Hvöt - 30.04.1949, Síða 22

Hvöt - 30.04.1949, Síða 22
20 H V Ö T loforðinu við mömmu, og svo var Svala lika með, og hið biðj- andi augnaráð hennar, þrungið ást og virðingu, varð til þess, að Siggi lét enga peninga af hendi við strákana. En á leiðinni heim fóru strákarnir af hestunum og byrjuðu að drekka, og nú var ekkert undanfæri fyrir Sigga lengur, „hann varð“, eða svo sögðu strákarnir að minnsta kosti, og þetta var líka svo hollt og gott, og Siggi vesalingurinn lét undan. En Svala lá í grasinu og horfði á. Það skrítna var, að þetta var ekki gott á bragðið, en það var nú sama, hann drakk það samt og lét sem sér þætti það gott. En hvað hann varð undarlegur af þessum sterka drykk, og jörðin fór að ganga í bylgjum, honum varð óglatt, og hann svimaði, — en þá var líka búið úr flöskunni. Nú fór hver á bak sínum hesti, og þau héldu heim á leið. Þau hefðu fyrir löngu átt að vera komin heim, og ef til vill var fólkið orðið hrætt um þau. Leiðir þeirra skildu, og hélt hver heirn að sínum bæ, en Svala og Siggi urðu samferða. Svala var orðin ósköp döpur, en Siggi sá það ekki, því að ýmist sá hann ekkert eða hann sá allt tvö- falt! Bara að pabbi hans væri nú ekki farinn að leita að þeim. Nú komu þau að Silungsá, hún var mjög mikil núna, þvi að rign- ingar höfðu verið undanfarið. Og þarna sá Siggi til pabba síns nokkuð í burtu, þau heima hafa þá verið orðin hrædd um hann. Siggi reið út í ána, en hesturinn virtist fremur ófús að fara yfir, en Siggi sló þá bara fastar í hann. En hvað var nú þetta: allt hring- snerist fyrir augunum á honum, hann tók að hallast, og allt í einu féll hann í ólgandi, straumhart vatnið, hesturinn hélt áfram, en Siggi barst ósjálfbjarga með straumnum. En mi var Svala ekki sein á sér. Hún synti út í vatnið, náði i öxlina á Sigga og tókst með erfiðismunum að drasa honum upp á bakkann hinum megin. Hún var aðframkom- in, en hún hafði líka bjargað vini sínum frá drukknun. Hann var húinn að ákveða að láta engan tæla sig til að drekka framar. Siggi rankaði við sér úr þessum hugleiðingum, hann fann eitthvað mjúkt sleikja hönd sína. Það var Svala, — og hann leit brosandi niður og klappaði tryggu tíkinni sinni. Lóa litla var nýkomin í heimsókn til afa og ömmu. Stóra klukkan þeirra var lienni mikið undrunar- efni. Eitt sinn, þegar Lóa stóð fram- an við klukkuna og starði á hana, kallaði amma til hennar úr öðru herbergi og sagði: „Gengur klukkan, Lóa mín?“ „Nei,“ sagði Lóa. „Hún stendur alveg grafkyrr á sama stað og dillar á sér skottinu.”

x

Hvöt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hvöt
https://timarit.is/publication/1472

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.