Spássían - 2010, Síða 17

Spássían - 2010, Síða 17
17 hún passaði hann þegar hann var lítill. Við þekkjumst öll einhvern veginn.“ Í öllu þessu návígi fremur fólk svo miskunnarlaus voðaverk, í næsta húsi eða næstu götu, gegn ástvinum eða ættingjum, nátengdum og ótengdum. Ævar Örn segist líta á það sem sitt hlutverk að sýna hvernig samfélagið sé í raun – séð með hans augum. Freistandi er að setja Erlu Líf, lykilpersónu nýjustu sögunnar, í stærra samhengi og Ævar Örn neitar því ekki að lesa megi örlög þjóðarinnar að einhverju leyti úr örlögum hennar. Hann tekur heldur ekki fyrir það að reynsla af blaðamennskunni hafi áhrif á áherslur hans. „Jú, það virðist algengt að fyrrum blaðamenn leiðist á þessa glapstigu, að skrifa glæpasögur, til dæmis Arnaldur Indriðason, Árni Þórarinsson og ég. Og það má segja að við þrír séum mest á þessari línu. Sjálfum finnst mér gaman þegar ég heyri það frá fólki að það hrökkvi við þegar það átti sig á því að sögurnar gerast ekki bara í nútímanum heldur lýsa óhugnaði í þeirra nærumhverfi. Mér finnst greinilega svolítið gaman að hræða fólk og láta því líða illa.“ Heillandi að fylgja persónum eftir Þegar Ævar Örn gaf úr fyrstu glæpasögu sína höfðu höfundar á borð við Arnald Indriðason, Árna Þórarinsson og Stellu Blómkvist þegar gefið út vinsælar glæpasögur og íslenskir lesendur voru farnir að taka við sér. Hann segir að það hafi vissulega auðveldað honum að stíga fyrsta skrefið. Undanfarið hefur glæpasagnahefðin þó legið undir gagnrýni. Krimmar eru stundum gagnrýndir fyrir ofuráherslu á söguþráðinn þótt við blasi að í mörgum íslenskum glæpasögum sé einnig mikil áhersla á persónusköpun og samfélagsádeilu. „Ég hef alltaf litið á glæpinn og leitina að lausninni á honum sem gulrótina sem dregur lesandann áfram í gegnum söguna eða eimreiðina sem dregur lestina“, segir Ævar Örn. „Ég veit ekki með aðra, en ég hreinlega skil ekki hvernig það getur talist galli á sögu að í henni sé þráður. En þetta er bara eins og með aðrar sögur, ég fjalla um fólk og samfélagið, lífið og tilveruna. Góðar glæpasögur eru miklu meira en eltingaleikur við glæpamenn, ekki bara plott, það gengur ekki upp. Alveg frá höfundum á borð við Dashiel Hammett og Raymond Chandler er alltaf miklu meira að gerast á bak við. Ég er mikið í seríusögum, bæði að lesa þær og skrifa, því ég er jú enn að skrifa sömu seríu. Það er eitthvað heillandi við að fá að fylgjast með sömu persónunum áfram. Ef þær eru vel heppnaðar verða þær að fólki sem maður er til í að hitta aftur öðru hvoru. Og sú tilfinning verður enn sterkari þegar maður fer sjálfur að skrifa og getur ráðskast með þær eins og maður vill. Íslenskir höfundar vinna mikið í persónum og það er mjög skandínavískt. Allar glæpasögur á Norðurlöndunum í skárri kantinum byggja mikið á sterkum og skemmtilegum karakterum. Góður krimmi þarf, eins og hver önnur bók, að hafa áhugaverða sögu, áhugaverðar persónur, stíl sem maður getur fundið sig í og eitthvað annað sem tekur mann burtu frá því sem maður er að gera dags daglega. Þess vegna finnst mér svo skrítið þegar lítið er gert úr krimmum með því að gera mikið úr afþreyingargildi þeirra. Mér finnst til dæmis felast gríðarleg afþreying í Glæp og refsingu eftir Dostojevskíj og hverf alveg út úr mínum prívat vandræðum og leiðindum þegar ég les Laxness.“ Ævar Örn viðurkennir þó að hann sé ekki nógu góður við fólk að þessu leyti. „Ég er kannski óþarflega duglegur sjálfur að minna fólk á veraldlega vesenið eins og fjárhagsvandræði og áhyggjur af gjaldþroti.