfötlun verið ráðið frá því að greina frá sjúkdómi sínum en sá tími væri vonandi liðinn. Meginvandi samfélagsins gagnvart geðfötluðum er krafan um svokallaða „eðlilega” hegðun. Takmarkið á ekki að vera að gera fólk „eðlilegt” heldur leggja áherslu á réttinn til að vera öðruvísi. Raunhœfar væntingar „Oft eru gerð þau mistök að menn vænta of mikils árangurs í at- vinnutengdri endurhæfingu. Menn Styrmir Gunnarsson, Maria Louise og John Bowish. 24
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.