Víkurfréttir - 16.04.2020, Side 56
Kristín Ósk Wium Hjartardóttir
er fulltrúi hjá Verkalýðs- og
sjómannafélagi Keflavíkur og
nágrennis og förðunarfræðingur
í hjáverkum. Hún var á ferðalagi
með sínum allra nánustu innan-
húss um páskana. Hún segir lær-
dóminn af heimsfaraldrinum að
taka engu sem sjálfsögðu.
– Hvernig páskaegg fékkstu og
hver var málshátturinn?
Ég fékk tvö egg þetta árið. Rísegg
nr. 4 frá Freyju og Góuegg nr. 7 frá
yndislegu vinnunni minni.
Málshátturinn úr Freyjuegginu var:
„Á misjöfnu þrífast börnin best“ –
Góueggið verður ekki opnað strax.
– Hvaða aðferðir ertu að nýta til
að eiga í samskiptum við fólk?
Aðallega Messenger og Skype og svo
hef ég notast við Snapchat video-
símtöl líka.
– Ef þú fengir bara að hringja eitt
símtal í dag, hver fengi það símtal
og hvers vegna?
Alveg bókað eiginmaðurinn minn
þar sem ég væri að lesa upp fyrir
hann innkaupalista, þar sem hann
er yfirleitt sá sem sér um innkaupin
á heimilinu eftir að þessi furðulega
staða kom upp í þjóðfélaginu.
– Hvernig ertu að upplifa nýjustu
tíðindi um að það muni jafnvel
taka margar vikur inn í sumarið að
aflétta hömlum vegna COVID-19?
Það er erfitt að kyngja því, sérstak-
lega þar sem ég er svo náin fjölskyld-
unni minni en get ekkert hitt þau því
það eru svo margir í áhættuhópi. En
lítið annað við þessu að gera en að
taka bara einn dag í einu og hlýða
Víði.
– Hvaða lærdóm getum við dregið
af heimsfaraldrinum?
Að taka engu sjálfsögðu.
– Ertu liðtæk í eldhúsinu?
Já, mjög. Það hefur oft róandi áhrif
á mig að elda eða baka.
– Hvað finnst þér virkilega gott
að borða?
Nautasteik með truffluolíu og grófu
salti.
– Hvað var í páskamatinn?
Það átti að vera Bayonne-skinka en
breyttist á síðustu stundu í T-bone-
steikur, ekki leiðinleg sú breyting.
– Hvað finnst þér skemmtilegast
að elda?
Ítalskan mat og amerískan „Comfort
Food“.
– Hvað var bakað síðast á þínu
heimili?
Eldri dóttirin bakaði páskatertuna,
eins og vanalega, sem var gamaldags
maregnsterta með svampbotni og
jarðaberjum.
– Ef þú fengir 2000 krónur. Hvað
myndir þú kaupa í matinn?
Pasta, sítrónu, rjómapela, Gran
Podno-ost og steinselju – og svo
myndi ég elda sítrónupastað mitt.
– Hvað hefur gott gerst í vikunni?
Ég bakaði og færði tveimur COVID-
sjúklingum afraksturinn, auk smá
auka í poka fyrir þær.
– Hvað hefur vont gerst í vikunni?
Sem betur fer hefur ekkert vont hent
mig persónulega í vikunni en dauðs-
föll vegna COVID eru ekki beint
jákvæð þó þeir aðilar tengist mér
ekki persónulega.
Kristín Ósk sem bakaði og
færði tveimur COVID-sjúkum
afraksturinn.
Hvaða spurningu hefðir þú viljað fá að svara í þessu viðtali?
Hver er spurningin og svarið við henni?
– Þú ert greinilega ekki frá Íslandi, hvaðan ertu?
(Djók! ALLS EKKI spurning sem ég kæri mig um
að fá en fæ allt of oft.)
Svarið er samt: Frá Indónesíu.
N
etspj@
ll
Hefur oft
róandi áhrif
á mig að elda
eða baka
FIMMTUDAG KL. 20:30
HRINGBRAUT OG VF.IS
56 // VíKurFrÉttir á SuÐurNESJum í 40 ár
Fimmtudagur 16. apríl 2020 // 16. tbl. // 41. árg.