Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.2001, Síða 36
KERTAVERKSMIÐJAN
HEIMAEY
Lifandi Ijós
Þegar ég var barn heimsótti ég oft
ömmu mína og langömmu, en þær
bjuggu saman í Skuld í Vestmanna-
eyjum. Langamma eða amma litla,
eins og við kölluðum hana, hafði
gjarnan kveikt á kerti á borðinu þótt
hábjartur dagur væri. Ég, pottorm-
urinn, vildi gjarnan eiga við ljósið.
„Þú mátt ekki kvelja ljósið”, sagði
langamma þá. Síðan hefur kertaljós
ætíð verið mér sem lifandi ljós enda
kalla margir kertaljósin þessu nafni.
„Mér finnst koma kuldi frá þessu
ljósi”, sagði gömul kona í Vest-
mannaeyjum þegar fyrst var kveikt á
rafmagnsljósum í kaupstaðnum fyrir
hart nær heilli öld. En nú eru raf-
magnsljósin á hverju heimili og
vinnustað landsins og langflestir geta
ekki án þeirra verið.
Kertaljós og klœðin rauð
Fyrir jólin syngja flestir um kerti og
spil, kerti koma fyrir í sálmum, alls
kyns söngvum um Grýlu, jólagjafir
og þjóðsögum þar sem Jesúbarnið
eða jólin koma við sögu. í íslenskum
bókmenntum frá síðustu öld er öðru
hverju talað um tólgarkerti og erlend,
lituð kerti sem þóttu hæfileg til þess
að skreyta með híbýli á jólum. Elsta
heimild sem ég hef séð um kerti er í
Harðarsögu og Hólmverja, en þeir
fóstbræður, Hörður og Geir, þurftu
vax til þess að lýsa sér í haug Sóta
víkings og varð ljósið draugnum of-
viða.
Þannig er það með kertin. Þegar
menn vilja eiga kyrrðarstund eða
skapa hjá sér hátíðarblæ er gripið til
kertanna. Þau eru því orðin jafn-
ómissandi og áður þótt í annarri
mynd sé.
Mig hafði lengi langað til að skoða
hvemig kerti væm gerð. Ég vissi að
hér á landi höfðu starfað kerta-
verksmiðjur frá því í byrjun síðustu
aldar. Ég mundi einnig eftir tveimur
vernduðum vinnustöðum sem fram-
leiddu kerti - Sólheimum í Grímsnesi
og Kertaverksmiðjunni Heimaey. Ég
hafði hins vegar aldrei gert mér erindi
til að skoða kertaverksmiðjuna í Vest-
Sveinn Pálmason, verkstjóri, hefur
unnið í Kertaverksmiðjunni
Heimaey frá árinu 1993.
Ljósmyndir: Elín Arnadóttir
mannaeyjum þótt ég ætti stundum
erindi til Eyja. En nú knúði ritstjórinn
í mér áhugamanninn til þess að líta
inn í verksmiðjuna. Við Elín Arna-
dóttir, ljósmyndari heimsóknarinnar,
mæltum okkur því mót við nýráðinn
Við erum mjög stolt of
okkar kristaltæra loga,
sem brennur hljóðlega
og fallega. Við notum
aðeins bestu fáanlegu
hráefni.
framkvæmdastjóra, Jóhönnu Hauks-
dóttur og samstarfsfólk hennar.
Einangrunin veldur vandrœðum
Sveinn Pálmason, verkstjóri, hefur
unnið í kertaverksmiðjunni síðan
1993. Hann sér um að stjórna fram-
leiðslunni og raða fólki til starfa.
„Við framleiðum alls konar kerti.
Við höfum sárafá hliðarverkefni. Auk
kertanna setjum við saman hina
sívinsælu ælubakka fyrir Herjólf.
Áður saumuðum við talsvert af pok-
um undir skreið en nú er skreiðar-
vinnslu nær alveg hætt í Eyjum. Mér
skilst að það litla af hausum sem er
framleitt sé sent upp á land. Það
verður að segjast eins og er að ein-
Jóhanna Hauksdóttir, forstöðu-
maður Kertaverksmiðjunnar
Heimaeyjar.
angrunin gerir okkur erfitt hérna í
Eyjum. í Reykjavík geta verndaðir
vinnustaðir fengið ýmiss konar pökk-
unarverkefni en því er ekki að heilsa
hér.”
Vandað handbragð
Þegar forvitnast er um kertafram-
leiðsluna er okkur réttur lítill og
skemmtilegur kynningarbæklingur
um kertaverksmiðjuna. Þar kemur m.
a. fram að kertin í Kertaverksmiðj-
unni Heimaey eru gegnumlituð. Þau
eru framleidd eftir gömlum hefðum
handverksmanna og því mjög vand-
lega unnin. Þau eru til í ótal litum.
Þessir fallegu litir eru mjög nákvæm-
lega þróaðir undir ströngu gæðaeftir-
liti. Vaxið, parafínið og gerð kveiks-
ins hefur verið vandlega samlagað til
að fá sem lengstan brennslutíma og
sem bestan loga. „Við erum mjög
stolt of okkar kristaltæra loga, sem
brennur hljóðlega og fallega. Við not-
um aðeins bestu fáanlegu hráefni.”
Kertin eru framleidd í tölvustýrðri
dýfingarvél. Kveikurinn er þræddur á
sérstakar grindur sem er dýft ofan í
vaxið. Framleidd eru 1032 kerti í
senn og eftir rúman klukkutíma hafa
þau náð réttri stærð. Þá eru grind-
urnar teknar af vélinni og kertin látin
kólna. Sveinn tjáði okkur að hráefnið
kæmi yfirleitt frá Danmörku, en
vaxið er þýskt. Eitt sinn var reynt að
36