Fjölrit RALA - 10.05.1988, Síða 29
25
Samspil orku oe próteins í vetrar- oe vorfóðri áa (RL 365)
Stefán Sch. Thorsteinsson og Sigurgeir Þorgeirsson
Tilraun þessi hófst á Hesti 1982 og var gerð grein fyrir tilgangi hennar og birtar
tveggja ára niðurstöður í ársskýrslu Rala 1982-84. Tilraunin stóð til 1986 og var hún gerð
upp á árinu 1987 og niðurstöður hennar birtar á minningarfundi Halldórs Pálssonar í ágúst
1987.
Hér á eftir verður greint frá tilraunaskipulagi og helstu niðurstöðum.
3. tafla. Tilraunaskipulag og étiö fóöur í FE/á/dag.
Flokkur l.des.-lO.jan. 10.jan.-5.apr. 5.apr.-burður Eftir burð Étið ails (FE)
1 Taða að vild Taða 0,7 FE Taða að vild Taða að vild
Étið 0,75 0,68 0,81 0,56 135
2 Taða að vild + 70 g fiski- mjöl Taða 0,7 FE Taða að vild + 70-100 g fiskimjöl Taða að vild + 200-300 g fiskimjöl
Étið 0,84 0,69 0,90 0,76 148
3 Taða að vild Taða 0,6 FE Taða að vild + 150-200 g B-blanda Taða að vild + 500 g A-blanda1
Étið 0,78 0,62 0,92 1,00 147
4 Taða að vild Taða 0,6 FE Taða að vild + 150-200g B-blanda Taða að vild + 500 g B-blanda2
Étið 0,78 0,62 0,92 1,00 147
x) A-blanda inniheldur 26-27% hráprótein
2) B-blanda " 14-15%
Fiskimjöl " 60% "
í 3. töflu er sýnt skipulag tilraunarinnar og étið fóður eftir tímabilum. Ærnar voru
fóðraðar í sömu húsum og fengu sams konar töðu allan veturinn. Eftir burð voru þær
fóðraðar inni í 4-6 daga en eftir það gefið með beit á túni, þar til nægur gróður var
kominn í úthaga, u.þ.b. 10. júní. í hverjum flokki voru 50 ær ár hvert og var hver ær i
sama flokki ár frá ári.