Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.2001, Blaðsíða 48

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.2001, Blaðsíða 48
Nýr framkvœmdastjóri Styrktarfélags vangefinna Nýlega tók Þóra Margrét Þórarinsdóttir, land- og rekstrarfræðingur við stöðu framkvæmdastjóra Styrktarfélags vangefinna. Þóra fæddist í Reykjavík 1959 en ólst upp á Höfða í Dýrafirði. Foreldrar hennar eru Þórarinn Sig- hvatsson og Charlotta Rist. Hún er gift Gunnari Sigurjónssyni, sókn- arpresti í Digraneskirkju í Kópavogi og eiga þau tvö börn. Þau hjónin hafa búið í Kópavogi frá ágúst 1995 en þar áður bjuggu þau á Skeggjastöðum í Bakkafirði um 7 ára skeið. Þar fékkst Þóra við ýmislegt; var framkvæmdastjóri saltfiskverk- unar í nokkur ár og stofnaði ijar- vinnslustofuna Skeggja. Meðal verk- efna Skeggja var skráning gagna fyrir Þjóðminjasafn íslands. Þá kenndi hún við grunnskólann á Bakkafirði þegar þurfti og tölvuvæddi Skeggjastaða- hrepp, en þar var hún um tíma skrif- stofustjóri. Það er því greinilegt að Þóra hefur lagt gjörva hönd á margt. Ritstjórinn varpaði því fram hvort ekki hefði verið erfitt fyrir svona athafnasama borgarkonu að vera í jafnlitlu og einangruðu samfélagi. „Eg ætla nú aðeins að leiðrétta þetta með einangrunina,” sagði Þóra. „Bakkaijörður er að vísu lítill en ekki einangraður. Það er ótrúlega margt fólk sem ferðast um þetta horn landsins og gerir sér far um að koma þangað. Hafið, fámennið og þessi mikla víðátta laðar fólkið að. Þarna eru andstæður miklar. Þegar við komum í hreppinn voru 134 íbúar í þorpinu og í sveitinni. Kirkjusókn var framúrskarandi góð. Það komu sjald- an færri en 100 til kirkju þegar mess- að var. Fyrir nokkrum árum var sett ratsjárstöð á Gunnólfsvíkurfjall. Rat- sjárstofnun byggði íbúðarhús handa starfsmönnum sínum í þorpinu svo að þegar við fluttum frá Bakkafirði bjó þar 161 maður. En úr því að þú minntist á ein- angrunina áðan vil ég geta þess að á veturna eru samgöngur mestmegnis við Vopnaijörð en þangað eru 35 km. Eitt haustið kenndi ég þar tölvufræði en á Vopnafirði var þá útibú frá Þóra Margrét Þórarinsdóttir Ljósmynd: Hartmann Guðmundsson Það er mikils virði að fá að taka þátt í að vera brautryðj- andi og skapa fötluðu fólki betri ævi. Starf þroskaþjálfa mætti vera betur metið. Allt of fáir vita hvað þaó tekur á bœöi andlega og líkamlega (hversu erfitt það er). Vonandi bera menn gæfu til þess íframtíðinni að ræðast við nógu snemma til þess að koma í veg fyrir að atburðir eins og verkfallið í sumar endurtaki sig. Menntaskólanum á Egilsstöðum.” Þóra er með B.S. próf í landafræði frá Háskóla íslands. Að námi í landa- fræði loknu tók hún eitt ár í markaðs- fræði og stjórnun en fór síðan út í atvinnulífið. „Eftir að ég kom frá Bakkafirði settist ég á skólabekk í Endurmenntunarstofnun Háskóla Islands og tók þriggja anna nám í rekstrar- og viðskiptafræði. Fyrstu önnina vann ég ekkert með náminu en í ágúst 1996 byrjaði ég sem íjár- málastjóri Menntaskólans v. Hamra- hlíð svo að þetta varð talsvert átak.” Aldrei að tvínóna við hlutina Þóra sá stöðu framkvæmdastjóra Styrktarfélags vangefinna auglýsta í vor, sótti um, var boðuð í viðtal á mánudagsmorgni og daginn eftir samþykkti stjórn félagsins formlega að ráða hana til starfa. Það voru því greinilega höfð snör handtök hjá stjórnarmönnum. - Hefur þú unnið áður að málefnum fatlaðra? „Þegar við hjónin vorum á Bakkafirði kynntumst við einstakl- ingum sem þurftu á þjónustu að halda vegna fötlunar og annarra ástæðna. Auk þess segir maðurinn minn að ég hafi 15 ára reynslu af að vera gift sér.” Er prestsembættið þá einhvers konar fötlun? „Nei, en það er þess eðlis að óvænt atvik geta komið upp og maður verður að læra að bregðast við ýmiss konar aðstæðum. En með öðrum orðum, þá hef ég ekki kynnst málefnunr fatlaðra eða þroskaheftra sem heild en þekki til fatlaðra ein- staklinga.” Hver eru helstu verkefnin fram- undan hjá Styrktarfélagi vangefinna? „Hjá mér snýst tilveran þessa dagana um að koma mér inn í þetta rekstrarumhverfi. Annars er margt framundan. Það er stöðugt verið að skoða hvernig megi bæta þjónustuna og fara nýjar leiðir. Þá er stefna og markmið félagsins í stöðugri endur- skoðun. Þegar ég kom í fyrsta viðtal- ið varð mér ljóst að starfið væri afar fjölbreytilegt og margt spennandi í gangi. Félagið hefur oft rutt brautina fyrir nýjungar og það er mikils virði að fá að taka þátt í slíku starfi og skapa fötluðu fólki betra umhverfi og betri ævi. Félagið er með afar fjöl- breytilegan rekstur. Við starfrækjum dagheimili fyrir börn, hæfingarstöð og verndaðan vinnustað, 8 sambýli og erum þar að auki með stuðning við fólk sem býr sjálfstætt. Hjá okkur starfar einnig félagsráðgjafi sem að- stoðar skjólstœðinga okkar og þeirra nánustu í ýmsum málum og leitar nýrra og/eða endurbœttra leiða i þjónustu við fatlaða og þeirra að- standendur. Félagið er með þjón- 48
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.