Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.2001, Qupperneq 53
flytja af þeim sökum. Árið 1993 var
stigið annað framfaraspor þegar Von-
arlandi var breytt í tvö sambýli sem
bætti aðstöðu þeirra sem þar bjuggu.
Bætt þjónusta við fatlaða
- búseta í heimabyggð
Árið 1995 byrjaði Svæðisskrifstofa
hins vegar að kanna möguleikana á
því að leggja sambýlin niður og bjóða
íbúum þess búsetu í félagslegum
íbúðum. I því skyni var leitað eftir
samvinnu við sveitarfélögin, Svæð-
isráð Austurlands, aðstandendur,
starfsfólk og íbúa sambýlanna.
Hugmyndin var óneitanlega framandi
fyrir alla aðila nema það fatlaða fólk
sem hlut átti að máli og gat tjáð sig.
Var það strax tilbúið til að flytja. Það
tók hins vegar um sex ár að hrinda
hugmyndinni í framkvæmd enda
margir sem að málinu komu.
Svæðisskrifstofa hefur í rúm 10 ár
unnið í samstarfi við sveitarfélög og
hagsmunasamtök fatlaðra við að
byggja eða kaupa félagslegt húsnæði
fyrir fatlað fólk á Austurlandi. Með
þessu verkefni bætast við sjö íbúðir
og verða þær þá samtals orðnar 24 á
Austurlandi og búa þar 29 einstakl-
ingar.
Með verkefninu er verið að byggja
upp þjónustu við fatlað fólk sem
tekur mið af þörfum einstaklinga
fremur en hópa, auk þess sem komið
er til móts við óskir fólks um þjón-
ustu í heimabyggð. Að byggja upp
þjónustu sem tekur mið af einstakl-
ingum fremur en hópum er í sam-
ræmi við markmið Svæðisskrifstofu
Austurlands. Vegna fámennis hentar
það vel aðstæðum landsbyggðarinnar
að geta skipulagt þjónustu á þennan
hátt þar sem á sambýlum er oft erfitt
að veita fólki með ólíkar þarfir
þjónustu.
Þrátt fyrir að stutt sé síðan breyt-
ingin varð, lofar hún góðu. Þeir sem
fluttu eru almennt ánægðir með þetta
nýja líf sitt. Aðsókn í skammtíma-
vistun hefur aukist enda er nú hægt
að mæta þörfum mun fleiri en áður.
Er það mat starfsfólks svæðisskrif-
stofunnar að rétt hafi verið að fara út
í þessar viðamiklu breytingar og er
það trú okkar að þær eigi eftir að vera
til gæfu fyrir þá sem hlut eiga að
máli.
Soffía Lárusdóttir,
framkvæmdastjóri.
Frá afhendingu íbúða á Egilsstöðum. Bjarney, Kristján, Björg,
greinarhöfundur, Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra.
Frá Neskaupstað. Ragnar Ásbjörnsson tekur á móti blómum
og lyklum að íbúðinni.
Theodóra og Sjöfn (sem snýr baki í myndavélina) taka á móti lyklum af
sinni íbúð frá Birni Hafþóri Guðmundssyni. Á bak við Björn Hafþór
stendur Sigurður Gestsson byggingarverktaki.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
53