“ Þreifaði sig áfram með Árna og Stefán Persónum Ævars Arnar er sannarlega fylgt eftir í gegnum sætt og súrt í lífi og starfi og hann segist ekki komast hjá því að kafa sífellt dýpra í karakterana. Í fyrstu sögunni er fylgst með Árna þegar hann byrjar hjá rannsóknarlögreglunni. Samskiptum hans við yfirmanninn Stefán er lýst ítarlega en hinar aðalpersónurnar, rannsóknarlöggurnar Katrín og Guðni, sjást aðeins í mýflugumynd. Ævar Örn segist hafa ákveðið að halda þeim á jaðrinum í þessari fyrstu bók. „Ég ætlaði alltaf að hafa teymi en hélt mig við tvær persónur í meginatriðum á meðan ég var að þreifa mig áfram og læra iðnina, eða listgreinina, að skrifa. Vildi ekki spreða mér of mikið. Svo hellti ég mér út í þetta í næstu bók. Þungamiðjan hefur færst á milli persóna, síðast voru til dæmis Katrín og Árni áberandi en í nýjustu bókinni eru það aðallega Katrín og Guðni.“ Stefán er í fyrstu í hlutverki læriföður Árna og samband þeirra minnir hálfpartinn á samskipti feðga. Katrín og Guðni eru hins vegar algjörar andstæður. Hún er ung og klár kona á framabraut og sýn hennar á karlasamfélagið, hina óformlegu karlasamstöðu sem erfitt er að festa hendur á, verður æ skýrari. Ævar Örn segir það nánast hafa gerst af sjálfu sér, strax í annarri bókinni, Svörtum englum, þegar hún varð ein af aðalpersónunum. „Lögreglan er náttúrulega eitt mesta karlasamfélag sem um getur. Ég gat ómögulega haft ákveðna konu á uppleið í þessu hlutverki án þess að gera ráð fyrir að hún mætti mótspyrnu. Sumir kalla það klisju, ég kalla það raunsæi - annað væri mjög útópískt. Íslendingar eru á margan hátt framarlega í jafnréttismálum, ég fer ekkert ofan af því, þótt vissulega vanti enn mikið upp á. Við erum góðu vön en mikið vill meira og það er enn ýmislegt ógert. Miðað við það sem ég hef heyrt ríkir þetta karlamentalítet enn í störfum sem þessum, að konur séu hálfgerð aðskotadýr, alla vega á sumum sviðum. Þær séu fínar á kontórnum, en enn er nokkuð í að þær teljist jafnokar karlanna í „karlmannlegum“ störfum löggæslumanna, karla í krapinu.“ Guðni er einmitt ýktur fulltrúi forpokaðrar en lífseigrar karlrembu og misheppnaðra töffarastæla. Ævar segir þó freistandi að gefa honum sífellt fleiri mannlegar hliðar. „Ég er líklega allt of aumingjagóður. Það gæti endað á því að ég geri úr honum eitthvert góðmenni. Ég vona samt ekki því hann er það náttúrlega ekkert, kallhelvítið. En sem betur fer erum við flest þannig að við höfum góðar og slæmar hliðar. Guðni er með harðan skráp en þótt hann sé kannski ekki alveg mjúkur í miðjunni er hann ekki jafn tilfinningalaus og hann vill vera láta.“ Ævar Örn hefur greinilega gaman af að stefna Guðna og Katrínu saman vegna þess hversu ólík þau eru og segir að ekki hafi komið annað til greina en að hafa þau áfram saman í teymi. „Það er reyndar praktískt frásagnartæknilegt atriði hjá mér að halda þessum fjórum persónum saman í fjögurra manna teymi. Þótt slíkt sé ekki venjan hjá löggunni verður að laga raunveruleikann að þörfum skáldskaparins að einhverju leyti.“ Of hörundsár í handritsskrifunum Þegar sjónvarpsþættirnir Svartir englar voru unnir upp úr fyrstu tveimur sögum Ævars Arnar skilaði sér á skjáinn þessi áhersla á samspil og spennu milli fólks, Bregst við samtímanum

x

Spássían

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spássían
https://timarit.is/publication/1454

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.