Bændablaðið - 10.09.2020, Síða 17
Bændablaðið | Fimmtudagur 10. september 2020 17
Bænda 56-30-300
Lithium rafhalaða er 4kg og Microlift er álíka þungur og handtjakkur.
ETMH 1,5ton. 238.000kr +vsk.
Rafdrifin keyrsla. 0,6m gaflar.
ETMH 1,5ton. 218.000kr +vsk.
Rafdrifin keyrsla. 1,15m gaflar.
ETMH 1,5ton. 258.000kr +vsk.
Rafdrifin keyrsla + lyfting.
ETMH 2,0ton. 298.000kr +vsk.
Rafdrifin keyrsla + lyfting.
AUKA LITHIUM RAFHLAÐA FYLGIR FRÍTT MEÐ FYRSTU 7 TJÖKKUNUM.
.......... þegar við metum
kostina, gæðin og verðið.
Er svarið:
Youtube kynning á:
https://youtu.be/cPx7PPYvNUM
SENDINGIN SEM COVID-19 TAFÐI ER KOMIN. ELDRI PANTANIR ÓSKAST STAÐFESTAR.
Kraftmikill,
léttur og
lipur.
TAKMARKAÐ MAGN:
TILBOÐ Hljóðmerki fest á humar. Mynd / Svanhildur Egilsdóttir
Hafrannsóknastofnun:
Humar merktur með
hljóðsendum
Sextán leturhumrar voru merkt ir
með hljóðmerkjum um borð í rann
sóknaskipinu Bjarna Sæmunds
syni á veiðislóð í Jökul dýpi fyrir
skömmu. Merk ingin var unnin
í samvinnu við hafrann sókna
stofnun Spánar.
Tilraunin er liður í því að varpa
ljósi á atferli tegundarinnar, en
humar dvelur langdvölum en oft
óreglubundið í holum eða göngum
sem hann grefur ofan í botnleirinn.
Þannig ræður atferlið öllu varðandi
veiðanleika humarsins, en afla
brögðin sveiflast mjög eftir tíma
sólarhringsins, birtu og dýpi en að
jafnaði er veiðin best þegar þörunga
blóminn stendur hvað hæst á vorin.
Sextán humrar merktir
Á heimasíðu Hafró segir að settir hafi
verið niður 9 strengir með hlustun
arhljóðduflum með 100 metra bili á
tveimur svæðum, á 115 og 195 metra
dýpi. Merktir voru 16 humrar á hvoru
svæði, þar af þrjú kvendýr.
Merkin gefa frá sér hljóðmerki
á 30 til 50 sekúndna fresti í um 70
daga. Merkin voru fest við bakskjöld
dýrsins. Gæta þurfti sérstaklega að
því að ekkert ljós gæti skaðað sjón
þeirra og var því unnið í rauðu vinnu
umhverfi og humarinn veiddur í
vörpu að næturlagi. Humrunum var
svo komið fyrir á hafsbotninum í búri
festu við myndavélagrind sem á var
myndavél er tók upp sleppinguna.
Á hvoru svæði var einnig sett niður
straumsjá sem gefur upplýsingar um
straum og straumstefnu.
Samvinnuverkefni
með Spánverjum
Sambærileg rannsókn var fram
kvæmd í fyrsta sinn við strendur
Barcelona síðastliðinn vetur.
Merkingin við Íslandsstrendur var
unnin í samvinnu við hafrannsókna
stofnun Spánar.
Stefnt er að því að taka hlustun
arduflin upp 7. nóvember í lok rann
sóknaleiðangurs á ástandi sjávar.
Humarmerkingin er hluti af sér stöku
tímabundnu fjárfestingarátaki í kjöl
far heimsfaraldurs og var styrkt af
atvinnuvega og nýsköpunarráðu
neytinu. Vonast er til að rannsóknin
varpi ljósi á þann tíma sem hvert dýr
dvelur í holu sinni og gefi upplýsingar
um heimasvæði hvers dýrs. /VH
Línuívilnun:
Ráðherra skerðir heimildir
Sífellt færri smábátar notfæra
möguleika sinn til línuívilnunar.
Helstu ástæður þess eru að veiði
heimildir hafa í auknum mæli
færst til stærstu krókaaflamarks
bátanna sem flestir eru með beitn
ingarvél og fá því ekki ívilnun.
Örn Pálsson, framkvæmdastjóri
LS, segir að landssambandið hafi
á undanförnum árum brugðist við
þessari þróun og hvatt ráðherra til
að beita sér fyrir breytingu á lögum
þannig að allir dagróðrabátar á línu
fái ívilnun. Með því yrði tryggt að
veiðiheimildir til hennar mundu nýt
ast að fullu.
Skerðingu mótmælt
„Við höfum mótmælt því harðlega
að viðmiðunarafli til línuívilnunar
væri skertur og skorað á sjávar
útvegsráðherra að beita sér fyrir
breytingum þannig að línuívilnun
mundi gilda fyrir alla dagróðrabáta
minni en 30 brúttótonn og styttri en
15 metrar. Við landbeitningu yrði
hún 30% (er nú 20%), 20% (15%)
við uppstokkun og 10% (0%) fyrir
báta með beitningarvél.
Jafnframt höfum við krafist
þess að línuívilnun í ýsu yrði aukin
verulega, færi úr 20% í 45%, 15% í
30% og 0% í 15% hjá fyrrgreindum
flokkum.“
Ráðherra ekki orðið við ósk LS
Að sögn Arnar hefur ráðherra ekki
orðið við beiðni LS. „Ráðherra
hefur borið fyrir sig að verið væri
að endurskoða reglur um 5,3% pott
inn. Þrátt fyrir þá endurskoðun hefur
hann skert hlut línuívilnunar um
tugi prósenta. Þorskveiðiheimildir
til línuívilnunar á nýbyrjuðu fisk
veiðiári eru 1.800 tonnum lægri en
fyrir tveimur árum, hafa lækkað um
60%.“
Færðir skör neðar
Örn segir að í þessu sambandi sé
rétt að vekja athygli á að samhliða
því sem þorskveiðiheimildir til
línuívilnunar eru skertar dregur úr
möguleikum á færslu til strandveiða
þegar vel árar á þeim bæ. „Ónýttar
heimildir frá línuívilnun til
strandveiða eða öfugt verða vart til
staðar. Að okkar mati er sannarlega
við hæfi að slá tvær flugur í einu
höggi þegar smábátaútgerðin
er annars vegar. Staða hundruð
sjálfstæðra útgerðarmanna er færð
skör neðar og möguleikar þeirra á
að keppa um aflaheimildir við stærri
útgerðir eru rýrðar verulega.“ /VH
Landssamband smábátaeigenda
hefur mótmælt því harðlega að
viðmiðunarafli til línuívilnunar séu
skertar.