Hvöt - 30.04.1949, Blaðsíða 23
H V ö T
21
Snorri Jónsson,
Kennaraskólanum:
R æ ð a
ttailó
Herra Rektor, kæru nemendur.
Eins og þið vitið, liefur Samband
Bindindisfélaga í Skólum valið
þennan dag allsherjar baráttudag
sinn fyrir framgangi þeirra stefnu-
mála, er það berst fyrir. Þetta er
baráttudagur fyrir auknum þroska
og menningu binnar yngri kynslóð-
ar, auknu beilbrigði, andlega og
líkamlega, og efldnm siðferðisstyrk
æskufólksins. Baráttan beinist gegn
liinu mikla og ískyggilega valdi vín-
guðsins yfir sálum ungra og gam-
alla.
Drykkjuskapur hefur aukizt mjög
á undanförnum árum, eins og allir
munu kannast við. Æsknlýðurinn
liefur verið sakaður um, að hann
ætti drjúgan hlut í þessari aukningu,
og vissulega er mikill sannleikur í
þvi fólginn. Hver hlutur á sér sínar
orsakir, og allar gerðir hafa sínar af-
lciðingar, misjafnlega miklar, eftir
því sem til er sáð: Eins og við sáum,
svo munum við og uppskera, — og
afleiðingum drykkjuskaparins á
einstaklinga og þjóðfélagið allt verð-
ur íslenzkur æskulýður að vera
reiðubúinn að mæta.
Hvaða orsakir liggja þá til þess,
að æskufólki hættir til að villast inn
á hinn breiða veg drykkjuskapar og
niðurlægingar?
□ NDRRI JDN55DN
Ef við Iítnm á ástandið eins og
það birtist i samfélagi okkar í dag
og gefum gaum að J>ví, er okkur get-
ur grunað, að valdið hafi hinni
miklu og kröftugu tilbeiðslu á Bakk-
usi, sjáum vér, að orsakanna er að
leita í hinum félagslegu aðstæðum
samtímans. Þeirra er ekki að leita
í eðli fólksins, eins og sumir staglast
á, heldur í þeirri þróun undanfar-
inna ára í samfélagi okkar, sem
valdið hefur ringulreið og upplausn.
Sú upplausn og siðferðisglötun, cr
fylgdi í kjölfar stríðsins og hernáms-
ins, á hér efalaust sinn stóra þátt.
Við íslendingar vorum stríðs-
gróðaþjóð til skannns tíma. Hin
hlómlega efnalega velmegun und-
angenginna ára er ekki afleiðing
sjálfsdáða, lieldur óvænt afleiðing
blóðugra heimsátaka. Allt þjóðlif
okkar nú ber augljós merki þessarar
staðreyndar. Sú andlega hætta, sem
af þessu stafar, kemur vitanlega