Bændablaðið - 10.09.2020, Síða 19
Bændablaðið | Fimmtudagur 10. september 2020 19
Bænda
24. september
Erna Bjarnadóttir ráðin
til Mjólkursamsölunnar
Erna Bjarnadóttir hagfræðingur
hefur verið ráðin verkefnastjóri
á rekstrarsvið hjá Mjólkur sam
sölunni. Hún mun starfa við grein
ingu á starfsskilyrðum mjólkur
framleiðslunnar og ýmsum verk
efnum á því sviði.
Erna hefur víðtæka þekkingu og
reynslu af málefnum landbúnaðar
og atvinnulífsins eftir að hafa starf
að á þeim vettvangi sl. þrjá áratugi.
Hún starfaði á árunum 2000–2019
sem hagfræðingur og aðstoðar
framkvæmdastjóri Bænda samtaka
Íslands. Áður var hún aðstoðarfram
kvæmdastjóri Framleiðsluráðs land
búnaðarins í 3 ár og forstöðumað
ur Hagþjónustu landbúnaðarins á
Hvanneyri þar á undan.
Erna sat í stjórn Arion banka
(áður Nýja Kaupþing) 2008 til
2010, þar af stjórnarformaður í sex
mánuði og í stjórn Lífeyrissjóðs
bænda frá árinu 2019. Þá hefur hún
sinnt kennslu í hagfræðigreinum við
Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri
og Bændaskólann á Hólum og starfað
hjá Búnaðarsamtökum Vesturlands og
Búnaðarsambandi Skagafjarðar.
Erna er búfræðingur að mennt
með BSc í búvísindum, MSc prófi í
landbúnaðarhagfræði frá University
College of Wales og diplómagráðu
í opinberri stjórnsýslu frá Háskóla
Íslands.
„Ég er mjög spennt fyrir nýjum
áskor unum. MS er eitt stærsta afurða
sölufyrirtæki landsins í eigu bænda
og hér eru gríðarlega fjölbreytt og
krefjandi verkefni. Reynsla mín af
störfum fyrir landbúnaðinn kemur
sér vel, auk þess sem ég þekki vel til
í sveitum landsins. Ég hlakka mjög
til að kynnast starfseminni og leggja
mitt af mörkum í að efla hag þess
og eigendanna, sem eru kúabændur
allt í kringum landið,“ segir Erna
Bjarnadóttir um nýja starfið.
„Það er fengur að því að fá Ernu
inn í fyrirtækið. Hún hefur dýrmæta
reynslu sem mun nýtast okkur vel,“
segir Pálmi Vilhjálmsson, aðstoðar
forstjóri Mjólkursamsölunnar.
Erna er fædd og uppalin á Stakk
hamri á Snæfellsnesi og ólst þar upp
við að mjólka kýr, reka kindur og
spretta á hrossum um Löngufjörur.
Hún hefur stundað hestamennsku í
áratugi. Ferðalög um Ísland eru annað
aðaláhugamál hennar. Erna segir: „Ég
er glöð að koma á ný til starfa fyrir
bændur og þakklát fyrir það traust
sem þeir hafa sýnt mér í gegnum
tíðina.“
Erna hefur hafið störf hjá Mjólkur
samsölunni.
Erna Bjarnadóttir.