Hvöt - 30.04.1949, Side 30
28
H V ö T
allt. Þegar ég varð tuttugu og
þriggja ára, giftumst við og reistum
bi'i á gamla æskuheimilinum mínu.
Það liafði móðir mín neyðzt til að
selja, til að forðast að lenda á sveit-
inni, þégar faðir minn dó. Þá
hafði hún flutzt út í þorpið og liaft
þar ofan af fyrir sér og börnunum
með saumum og annarri viiínu, er
til féll, auk þess litla, er ég gat
hjálpað lienni. En þegar við Guðrún
mín byrjuðum búskap, fluttist liún
til okkar og með henni tvær ungar
systur mínar. Þriðja systirin og
tveir bræður mínir voru þá komin
i fjarlægar sveitir og farin að vinna
fyrir sér sjálf. Þremur árum seinna
lézt móðir mín af hjartabilun.
Okkur Guðrúnu minni búnaðist
ekki vel í fyrstu. Jörðin Lækur var
ekki stór og í örgustu niðurníðslu, er
við komum þangað, en þrátt fyrir
l)að var þó tækifæri fyrir samhent
hjón, sem vildu áfram, til að gera
jörðina svo úr garði, að hægt væri
að lifa þar góðu lí‘fi. Já, og svo
sannarlega vorum við samhent og
vildum áfram. En erfið voru fyrstu
búskaparárin.
Guðrún mín var mér stoð og
stylta í einu og öllu. Án hennar er
ég hræddur um, að hefði orðið lítið
úr mér. Öllum erfiðleikum, sem
að steð.juðu, tók hún með brosi á
vör. Ekkert virtist geta bugað hina
meðfæddu bjartsýni hennar og trú
á sigur. Oft, þegar mér lá við að
gefa allt upp á bátinn, livalti hún
mig, svo að ég gekk fram móti eéf-
iðleikunum með endurnýjuðum
krafti.
Þannig liðu nokkur yndisleg ár.
Við eignuðumst dreng og tvær dæt-
ur, allt efnilegustu börn. Við böfð-
um yrkt jörðina svo vel, að vísu með
miklu striti, að við vorum farin að
geta liaft þó nokkuð stóra áhöfn.
Gæfan brosti við okkur.
En þá dundi ógæfan yfir. Ham-
ingjulijólið er fljótt að snúast. Guð-
rún mín lagðist alvarlega veik. Eft-
ir viku legu, sem var þvngri cn hún
lét á bera, dó hún.“
Hér þagnaði gamli maðurinn, og
mér virtist sem hann kiknaði undir
helþungu fargi þessara sáru endur-
minninga. Ég gat ekkert sagt; þorði
naumast að anda til að trufla ekki
gamla manninn í þessuin hugleið-
ingum sínum, sem, ef til vill, voru
honum helgari en allt annað í líf-
inu, þrátt fyrir allt. Eftir drykklanga
stund Iiélt hann áfram, en virtist þó
ekki tala til mín fremur en áður:
„En það er sjaldan ein báran stök.
Yngri dóttirin og Guðrún mín voru
lagðar í sömu gröf. Ég hvorki vil
né get lýst líðan minni, þegar svona
var komið. Helzt a'f öllu hefði ég
viljað losna líka við armæðu lífsins
og flytjast inn á land hinnar eilífu
sælu og friðar. En við mennirnir ráð-
um nú minnu en því. Eftir fráfall
konu minnar fannst mér ég ekki
geta haldið áfram að búa. Ég kom
börnunum í 'fóstur á góð heimili,
seldi jörðina og keypti Sandeyrina.
Þar hef ég búið síðan einn og um-
gengizt fólk eins lítið og ég hef get-
að. Það heldur, fólkið, að ég sé liálf-
viti. Ojæja, það um það. Sama er
mér, hvað um mig er sagt. Það
skiptir svo afar litlu máli, hvaða
dómar eru felldir yfir manni liérna