Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.2001, Blaðsíða 58

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.2001, Blaðsíða 58
VÍÐSÝN Á VESTFJÖRÐUM -heilsað upp á Jón forseta og Gísla Súrsson í bongóblíðu Ekið var um Borgaríjörð, vest- ur Snæfellsnes og yfir Kerl- ingarskarð gömlu leiðina niður í Stykkishólm. Fyrir hönd Rauða kross deildarinnar í Stykkis- hólmi tóku tvær heiðurskonur úr stjórn deildarinnar á móti okkur og buðu til hádegisverðar á Fimm fisk- um. Þær stöllur sýndu okkur bæinn og m.a. skoðuðum við Norska húsið. Liðum þar inn í eldri tíma á heldri manna heimili. Með ferjunni Baldri var siglt yfir Breiðafjörðinn í blankalogni og lagt að við Brjánslæk. Snæddum þar nesti áður en lagt var í síðasta áfanga þessa dags sem var að halda eftir Barða- ströndinni yfir Kleifarheiði þar sem nokkrum þótti nóg um hæðina. Vorum við með einstaklega öruggan bílstjóra, Halldór Gunnarsson, sem er staðkunnugur og fræddi okkur um nöfn og staði þar sem þekking okkar þraut. Þá keyrðum við út með Pat- reksfirði að Breiðuvík, en ég held það renni flestum okkar seint úr minni er ægifögur víkin blasti við. Sólin að setjast, nánast logn og gyllt- ur sandurinn logaði og bauð okkur velkomin. Þar gistum við í gömlu (vandræða)drengjaheimili hjá yndis- iegu, kraftmiklu ungu fólki sem er að byggja staðinn upp. Nokkrir fóru í kvöldgöngu um sandinn en aðrir sátu úti í kvöldblíðunni og þrátt fyrir þreytu var erfitt að fara í rúmið. Magnaður dagur A þriðjudagsmorgni bættist í hóp- inn Þröstur Reynisson, leiðsögu- maður og landvörður, björgunar- sveitarmaður og félagi í Rauða krossi íslands. Fylgdi hann okkur fram eftir degi og veitti okkur frábæra leiðsögn. Haldið var um Hvallátur að Bjarg- tangavita, vestasta odda landsins, þá að Látrabjargi. Það var stórkostleg upplifun er við gengum eftir bjarg- brúninni í ótrúlega góðu veðri. Fuglum var farið að fækka úr berginu en útsýnið var stórbrotið. Þaðan var haldið í Örlygshöfn og byggðasafnið að Hnjóti skoðað. Þar vakti athygli okkar björgunarstóllinn sem var notaður við Látrabjarg 1947 er breski Það var glaður, 20 manna hópur sem lagði af stað frá Vin, at- hvarfi fyrir geðfatlaða í Reykja- vík, þ.13. ágúst sl. Það var spenna í loftinu, því loks, eftir langan undirbúning var stóra stundin runnin upp. Farið var með rútu sem var á vegum Guð- mundar Jónassonar. Reykjavík kvödd í rigningu og sudda, en veðrið átti nú heldur betur eftir að breytast, alveg eins og eftir pöntun! togarinn Dhoon strandaði þar. Þröstur hafði sagt okkur frá því á leiðinni og sagan var ljóslifandi fyrir augum okkar. Við vorum snortin af dugnaði fólks sem býr á þessum slóðum allan ársins hring. T.d. verða aðeins 7 börn í grunnskólanum í Örlygshöfn næsta vetur, þ.á.m. börn úr Breiðuvík sem keyrð eru þangað daglega. Héldum við svo að Rauðasandi. Kynngimagnaður sandurinn og sagan heillaði okkur upp úr skónum og sáum við þar hinn enda Látrabjargs. Við áðum við Saurbæ hjá gömlu kirkjunni frá Reykhólum og snædd- um nesti áður en við héldum aftur upp af sandinum eftir hrikalegum veginum. Varð sumum um og ó meðan aðrir höfðu gaman af og á meðan riíjaði Þröstur upp söguna um Sjöundármorðin og aðrar sögulegar heimildir. Þaðan var svo haldið aftur yfir Kleifarheiði og eftir Barða- ströndinni að Flókalundi en þar beið okkar kaffihlaðborð i boði Rauða Sólin skín í Flókalundi. Aðalbjörg Edda, Inga, Stefán, Jón F. og Leifur sleikja sólskinið. kross deildar V-Barðastrandasýslu. Héldum við þar smá afmælisveislu þar sem ein úr hópnum átti afmæli. Enn var sólskin og blíða og útsýni yfir Breiðaljörð stórbrotið. Sáum við m.a. yfir í Hergilsey þar sem Gísli Súrsson dvaldi en hluti hópsins hafði lesið söguna s.l. vetur í leshring. Þar sagði Þröstur skilið við okkur og við héldum áfram yfir Dynjandisheiði. Við máttum til að stoppa smástund við Dynjanda, einn fegursta foss landsins. Síðan lá leið um Borgar- fjörð, fram hjá Mjólkárvirkjun, út með Arnarfirði að Hrafnseyri, fæð- ingarstað Jóns Sigurðssonar. Þar skoðuðum við safnið og bæinn og þar hittum við alveg óvænt félaga okkar, hana Ölfu, sem var að vinna þar í sumar. Ókum yfir Hrafnseyrarheiði, yfir í Dýrafjörð og inn Önundarfjörð - í gegnum lengstu vegagöng landsins - sem var mikil upplifun - til Isa- fjarðar og að Gamla gistiheimilinu þar sem hún Bryndís Friðgeirsdóttir, svæðisstjóri Rauða krossins á Vest- fjörðum, tók á móti okkur ásamt fé- laga úr deildinni. Frétti hún af fyrir- hugaðri ferð okkar sl vetur er tvær úr okkar hóp fóru vestur til ráðgjafar vegna fyrirhugaðs athvarfs á Isafirði. Hefur Bryndís átt veg og vanda að skipulagningu ferðar þessarar. Rauða kross fólk af Vestljörðum bauð okkur svo til kvöldverðar í veitingahúsinu Neðsta, í Tjöruhúsinu, sem er eitt 58
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.