Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.2001, Qupperneq 70
Biblían fyrir á einum geisladiski og
mjög auðvelt verður að fletta upp í
henni. Þar getur bæði farið saman
texti og hljóð. Kirkjan á að hafa
frumkvæði að því að hagnýta sér
þessa tækni og sjá til þess að sálma-
bókin og Biblían verði aðgengileg.
Allar nýbyggingar á vegum kirkj-
unnar skuli vera aðgengilegar. Þrátt
fyrir almenna staðla hafi kirkjan
samráð við samtök fatlaðra um hönn-
un slíkra mannvirkja.
Þegar kirkjur eru endurbyggðar skal
leitast við að haga endurgerð þannig
að byggingamar verði aðgengilegar
eða aðgengilegri en áður. Hér á landi
eru menn bundnir í fjötra fáránlegra
hugmynda um upprunagildi húsa.
Víðast hvar erlendis þar sem kirkjur
eru ævafornar, hafa þær tekið breyt-
ingum í aldanna rás eftir því sem
tískan hefur boðið mönnum hverju
sinni. A Islandi eru nokkrar kirkjur,
nýlegar, sem eru óbundnar af neins
konar húsfriðunarlögum. Nefni ég t.
d. dómkirkjuna í Skálholti. Þar má
auðveldlega bæta aðgengi jafnt að
kirkju sem að fornminjum í kjallara.
Kirkjan á að hafa frumkvæði að því
að gott aðgengi verði hluti tískunnar.
Brátt gefst kirkjunnar mönnum til-
valið tækifæri til þess að sýna hug
sinn í verki þegar lokið verður við
Auðunnarstofu rauða hina nýju að
Hólum, mannvirki sem löngu hefur
verið jafnað við jörðu og enginn veit
nákvæmlega hvernig leit út. Þar
verður því ekki um fornminjar að
ræða heldur nýbyggingu.
Allt efni, sem kirkjan gefur út, verði
tiltækt á tölvutæku formi. Það verði
einnig lesið inn á heppilega miðla svo
að þeir, sem eru ólæsir á prentað mál,
geti notið þess sem hljóðbókar. Nú er
komin fram ný tækni til þess að
hljóðrita bækur, hin svokallaða
Daisy-tækni. Með henni kemst
Víða hefur aðgengi að kirkjum landsins verið lagfært
eins og glöggt sést á þessari mynd.
Upp að Akureyrarkirkju liggja rúmlega 100 þrep.
Ljósmyndir: Myndrún ehf.
Haföi Krístur áliuga
á aögengi?
Kirkjan geri boðskap sinn aðgengi-
legan þeim sem ekki geta notið hinn-
ar almennu þjónustu kirkjunnar. Þetta
hefur m. a. verið gert með sérstakri
þjónustu við heyrnarlausa. Þroska-
heftir eiga einnig rétt á slíkri þjón-
ustu. Liður í þessari viðleitni gæti
verið að styðja ýmsa hópa innan
kirkjunnar til starfa á sama hátt og
konur hafa tekið sig saman og stofnað
sérstaka kvennakirkju.
Ég varpaði þeirri spumingu fram
um daginn hvort Jesús Kristur hefði
haft áhuga á aðgengi. Taldi ég að svo
hefði tæplega verið því að kvöldmál-
tíðin var haldin í loftsal og þar hitti
hann einnig lærisveina sína eftir að
hann var upp risinn. Einn viðmæl-
anda minna svaraði: Ef til vill hefur
Kristur ekki haft áhuga á að bæta að-
gengi að byggingum því að hann
leysti vandamálið. Tak sæng þína og
gakk. Verði þetta lokaorð mín: Farið
og leysið vandann í samráði við þá
sem vandinn brennur á.
Arnþór Helgason.
70