Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.2001, Side 42
Hringsjá
Útskrift vorið 2001
Ágœtu nemendur, sam-
starfsfólk, stjórnarmenn
og aðrir góðir gestir
ildur vetur er að
baki, sumar í nánd,
og komið að því að
fagna, ekki aðeins sumri,
heldur einnig árangri erfiðis-
ins, vinnu vetrarins.
Fjórtánda starfsári er nú að
ljúka, því sjötta hér í Hring-
sjá. Tíminn flýgur svo sann-
arlega hratt.
Fuglasöngur og morgunsól
vakti okkur í vorönnunum og
hefur jafnvel smogið inn í
svefn prófþreyttra nemenda
og gefið fyrirheit um sólríkt
sumarfrí. Smá kuldahret
síðustu daga hefur sjálfsagt
aðeins aukið þrána eftir
sumrinu.
Hér hefur margt á dagana
drijið í vetur sem endranœr
Nýr hópur 17 nemenda
kom inn í janúar, einn þeirra
slóst í hóp annarrar annar og
nú lýkur vetri þannig, að alls
luku 38 vorönn þar af 35 í
reglulegri dagskrá starfs-
þjálfunarinnar og 3 í stöku grein.
15 luku fyrstu önn, 12 annarri önn
og 8 útskrifast hér í dag að loknu
fullu þriggja anna námi. Þá munu alls
197 nemendur hafa útskrifast með
þessum formlega hætti frá upphafi.
Og 273 lokið a.m.k. einni önn.
Vetrarstarfið hefur að mestu verið
venjubundið, lært og unnið ötullega í
hinum hefðbundnu greinum, meðal
þeirra teljast nú bæði leikræn tjáning
og myndlist sem upphaf áttu á
námskeiðum Tyllidaga. Þeir voru nú
sem fyrr haldnir á vorönn og þá vikið
frá vanabundnum störfum. Hæst ber
rútuferð með tilheyrandi ijöldasöng,
þar sem haldið var austur að Nesja-
völlum, við fengum skemmtilega
kynningu á virkjun gufuafls og sögu
Hitaveitunnar. Síðan var farið að
Ölfushóli þar sem stigið var á hestbak
og færðist þá heldur betur fjör í
leikinn, sprett úr spori við mikinn
Frá útskrift 18. maí síðastliðinn.
fögnuð. Aðra daga var litið inn á
Listasafn íslands. Dansað, spilað og
keppt í keilu.
I lok Tyllidaga var haldin árshátíð,
þar áttum við góða stund við söng og
dans og nemendur gerðu kennara
óspart að athlægi í ýmsum leikjum,
en síðast en ekki síst var happdrætti,
sem lengi verður í minnum haft svo
veglega var að því staðið og vinn-
ingar glæsilegir. Hafið þökk fyrir
góða skemmtun nemendur góðir.
í ljósi þess hve Tyllidagar þykja oft
takast vel og vera skemmtileg leið til
að kynnast á annan hátt en yfir
daglegu puði, þá ættum við að stefna
að einhverju slíku einnig á haustönn.
Atvinnurekstur nemenda
er liður í starfinu
Að áliðinni haustönn tóku þau, sem
nú eru að útskrifast, við rekstri
Bitabæjar, frábærar kleinurnar þeirra
verða lengi í minnum hafðar.
Fljótlega á vorönn létu þau
svo annarri önn reksturinn
eftir og reka þau nú Kaffi-
húsið, eins og þau kjósa að
nefna það, við góðan orðstír,
hugmyndaflug í sölu- og
eldamennsku, góða sam-
vinnu og þrautseigju í störf-
unum.
En sem fyrr er það ekki
tekið út með sældinni einni,
heldur kostar mikla vinnu,
blóð, svita og tár mætti
kannski segja. Þarna reynir á
marga þætti auk samvinnu
eins og skipulag, ábyrgð og
úthald.
Fréttaþjálfinn sá dagsins
ljós á Netinu nú í maí. Það er
blaðaútgáfa nemenda þriðju
annar. Veglegt blað og ber
gott vitni þeim sem það hafa
unnið, þau geta verið stolt af
þessu blaði. Heimasíðugerð
hefur bæst á námsskrána og
gaman var að fylgjast með
þeim áhuga og ánægju er
ríkti við netsmíðina. Surnir
fundu þarna jafnvel sitt
sterka svið.
Listrœnir
nemendur
Víða má sjá afrakstur myndlistar-
iðkunar nemenda hér um húsið og sjá
má að listfengið er mikið. Til stendur
að halda stutt námskeið, samþætt
leiklist og myndlist fyrir nemendur
með leiðsögn Gígju og Sólveigar í
byrjun júni. Þetta er til viðbótar iðkun
þessara greina yfir veturinn. Tilefnið
er að “Menningardagar í Túnfæti”
verða haldnir dagana 8. - 15. júní. Þá
munum við verða með opið hús þann
11. júní, kynna starfsemi Hringsjár og
bjóða gestum að njóta listarinnar með
okkur. Auk þess sem Kaffihúsið
verður rekið og það vonandi úti í sól-
skininu.
Eg vil hvetja alla til að njóta þessara
daga með okkur hér í Hátúni 10 og
12, en hátíðin verður sett, eins og fyrr
segir þann 8. júní.
Þann 18. maí síðastliðinn, á sólríkum föstudegi,
útskrifuðust 8 nemendur af þriðju önn Hringsjár,
starfsþjálfunar fatlaðra. I miðri útskriftarræðu
skólastjórans, Guðrúnar Hannesdóttur, varð
þeysidögg svo að um sinn mátti vart heyra orð
Guðrúnar. En brátt skein sólin í heiði á ný og
allir greindu orðaskil. Skólastjóranum fipaðist
alls ekki heldur hafði orð á því að um gróðurskúr
vœri að ræða, táknræna fyrir daginn og tilefni
hans.
42