Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.2001, Blaðsíða 51

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.2001, Blaðsíða 51
SAMVERA OG SÚPA r febrúar sl. fór Sjálfsbjörg, félag fatlaðra á höfuðborgarsvæðinu af stað með tilraunaverkefnið Sam- vera og súpa. Félagið opnaði félags- heimili sitt frá 12.30 til 15.00 alla virka daga og seldi þar súpu, brauð og kaffi á lágu verði. Félagið hafði orðið þess vart að mikil félagsleg einangrun var hjá hluta þess hóps sem býr í Flátúninu og fann fyrir þörf til að reyna að bæta stöðu hans eitt- hvað ef hægt væri. Félagið hefur yfir að ráða félagsheimili sem er ekki mikið nýtt á daginn. Við fengum ým- is fyrirtæki til að styrkja okkur með hráefni. Þá komu nokkrir vaskir sjálf- boðaliðar til starfa. Til að gera langa sögu stutta átti þetta verkefni að standa í tvo mánuði og tilgangur þess var að kanna hver raunveruleg staða þessa hóps væri, hvort þetta fólk vildi koma ef eitt- hvað væri í boði og tengja fleiri við félagsstarfið. Við fengum svo indæl- an hóp til okkar sem greinilega hafði not af þessu að það var hreinlega ekki hægt að loka fyrr en kraftar sjálf- boðaliðanna voru að þrotum komnir þann 15. júní sl. Flestir voru íbúar í Hátúni 10-12 öryrkjar sem nutu þess að snæða saman en samveran var mjög áþreifanlegur þáttur þessa verks. Vinnan við þetta var mjög mikil, bæði við að halda þessu gangandi frá degi til dags, elda súpuna, afla hrá- efnis, fá sjálfboðaliða, byggja sam- veruna upp og þá ekki síst að sinna fólkinu. Fyrstu dagana komu 8-12 manneskjur en er á leið voru tæplega Hlerað í hornum Stórbóndinn réði til sín vinnumann og sagði: “Ég hefi aldrei mörg orð um hlutina svo að þegar ég gef þér bendingu þá áttu að koma til mín”. Vinnumaðurinn: “Ég er líka fáorður og þegar ég hristi höfuðið, þá kem ég ekki”. Gísli hitti skopmyndateiknarann og bað hann teikna skopmynd af sér og mætti vera hrein skrípamynd. “Nei, Ása Hildur Guðjónsdóttir 40 gestir hjá okkur nánast hvern dag; fjöldinn rokkaði svolítið en var samt nokkuð stöðugur. Þó auglýstum við aðeins í upphafi þar sem við renndum mjög blint í sjóinn með þetta. Við eignuðumst nokkuð marga fastagesti sem voru duglegir að koma með fleiri, það leið varla sá dagur að ekki kíktu nýir einstaklingar inn. Það reyndist rétt að þörfin var mjög brýn og neyð þó nokkurra einstakl- inga mjög mikil. Annars var þetta mjög breiður hópur og myndaðist samstaða meðal fólksins, ma. mynd- uðu nokkrir bridgehóp. Fólk dvaldi mislengi hjá okkur dag hvern. Alltaf voru einhverjir komnir fyrir opnun og nokkrir voru með okkur allan tímann. Fólk spjallaði saman, kíkti í blöðin, spilaði, hlustaði á tónlist eða hjálpaði til. Þetta var mjög skemmtilegt og gefandi verkefni, það sýndi svo sann- það held ég að ég geti ekki, því foður þínum hefur tekist svo vel með þig”. Sá litli við mömmu sína: “Bróðir minn er að grenja af því að hann fær ekki bita af minni köku”. “Er hans kaka búin?” “Já, og hann grenjaði líka meðan ég borðaði hana”. Faðirinn byrstur við unga manninn: “Hvað átti það að þýða að vera að kyssa hana dóttur mína í dimmasta skotinu í gærkvöldi?” “Ja, þú segir arlega ágæti sitt strax, það varð líka aukning á aðsókn í félagsstarfið á kvöldin. Þegar svo hátíðin var í vor „í túnfætinum” sáum við það mjög skýrt að þó nokkrir einstaklingar sem höfðu verið í Samverunni og súpunni komu og tóku þátt, sem höfðu ekki gert það fyrr. í sumar varð þetta svo enn áþreifanlegra eftir að við lokuð- um en mjög mikið er spurt hvort og hvenær við ætlum að opna aftur. Við stefnum að því að opna aftur sem fyrst en viljum treysta bakgrunn- inn vel áður. Við höfum tekið aðeins til hendinni í eldhúsinu til að full- nægja kröfum heilbrigðiseftirlitsins. Eins höfum við leitað til borgarinnar og félaga eftir fjárhagslegum stuðnin- gi við verkefnið; allir hafa tekið okkur vel og eru mjög hlynntir þessu verkefni, en enn hafa þó ekki komið nein jákvæð svör, enda hafa verið sumarfrí og trúum við því að úr þessu rætist með haustinu. Ekki er hægt að reiða sig á sjálfboðaliða eingöngu eða að fá hráefni gefins endalaust. Við verðum að tryggja laun fyrir eina manneskju alveg lágmark, helst eitt og hálft stöðugildi. Þá ætti ljár- hagslegur grunnur að verða traustur, en hráefni teljum við að innkoman ætti að dekka. Við höfum nokkra trausta sjálfboðaliða sem ætla að halda áfram að hjálpa til. Nú þegar haustar verður þörfin æ sýnilegri og vonum við að þetta fari fljótlega af stað aftur. Ása Hildur Guðjónsdóttir sjálfboðaliði. nokkuð. Þegar ég sé hana núna í dagsbirtunni þá botna ég ekkert í því að ég skyldi kyssa hana”. “Hvernig stóð á því að hún Anna náði í Jón lækni?” “Ja, hann gegnumlýsti hana og var þess vegna sá eini sem sá eitthvað við hana”. “Pabbi, er það ijölkvænismaður sem á einni konu of mikið?” “Nei, dreng- ur minn, þá væri ég sko ijölkvænis- maður”. FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS 51
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.