Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.2001, Blaðsíða 49

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.2001, Blaðsíða 49
Við lindána heima Kliðmjúkt líður lindá tær um lyngmó og völl. Komin er hátt af heiði þar hæst gnæfa fjöll. Eitt sinn vildi ungur sveinn upp á þeirra tind. En aldrei rættist óskin sú, aðeins draumamynd. Blítt um kinn fer blærinn og blessar minning þá um vorsins draumavonir og vængjaða þrá. Helgi Seljan. ustusamning við félagsmálaráðu- neytið þar sem ákveðin markmið eru skilgreind og frá hinu opinbera kem- ur mestur hluti rekstrarjjár okkar.” Starf þroskaþjálfa er vanmetið - Nú geri ég ráð fyrir að þjón- ustusamningurinn við ríkið sníði ykkur þröngan stakk í launagreiðsl- um. Hvaða áhrif hafði verkfall þroskaþjálfa sem háð var í sumar? „Sumt af okkar fólki komst ekki út af heimilum sínum til vinnu eða sjúkraþjálfunar. Það gerði allt starf á sambýlunum mun þyngra. Fólkið sem er að fara í Bjarkarás og þó aðal- lega í Lækjarás komst ekki til vinnu. Hið sama á við um börnin í Lyngási. Umönnunin fluttist öll inn á heimilin. Margir einstaklingar þurfa á daglegri sjúkraþjálfun og andlegri uppbygg- ingu að halda. Þess vegna tapaðist jafnvel margra mánaða þjálfun fljótt og í einstaka tilfellum þurfti að byrja aftur alveg frá grunni. Þá verður að geta þess að á nokkrum stöðum eru forstöðumenn þroskaþjálfar og þeir máttu ekki vinna í verkfallinu. Þess vegna var þar engin starfsemi og verkefni í hættu sem okkar fólk hafði annast. Vinnustaðurinn Ás bjargaði því sem bjargað var en þar eru þroskaþjálfar ekki við verkstjórn.” Nú vakti það athygli hversu lág laun þroskaþjálfanna voru fyrir verkfall. Var Styrktar- félag vangefinna ekki í aðstöðu til þess að hafa áhrif á launin? „Þjónustusamningurinn við ríkið byggði á ákveðnum kjarasamningi. Aðrar tekjur Styrktarfélags vangef- inna eru það litlar að fjármunirnir hefðu dugað skammt til að hækka launin. Félagið fagnarþeim kjarabót- um sem náðust. Við viljum gjarnan hafa þroskaþjálfa í vinnu og heldur fleiri en færri. Ef við litum á laun þroskaþjálfa þá er greinilegt að það er ekki borin nægileg virðing fyrir þessu starfi. Því miður vita fáir hvað þeirra starf felur í sér og hversu erfitt það getur verið. Ég er í eðli mínu mótfallin því að menn fari í verkfall en skil vel að stundum þurfi að beita þessu vopni. Vonandi bera menn gæfu til þess að setjast niður í fram- tíðinni nógu snemma til þess að koma í veg fyrir að þetta endurtaki sig.” Arnþór Helgason. Hlerað í hornum Eitt sinn var jarðarfor hjá gömlum presti og lýsti bóndi einn heim kominn jarðarforinni svo: “Ræðan var ágæt, en hún var óhóflega löng og áður en yfir lauk voru allir farnir nema presturinn og sá dauði”. Úr líkræðu: “Hún var svo hirðusöm að hún hirti jafnvel muni nágrann- anna svo þeir færu ekki á flæking. Við matarútlát og sparneyti minnti hún á frelsarann, því nægjanlegt þótti handa níu á hennar heimili, sem naumt var talið skammtað þremur á næsta bæ. En gáfur hennar og góð kunnátta gnæfði svo yfir samferða- fólkið að fæstir skildu hana”. *** Prestur einn úr Reykjavík sótti um brauð úti á landi og fékk, en þetta var vildarjörð. Hann hafði ráðsmann enda búið stórt og 10 kýr í fjósi. Prestur var alltaf að gefa ráðsmanni sínum skipanir án þess að vita hið minnsta um búskap. Einu sinni segir hann við ráðsmanninn að sumarlagi: “Nú ætla ég að biðja þig um það næsta góðviðrisdag að taka allar kýrnar og halda þeirn undir tarfinn”. Ferðalangur kom á bæ einn nyrðra og var vel tekið af bónda, sem spurði hvað mætti bjóða honum t.d. hákarl og brennivín, skyr og rjóma. Ferða- langur svaraði: “Þakka þér fyrir, ætli maður innbyrði ekki fyrst þetta sem þú taldir upp og sjái svo til hvort eitt- hvert pláss verður fyrir meira”. Leiðrétting í síðasta tölublaði, bls. 32, birtist greinin Hvað er stam. Þar var ekki farið rétt með heimildir. Greinin byggist á efni af heimasíðu Málbjargar, sem Jóhanna Einars- dóttir talmeinafræðingur hefur séð um. Sá hluti sem hér birtist er að nokkru leyti byggður á bókinni Stam eftir Elmar Þórðarson talmeina- fræðing. Hlutaðeigandi eru beðnir velvirðingar á þessum mistökum. FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS 49
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.