Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.2001, Page 37
Grindur úr dýfingarvél. Kertin eru ekki steypt heldur er kveiknum dýft
í pott þar sem vaxið kraumar. Síðan eru kertin þurrkuð og snyrt til.
nota kínverskt vax en það gaf ekki
jafngóða raun og hið þýska.
- Nú eru Heimaeyjarkertin þekkt
fyrir að renna lítið. Hver er galdurinn
á bak við þetta?
„í sambandi við bruna kertanna
virðast dýfðu kertin korna betur út en
kerti sem eru steypt. Það þarf að
blanda vax, parafín og litarefni í rétt-
um hlutföllum; auk þessa hefur
kveikurinn mikið að segja. Við vorum
með talsvert af steyptum kertum en
nú erum við að framleiða einstök
kerti fyrir kirkjur sem eru steypt og
píramíðakerti sem voru um tíma
mjög vinsæl.”
Sveinn réttir mér píramíðakerti með
skemmtilegri áferð. Hann segir að
yfirborð kertanna sé burstað. Einnig
eru þau framleidd með sléttri áferð
eða hraunaðri. Mótin fyrir þessi kerti
eru gerð í vélsmiðjunni Þór í Vest-
mannaeyjum
Þroskaþjálfi með
myndlistarmenntun
Þetta var fyrsti dagurinn hennar
Jóhönnu Hauksdóttur í starfi for-
stöðumanns kertaverksmi ðj unnar.
Hún hefur unnið um árabil að þjón-
ustu við börn en fyrir nokkrum árum
fór hún í myndlistarnám og er nú
nýflutt til Eyja eftir 19 ára ijarveru.
„Þetta er fyrsti starfsdagurinn minn
og þess vegna er ég dálítið græn”,
segir hún, “en ég vona að starfs-
reynsla mín á öðrum vettvangi nýtist
í þessu starfi. Mér líst mjög vel á
aðstöðuna hérna, andrúmsloftið er
gott og ég hlakka til að takast á við
verkefni framtíðarinnar.”
Þá langar mig að forvitnast um
starfsfólkið.
„Hér starfa mjög ólíkir einstakling-
ar, bæði fólk með talsverða starfsgetu
og aðrir sem hafa minni starfsgetu.
Meirihluti starfsmanna er með ein-
hverja þroskahömlun. Fatlaðir starfs-
menn eru allir í hlutastarfi frá 20 upp
í 50%. I kertaverksmiðjunni eru 10
heil stöðugildi fyrir fatlaða og 3,25
vegna stjórnunar.”
Úr sögu Kertaverksmiðjunnar
Heimaeyjar
Árið 1980 var ákveðið að koma á
stofn vernduðum vinnustað í Vest-
mannaeyjum. Þeir sem að því stóðu
voru: Sjálfsbjörg Vestmannaeyjum,
Vestmannaeyjadeild S.Í.B.S., Vest-
mannaeyjadeild Rauða kross íslands,
Þroskahjálp Vestmannaeyjum, Vest-
mannaeyjabær, verkalýðsfélögin í
Vestmannaeyjum og Vinnuveitenda-
félag Vestmannaeyja.
í júlí 1981 á alþjóðaári fatlaðra var
fyrsta skóflustungan tekin og var það
Jón Karlsson sem það gerði og hófust
byggingaframkvæmdir strax í kjöl-
farið. Byggingin var fjármögnuð af
stofnaðilum og hinu opinbera auk
útgerðarfyrirtækja, ýmissa félaga-
samtaka og einstaklinga.
Kertaverksmiðjan Heimaey tók til
starfa 6. september 1984. í upphafi
unnu þar 6-10 manns, en það byggð-
ist þó á sölu afurða hve margir unnu
á staðnum og oft voru langir biðlistar
eftir störfum. Með aukinni markaðs-
setningu og söluátaki hefur starf-
semin eflst og fjölbreytni í fram-
leiðslu aukist. Um þessar mundir
starfar 21 einstaklingur með fotlun
hjá verksmiðjunni og biðlistar eru
nærri tæmdir.
Hvað er verndaður
vinnustaður?
Verndaður vinnustaður nefnist sú
Kertunum er pakkað strax að lokinni framleiðslu til
þess að þau brotni síður.
Kertin eru burstuð með sérstökum vírburstum til
þess að fá fram kornótta áferð.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
37