Hvöt - 30.04.1949, Blaðsíða 20
18
H V Ö T
MORE FOLKEHÖGSKOLE.
halda áfram til Alesund. Samkvæmt
farseðli mínum, scm raunar er með-
alskræða að þykkt til, á ég að gista
á Hótel Victoria um nóttina.
Kl. 7 næsta morgun lit ég dagsins
ljós að nýju, rík á fætur og raka
mig á 5 mínútum og slæ þar með
öll hraðmet í rakstri. Eftir rúman
klukkutima sit ég í stórum áætlunar-
bíl á leið til Álesund.
Vegurinn er góður, enda hefur
sýnilega kostað mikið erfiði að
leggja hann. Víða hefur mátt
sprengja kletta og klungur og gera
göng í gegnum björg, sem skaga
í sjó fram.
Veðrið er kyrrt, heitt og mollu-
legt. Kjarrviður hlíðanna bærist ekki.
Fjöllin speglast í kristalstæru djúp-
inu. Ferðin tekur fjóra tíma.
Alesund, höfuðstaður Sunnmöre,
liggur út við Atlantshafið miðja
vegu milli Bergen og Þrándlieims.
Krans fagurra smáeyja skýlir bænum
fyrir ágangi Ægis. Herskara hárra
fjalla standa vörð í suðri og norðri.
Eg stend og stari á þetta sköpunar-
verk náttúrunnar, þegar nafn mitt
er ncfnt að baki mér.
Eg lít við. Arnljot og Inger eru
]>ar komin blaðskellandi að taka á
móti mér. Þau virðast alls ekki út-
tauguð af svefnleysi, þótt þau hafi
komið til Álesund undir morgun og
ekki sofnað dúr í bátnum eða síðan
þau komu. Inger er blómleg og björt
4