Hvöt - 30.04.1949, Page 52

Hvöt - 30.04.1949, Page 52
50 H V ö T ir ýmsa hópa utan af landi og er- lendis frá, alls konar spila- og leik- tækjum og svo síðast, en ekki sízt stóru skautasvelli og margs konar í- þróttaáhöldum og völlum? Jafnvel gætu verið þar salir, þar sem hægt væri að fá tilsögn i með- ferð alls konar véla og tækja, svo og cfnafræðarannsóknarstofa. Reynslan mundi einnig benda á margar aðrar nýjungar, sem liægt yrði að hafa þar. Nokkru áður en B. Æ. R. var stofnað, ræddu pólitísku æskulýðs- félögin þá hugmynd að reisa stofnun lýðveldisins minnisvarða. Nokkrar uppástungur komu fram, hver varð- inn ætti að vera. Ein tillagan, og tví- mælalaust sú bezta, var að reisa æskulýðshöll handa allri æsku lands- ins, sem tákn um liið nýja, unga lýðveldi. Ég vil nú taka undir þessa uppástungu, að öll æska Reykjavík- ur, allir landsmenn, reisi nú stofnun lýðveldisins minnisvarða, sem ekki er aðeins stór, glæsileg bygging, heldur einnig tvímælalaUst sú bezta og nytsamasta gjöf, sem hægt væri að gefa lýðveldinu. Hvað er því meira virði en hin ungborna æska þess ? Og nú verða það ekki lítil samtök, er taka málið i sínar hendur, heldur öll æska Reykjavíkur, öll æska Is- lands undir forystu B. Æ. R. Ég skora nú á ykkur að íeggja liönd á plóginn og plægja jarðveginn fyrir æskulýðshöllina. Fjársöfnun er nú hafin, leggið nokkuð af mörkum og fáið aðra til að gera slikt hið sama. Fáum Alþingi til að leggja fram 40% byggingarkostnaðarins. Er farið verður að selja happdrætt- ismiða til ágóða fyrir höllina, mun- um við ekki liggja á liði okkar að selja þá. Og þegar hafizt verður handa að reisa sjálfa höllina, telj- um við það skyldu okkar að vinna þar sjálfboðavinnu. Allir fyrir æskulýðshöllina, æsku- lýðshöllin fyrir alla. Obrigðult ráð Eftirfarandi saga er sögð af Will- iam Penn, kvekaranum enska, er stofnaði Pennsylvaníuríki: Eitt sinn var Penn að Iivetja mann til að hætta að drekka. Maðurinn sneri sér að lionum og sagði: „Ef þú getur kennt mér auð- velt ráð til þess, þá skal ég leggja þar við drengskap minn að gera eins og þú segir.“ „Það get ég,“ svaraði kvekarinn. „Það er eins vandalaust og að opna á sér ló'fann, vinur minn.“ „Nú, hvernig má það vera?“ spurði liinn. „Jú, sjáðu til,“ svaraði Penn. „Þegar þú finnur ilát með áfengi í hendi þinni, þá skalt þú opna lóf- ann, áður en ilátið kemur að vörum þínum, og þá drekkur þú aldrei vit- ið frá þér framar.“ Þetta liafði þau áhrif á manninn, að hann hætti að drekka. „Alkohól (vínandi) er eitur, sem hefur fargað fleiri mannslifum eu öll önnur eitur samanlögð". Dr. John Harvey Kellogg.

x

Hvöt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hvöt
https://timarit.is/publication/1472

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.