Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.2001, Síða 46
HLJÓÐBÓK
FRAMTÍÐARINNAR
Blindrabókasafn
íslands er ríkis-
stofnun sem
hefur það lögskipaða
hlutverk að sjá blind-
um, sjónskertum og
öðrum þeim sem ekki
geta fært sér hefð-
bundið lestur í nyt, fyr-
ir alhliða bókasafns-
þjónustu. Safnið þjónar
nokkur þúsund ein-
staklingum á ári auk
þess sem lánað er til
fjölda stofnana (bóka-
safna, sjúkrahúsa, elli-
heimila o.s.frv.).
Stærstur hluti lánþega er eldra fólk en
stór hluti er námsmenn; blindir, sjón-
skertir og lesblindir. Námsmenn eru
forgangshópur í starfsemi safnsins og
þjónustan við þennan hóp er mjög stór
hluti af starfsemi þess.
A safninu er framleitt nær allt það
efni sem lánað er út. Hin prentaða bók
er þá sett á það form sem talið er henta
lánþeganum. Framleiddar eru hljóð-
bækur auk bóka á blindraletri. Hljóð-
bókunum er að langmestu leyti dreift
sem hljóðsnældum.
Þetta er í samræmi við útlán allra
stofnana af sama tagi sem ég þekki til
á Norðurlöndum og eru okkar nánustu
samstarfsaðilar. Því er ekki að leyna
að nokkur þrýstingur er frá lánþegum
okkar um að dreifa bókunum sem
geisladiskum. Auðséð er að hljóð-
snælduformið verður ekki framtíðar-
miðill en hver er staðan í sambandi
við geisladiska?
Það hefur ýmislegt verið fundið að
geisladisknum sem framtíðarmiðli allt
frá því að hann kom fram. Hvað
varðar hann sem miðil fyrir hljóðbók-
ina má segja að takmarkað geymslu-
rými hans sé einn ókostur en annar er
sá að hann hefur ekki þótt bjóða upp á
nægilega möguleika til þess að
“fletta” í bókinni á einfaldan hátt.
Stóra kosti verður aftur að nefna, t.d.
að segja má að flestir eigi geislaspilara
og þeir eru til mjög handhægir. Mark-
aðssetning hans sem staðals hefur tek-
ist mjög vel.
Því má spyrja af hverju hljóð-
bókasöfn um allan
heim hafi tekið
honum svo fálega.
Svarið held ég að sé
fólgið í því að menn
hafa viljað horfa til
lengri framtíðar því
tæknin býður svo
sannarlega upp á betri
kosti til að framreiða
efni hljóðbóka.
Blindrabókasafnið
hefur nú veðjað á
framtíðarkost sem er
svokallaðar DAISY-
bækur. Safnið hefur
tekið þátt í þróun-
arstarfi um nokkurra ára skeið. Hér á
eftir mun ég reyna að gera grein fyrir
því hvernig DAISY bókarformið er
hugsað og ræða lítillega kosti, galla og
framtíðarmöguleika þess og að auki
reyna að gera nokkra grein fyrir fýrir-
ætlunum okkar hér á Blindrabókasafni
íslands.
Eins og sakir standa eru DAISY-
bækur fýrst og fremst hljóðbækur sem
hægt er að lesa með þar til gerðum
forritum í Windows umhverfi eða í
sérhönnuðum spilurum og þeim er
dreift á geisladiskum. Helsti munurinn
á DAISY-bók og hljóðbók á snældu
eða “venjulegum” geisladiski er sá að
hægt er umgangast bókina á svipaðan
hátt og prentgrip. Lesandinn getur t.d.
byrjað að lesa á blaðsíðu 293, ráðið
lestrarhraða, stokkið úr nafnaskrá yfir
í ákveðinn kafla, hlustað eingöngu á
aðalfyrirsagnir, merkt staði í bókinni
og svo framvegis. Aðalatriði er sem-
sagt að herma má byggingu bókarinn-
ar sem lesin er að miklu leyti.
Annað er að með sífellt betri tækni
til að “þjappa” hljóðskrám má koma
fyrir allt að 50 klst af lesnu efni á
einum geisladiski. Til samanburðar
má nefna að á hljóðsnældurnar sem
við notum hér á Blindrabókasafninu
má koma fyrir einni og hálfri klst. og
á venjulegan geisladisk 114 til 120
mínútum. Nefna verður að þetta er há-
mark og hljóðgæði eru verulega farin
að versna þegar svona langt er gengið
í að þjappa.
Það er auðsætt að þessir möguleikar
skipta miklu máli þegar verið er að
lesa flóknar bækur. A Blindrabóka-
safninu hafa eins og er aðeins verið
lesnar námsbækur þar sem kostir
DAISY eru ótvíræðir.
Það er markmið safnsins að öllum
námsbókum sem lesnar verða í vetrar-
lok 2001-2002 verði dreift sem
DAISY-bókum. Þá er þegar byrjað að
gera tilraunir með að færa eldra náms-
efni yfir á DAISY-form. Eins og er
hefur ekki verið tekin ákvörðun um
hvenær eigi að byrja á að dreifa al-
mennum bókum sem DAISY-bókum,
hvort boðið verði upp á bækur bæði á
DAISY-formi og á hljóðsnældum.
Það land sem við horfum helst til í
sambandi við framtíð hljóðbók-
arinnar er Svíþjóð. Nú í haust reikna
Svíar með að yfirtaka DAISY-hljóð-
bókarinnar verði komin á góðan skrið.
í júlí á þessu ári voru meira en 3.300
titlar tilbúnir til útláns. Nýjar bækur
verða lesnar sem DAISY-bækur og þó
hægt verði að fá bækurnar áfram sem
hljóðsnældur er lengri biðtími eftir
þeim enda eru þær framleiddar eftir á.
Stefnan þar er að DAISY-bækumar
ryðji hinum smátt og smátt írá. Þá
ákvörðun emm við ekki tilbúin að
taka strax, segja má þó að við horfum
vonaraugum til tilraunar Svía og gangi
hún vel munum við fylgja eftir. En þó
við horfum sérstaklega til reynslu Svía
er ýmislegt að gerast annars staðar.
Japanir hafa framleitt um 10.000 titla
á DAISY-formi, NLS (National
Library Service) í Bandaríkjunum
tekur þátt í þróunarvinnu og bundnar
em miklar vonir við að þar verði
DAISY staðallinn þeirra val. Meðal
annarra landa sem taka þátt í þróun-
arstarfinu eru Ástralía, Nýja Sjáland,
Kanada, Holland, Þýskaland, Bret-
land, Spánn, Sviss, Noregur, Dan-
mörk, Finnland, Singapúr og Kól-
umbía.
Segja má að þær DAISY-bækur sem
framleiddar eru í dag séu af annarri
kynslóð DAISY-bóka. Grunnhug-
myndin kemur frá Sviþjóð þar sem
þegar árið 1988 var farið að vinna
gmnnvinnu við þróun hljóðbóka fyrir
framtíðina. Tvennt sáu menn fljótt.
Einar Hrafnsson, starfs-
maður Blindrabókasafns
Islands.
46