Hvöt - 30.04.1949, Síða 10

Hvöt - 30.04.1949, Síða 10
8 H V ö T sannur gleðigjafi, sem tengir menn saman. Margs konar skemmtiatriði eru á boðstólum, og eru þau öll með ágætum. Finninn, Erdama, skemmt- ir fyrir okkar hönd. Honum tekst ágæta vel nú, sem endranær. Þegar þessari skemmtun er lokið, er gengið út. Stór upplýstur dans- pallur blasir við skammt frá. Eg hef ekki mikla löngun til að dansa, aldrei þessu vant. Mig langar til að skoða mig lítillega um. Húmið er að síga yfir. Eg rölti um meðal trjánna í kvöldkyrrðinni. Skammt undan liggur hæð nokk- ur. Þangað geng ég leggst á magann, spila upp löppunum, gapi eins og gauksungi og stari út í geiminn. Blátt spegilsétt vatn breiðir úr sér skammt í burtu, dimmbláar hæðirnar skjóta kollunum upp fyrir trjátoppana á einstaka stað. 1 fjarska birtist ljósadýrð Stokk- hólmsborgar. En, hvað hér er hljótt og kyrrt. Grösin, blómin, kjarrið angar. Eg hlusta lirærður á raddir nátt- úrunnar. Mér virðist trén, laufin og stráin hvísla undursamlegum orðum i eyra mér. Þau bjóða mig velkominn og biðja mig að vera. Blærinn ber mér fagnaðarboðskap náttúrunnar utan úr geimnum og strýkur hár mitt blíðlega, þegar liann fer hjá. 1 kvöld hvíli ég við brjóst þitt fagra jörð. En hvað ásjóna þín er tignarleg og heillandi! Járnbrautarlest öskrar í fjarska. Eg hrekk upp. Hafði ég blundað eða fallið í trans? Skammt í burtu óm- ar skandinaviskur vals. Eg geng hröðum skrefum í áttina til Tollare. Eg glenni upp skjáinn kl. 7,30 næsta morgun klæði mig í flýti og ,,ræsi“ Norðmennina 3, Tyrkjann og öddu og Báru. Eftir morgunverð er lagt af stað til heimsborgarinnar. Eg hyggst að skreppa á skrifstofu SSUH (Sveriges Studerande Ungdoms Helnykterhets- förbund), sænska skólasambandsins, og rabba við félagana um starfsemi þeirra, en mér er tjáð, að hún sé lokuð. Enginn mátti draga sig út úr hópnum, því að í vændum var ferða- lag um nokkurn hluta borgarinnar samkvæmt áætlun. Kl. 11 er gefið „frí“ til kl. 12,30, cn þá skyldum við mætast á viss- um stað. Flestir nota þennan tíma til að verzla. Við Erdama förum saman. Hann ætlar að kaupa skó, en eg ferðatösku. Við röltum götu úr götu. Loks förum við inn í gríðar- stóra byggingu við Drottninggatan, sem nefnist „Pub“. Við flækjumst hæð af hæð, án þess að fara upp einn einasta stiga. Rafmagnskraft- urinn ber okkur. Það er ameríku- hraði á öllu og eilíf ös. Þarn fæst allt milli himins og jarðar. Erdama fær sína skó og eg mína tösku. Kl. 12,30 mætumst við öll á Tegelbacken. Þar stígum við á snotra fleytu, sem á að bera okkur um hin fögru sund og undir brýrnar, sem yfir þau liggja. Þetta cr ánægjulegt ferðalag, en þó nýtur maður þess ekki fullkom- lega, vegna þess hve hratt er farið.

x

Hvöt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hvöt
https://timarit.is/publication/1472

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.