Hvöt - 30.04.1949, Page 13

Hvöt - 30.04.1949, Page 13
H V ö T 11 Það reynist engin goðgá að treysta á auðæfi ungmeyjanna. Þær horga brúsann ótilkvaddar með engilsbros á vör. Um leið og við förum rétti eg þjóninum eina sænska krónu og segi: „Here is the tip“. Heiðri mín- um er borgið, samvizkan er hrein. Yfir landamærin. Kl. 7 næsta morgun stend ég geisp- andi í biðröð á járnbrautarstóðinni ásamt Otto Böhm, öddu Báru og danskri stúlku að nafni Ellen Hem- icke. Ferðinni er heitið til Oslo. Gunnilla kemur til að kveðja okkur. „Hur már du“, segir hún við mig. „Bra“, segi eg og gapi. Hún hlær. Klukkutíma bið tryggir okkur sæti í lestinni. Smnir farþegar, sem síðar koma, verða að gera sér að góðu að búka i ganginum. Lestin brunar af stað. Við fjar- lægjumst óðum hina fögru borg. Bráðlega hverfur hún bak við tjald fjarskans, en nýr heimur birtist. Það fer fremur vel um okkur í klefanum. Við röbbum saman um liðnar stundir í Sviþjóð og gæðum okkur á kexi og ávöxtum. Þegar til Laxö kemur, nemur lestin staðar. Nú verð- um við að skipta um lest. Allir flýta sér eftir mætti til þess að fá sæti. Við verðum sein og hýrumst i ganginum. Okkur leiðist að standa upp á endann, eins og símastaurar og setj- umst því inn í borðsal og biðjum um mat. Matinn getum við fengið, en ekki sæti við sama borð, sökum þess live pöntun okkar kemur seint. Eg fæ sæti við tveggja manna borð lijá glugganum. Fólk á öllum aldri fer nú að tínast inn í salinn. Tvær „sallafínar“ frúr setjast við næsta borð. Eg lít til þeirra í laumi. Þær eru vel í holdum, minna mig lielzt á úttroðna kæfubelgi. „Til hvers eru þessar konur að neyta matar?“ hugsa eg, „varla til að fita sig. 40 daga sveltikúr myndi gera þær mátulega „slankar“. Eg fæ ekki næði til hugleiðinga um þær hold- ugu. Fíngerð rödd ávarpar mig. Eg lít upp. Skælbrosandi, allt að því þráðlaga kvenmaður stendur yfir mér. Hún spyr, hvort eg hafi nokkuð á móti því, að hún setjist við borð- ið. Eg svara neitandi, enda þótt mig gruni, að sætið sé pantað. En það hefði eg ekki átt að gera. Daman kjaftar svo gengdarlaust, að mér blöskrar. Hún hellir bókstaf- lega úr skálum sálar sinnar yfir mig. Hún segist vera fransk-sænsk- norskrar ættar og vinna hjá franska sendiráðinu í Stokkhólmi, hafa yndi af söng og allri músik, að bróðir hennar sé söngvari og píanóleikari. Og svo spyr hún mig, hvort ég hafi ekki líka yndi af músík og hvort eg sé ekki söngvari og pianóleikari. Eg fæ vai’la tóm til að svara. Svo fer liún að blaðra um veðrið o. m. fl. Loks kemur þjónninn. Hún skrúfar fyrir 1 bili, en velur rétti fyrir okkur bæði ótilkvödd. Konur af hennar tagi eru ætíð sjálfkjörnar til alls. Maturinn heftir málæðið nokkuð.

x

Hvöt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hvöt
https://timarit.is/publication/1472

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.