Hvöt - 30.04.1949, Blaðsíða 37

Hvöt - 30.04.1949, Blaðsíða 37
tí V Ö T 35 varlega skyldi slíku trúa, fyrr en maður reynir það sjálfur. Arshátíðin, sem er haldin ein- Jiverntíma eftir áramót, er dans- æfing og kvöldvaka i senn. Þar koma fram beztu skemmtikraftar skólafélagsins og tekst oftast vel, þvi að mikil vinna hefur verið f.ram lögð, til þess að gera allt sem bezt úr garði. Allir hlakka til árshátíðar- innar, — ungu piltarnir eyða litlu skemmri tíma við hálstauið en stúlkurnar við kjólinn. Allir eru á- kveðnir i að slá sér upp, og þeim verður oftast að ósk sinni. Öllum skemmtisamkomum skól- ans er slitið kl. 1 e. m., og þær hafa það allar sameiginlegt, að allt fcr þar vel fram, þrátt fyrir fjör og galsa. Þar sér aldrei vín á nokkrum manni, enda eru vínsvelgir útilok- aðir frá samkomum skólans, þótt átvögl séu þar sæmilega liðin. — Annan hvern sunnudag eru haldnir málfundir i skólafélaginu og stundum oftar, ef eittlivað sér- stakt ber á góma. Þar hafa oft verið skemmtileg málefni til umræðu, og mörg setning vel orðuð. Kennara- skólanemendur eru yfirleitt and- lega þroskað fólk, og því er meira gaman að hlýða á umræður þar en á málfundum, þar sem menn liafa varla myndað sér skoðun á nokkru málefni. Ekki ber svo að skilja, að þar heyrist ekki ræðuleysur og raka- leysur eins og annars staðar, þótt ]>ær séu án efa sjaldgæfari. Ræðn- mönnum hitnar einnig oft i hamsi, og sa'kja þeir og verja málin af eld- móði miklum, en gæta þó fyllstn kurteisi í orði gagnvart andstæðing- um. En á slíkt vill víða skorta, þegar rök þrýtur. Málfundirnir hafa marga kosti, og þá fyrst og fremst þann, að þar geta allir lært fnndar- stjórn og fundarsköp, auk þess sem öllum gefst þar tækifæri til að æfa mælsku sína og koma fyrir sig orði, en þess munu kennarar þurfa, þeg- ar út i starfið kemur. — 1 skólanum cr gefið út vegghlað, að nafni Örvar- Oddur. Að þvi vinnur aðallega þriggja manna ritnefnd, sem kosin er á haustin og skal halda lifi i blað- inu vetrarlangt. Það getur orðið erf- itt starf, þótt blaðið komi ekki út nema einu sinni í viku, því að nem- endur eru feimnir við að komast „á prent“, þótt nóg hafi þeir efni til þess. Veslings ritnefndin verður þvi að ausa sinn vizkubrunn, unz til þurrðar gengur, til að fylla síður Örvar-Odds, sem eru hinir mestu gámar. Ritnefndinni berst þó hjálp frá fáeinum frjálslvndum gáfna- görpum, sem ekki sjá eins mikið eft- ir meistaraverkum sínum „á prent“. í fvrra kom út teiknimyndablað, að nafni Urðarmáni. Ekki voru nemendur eða afrek þeirra beinlín- is fegruð á myndum þess, enda var blaðið óvinsælt hjá sumum og fékk varla að hanga óáreitt á veggjum. Það var þó mikið skoðað, og tók alla lesendur Örvar-Odds um tíma. — I vetur hefur það ekki komið út, veena annríkis útgefanda. Nú sann- ast, að enginn veit, hvað ótt hc'fur, fyrr en misst hefur, og sakna nú margir Urðarmána. Söngur er meðal námsgreina skólans, og er hann vinsæll, ekki sízt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Hvöt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hvöt
https://timarit.is/publication/1472

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.