Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.2001, Page 44

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.2001, Page 44
Vegvísir, myndverk eftir nemendur fyrstu annar í Hringsjá, sérstaklega unnið fyrir menningarhátíðina “I túnfætinum”. Myndir: Hartmann Guðmundsson auðvitað má heldur ekki fara sér óðslega með svo dýran málm, við þurfum að umgangast auðlindir af varkárni. En ef til vill er þetta gull einmitt haldbesta veganestið til framtíðar. í Hringsjá getum við fært ykkur tækin, tæknina, stuðlað að færni ykkar, skapað skilyrðin. En trúin á ykkur sjálf, þann mann sem þið hafið að geyma og það sem þið hafið fram að færa, auðvitað af fullu raunsæi, er nauðsynlegt svo allt hitt komi að einhverju gagni. Hver og einn hefur unnið simt sigur Eg veit að prófálag reynist sumum erfitt, en ég segi það enn og aftur að þið hafið öll staðið ykkur sem hetjur á einn eða annan veg og unnið ykkar einkasigra smáa og stóra. Þegar þið fáið einkunnir ykkar vil ég biðja ykkur að hafa í huga að þær eru enginn algildur mælikvarði og segja einar sér langt frá því alla söguna. Þið vitið best sjálf hvað þið hafið lagt af mörkum, hvað hefur áunnist og hvað má bæta. C einkunn hjá einum getur þýtt meiri sigur en A einkunn hjá öðrum. Nemendur á fyrstu önn Þið hafið unnið af aðdáunarverðum krafti þessa önn, vinnusemin stund- um svo mikil að við lá að þyrfti að reka ykkur sum frá bókum og tölvum og segja eins og við börnin: “farið nú út að leika ykkur”. Róðurinn hefur ekki alltaf verið auðveldur enda eðlilegt að þurfa á sig að leggja til að ná settu marki. Þið hafið tekið hressilegan sprett og unnið áfangasigur. Við hlökkum til frekari samvinnu á næsta spretti í haust. Nemendur annarrar annar Þið hafið unnið vel og af miklum metnaði, en þó oftast lítillæti. Góður hópur sem frábært hefur verið að fylgjast með dafna og blómstra, hver á sinn hátt. En það hefur ekki alltaf blásið byrlega og stormurinn stund- um í fangið. Þið haldið ótrauð áfram og sigrist á hverri þraut og reynist hvert öðru vel. Það verður gaman að hitta ykkur aftur næsta haust og hvetja ykkur hressilega og styðja á lokasprettinum, þið getið jafnvel enn betur. Nemendur fyrstu og annarrar annar, þið eruð svo boðuð til leiks á ný í haust og munuð þá aðstoða okk- ur við að taka á móti nýgræðingnum, sem þörf mun hafa fyrir reynslu ykkar og stuðning. Listi 70 umsækj- enda bíður nú afgreiðslu fyrir inntöku á haustönn! Rúm verður fyrir í hæsta lagi 16 nýja nemendur, svo hér er erfitt verk fyrir höndum næstu daga. Þá eruð það þið, ágœtu þriðju annar nemendur og útskriftaraðall Nú er komið að því að senda ykkur héðan úr garði. Þið hafið verið á margan hátt innbyrðis ólík og því á stundum erfiður hópur við að eiga. En um leið yndislegir einstaklingar með sterka samkennd og góðan stuðning hver annars, þegar á þarf að halda. Og varanleg vinabönd hafa verið bundin. Þið hafið mörg fengið stóran skerf af erfiðum þrautum að glíma við en unnið ykkar sigra hvern af öðrum. Eg þakka ykkur samveruna, mér eru minnisstæðar þær stundir er ég hef fengið að kynnast gullinu sem í ykkur býr. Á þessari stiklu verður viðdvöl ykkar ekki lengri. Vonandi reynist veganestið ykkur haldbært og notadrjúgt. Þið vitið að þið eigið okkur áfram að, þótt útskrift sé lokið. Marín mun kalla ykkur saman til fundar í haust og alltaf munuð þið velkomin. Eg vona að ykkur vegni vel í hverju því sem þið takið ykkur fyrir hendur. Við sendum ykkur úr garði með ósk um bjarta framtíð. Guðrún Hannesdóttir. 44

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.