Bændablaðið - 10.09.2020, Page 20
Bændablaðið | Fimmtudagur 10. september 202020
Á Íslandi sem erlendis er metan
(CH4) þekkt sem öruggur, um hverfis
vænn og hagkvæmur kostur. Íslenska
eldsneytið metan hlaut meira að
segja norræna um hverfis merkið
Svaninn í nóvember 2016. Nú á að
margfalda framleiðslu þess í gas og
jarðgerðar stöðinni GAJA á Álfsnesi,
en samt virðist ríkja algjört stefnu
leysi í nýtingu þess.
Um allan heim er metan mikið
notað sem eldsneyti á farartæki og
til húshitunar, eldunar og rafmagns
framleiðslu. Hægt er að nýta það á
nánast öll almenn farartæki í vegasam
göngum, en vegna lægra orkugildis
metans, miðað við t.d. dísilolíu, hefur
það ekki þótt sérlega hentugt fyrir stór
og þung farartæki.
Ef metan sem hér verður til í sorp
haugum eða verður framleitt í nýrri
gas og jarðgerðarstöð í Álfsnesi
er ekki nýtt á ökutæki er samt best
fyrir umhverfið að brenna það.
Ávinningurinn af nýtingu þess með
aukinni notkun gasknúinna ökutækja
ætti því að vera augljós. Enn augljósari
ætti hagur sveitarfélaga á höfuðborgar
svæðinu að vera á nýtingu á eigin gasi
í stað þess að kaupa strætisvagna,
sorpbíla, sendibíla og önnur vélknúin
farartæki sem nýta aðra orkugjafa, eins
og jarðefnaeldsneyti. Auk jákvæðra
umhverfissjónarmiða, gæti fjárhags
legur ávinningur líka verið umtals
verður.
Metanbílar góður kostur
Metanbifreiðar eru sagðar um hverfis
vænn kostur og eru bæði ódýrari í
innkaupum og í rekstri en sambærilegir
bílar sem ganga fyrir jarðefnaeldsneyti.
Þá eru þær mun ódýrari og burðarmeiri
en sambærilegir rafmagnsbílar.
Gasnýting umhverfisvæn aðgerð
Nýting á metani á bifreiðar sem fellur
til á Íslandi er afskaplega umhverfis
væn aðgerð og mikilvægt framlag ef
menn vilja draga úr losun gróðurhúsa
lofttegunda. Ástæðan er sú að metan er
talið minnst 21 sinni áhrifameiri loft
tegund í að valda gróðurhúsaáhrifum
en koltvísýringur (CO2).
Metan í hæsta gæðaflokki
SORPA bs. er eini framleiðandi metans
á höfuðborgarsvæðinu eins og er. Frá
árinu 2000 hefur SORPA framleitt 15,6
milljón Nm3 af ökutækjaeldsneyti
úr hauggasi sem myndast við
niðurbrot á lífrænu efni á urðunarstað
höfuðborgarsvæðisins í Álfsnesi.
Eftir söfnun á hauggasi frá urðunar
stað er metan einangrað úr hauggas
inu með vatnsþvegilstækni (e. Water
Scrubber Technology). Afurðin verður
„nútíma“metan ökutækja eldsneyti í
hæsta gæðaflokki með allt að 98%
hreinleika, 125–130 oktan eldsneyti
að því er fram kemur í gögnum Metans
ehf.
Fékk Svansvottun 2016
Metan fékk Svansvottun árið 2016 og
er eina umhverfisvottaða eldsneytið
hér á landi. Sparaður útblástur frá
upphafi er um 500 þúsund tonn af
CO2 og því til mikils að vinna við að
koma þessu eldsneyti í notkun.
Hingað til hefur þetta eldsneyti
verið notað á ökutæki, s.s. sorp
bíla Reykjavíkurborgar, sorpbíla á
vegum einkaaðila, gámabíla á vegum
SORPU, strætisvagna (7), þjónustu
fatlaða (Akureyri), vöruflutninga
(Innnes) og sér SORPA um að koma
metaninu í notkun með einum eða
öðrum hætti.
Dýrmætu metani fyrir allt að
4.000 bíla eytt á hverju ári
Metan sem ekki hefur verið nýtt
á söfnunarstað í Álfsnesi til þessa
er brennt á staðnum í stað þess að
sleppa því út í andrúmsloftið. Sama
verður án efa gert í nýju gas og jarð
gerðarstöðinni GAJA ef ekki verða
gerðar verulegar áherslubreytingar í
nýtingu á gasinu á ökutæki hérlendis.
Árið 2018 myndaðist metan í
sorphaugnum í Álfsnesi sem myndi
(skv. heimild frá SORPU) duga á
3–6.000 smærri ökutæki (eftir því
hvaða viðmið er notað við útreikn
inga). Þar sem eftirspurn hefur verið
töluvert lægri en þetta, eða sem
nemur metani á um 1.600 fólksbíla,
hefur umfram metani einfaldlega
verið brennt til að draga úr hlýnun
aráhrifum á loftslag. Staðan er því
þannig að metani, sem gæti nýst sem
eldsneyti á 2–4.000 bíla, er fargað án
þess að orkan sé nýtt á neinn hátt.
Hingað til hafa notendur einna
helst verið fólksbílar, vinnubílar,
pallbílar, strætisvagnar og sorp
hirðubílar. Þannig fara um 1.753.117
Nm3 í ökutæki og um 121.300 Nm3 í
eigin not, hjá SORPU. Restinni, um
1.694.000 Nm3, af gasi fer til „spillis“
og er brennt.
Til skoðunar er að nýta metan
í rafmagnsframleiðslu, plast
framleiðslu, þurrklefa, almennings
samgöngur og þjónustubíla í auknum
mæli, vöruflutninga, skip og ferjur,
o.s.frv.
Framleiðslugeta SORPU er í dag
(fyrir opnun GAJA) um 3,5 milljónir
Nm3 af metani á ári og var nákvæm
lega 3.568.417 Nm3 fyrir árið 2019.
Metangas á allt að 12 þúsund bíla
Árið 2018 hófst bygging á gas og
jarðgerðarstöðinni GAJA í Álfsnesi
sem á að taka í notkun um næstu
áramót. Hún á að framleiða 3
milljónir Nm3 af metangasi og
verður heildarframleiðslan á gasi
í Álfsnesi því yfir 6 milljónir Nm3.
Það ætti að duga á allt að 12.000
fólksbifreiðar.
Norðurorka á Akureyri getur
framleitt gas á 600 fólksbíla
Í Glerárdal, rétt fyrir ofan Akureyri,
stígur metanið upp af gömlum
ruslahaugum. Stór hluti þess fer
út í andrúmsloftið og veldur þessi
kröftuga gróðurhúsalofttegund
um 2030 sinnum meiri skaða en
koltvísýringurinn sem myndast
þegar gasinu er brennt.
Árið 2013 gerði Norðurorka
samning við OLÍS um að sjá um
smásölu á metani sem Norðurorka
framleiðir.
Framleiddir eru um hundrað
þúsund Nm3 af metani á Akureyri,
en það væri hægt að framleiða um
600 þúsund Nm3 miðað við eðli
legan nýtingartíma og það gæti
dugað til að keyra um 600 fólks
bíla. Með því að efla enn betur
stöðina mætti mögulega framleiða
metan á yfir þúsund bíla næstu tíu
árin. Enn sem komið er fer mikið
magn metans sem framleitt er á
Akureyri til spillis.
Einungis 2 vagnar Strætó
ganga fyrir metangasi
Í ársskýrslu Strætó fyrir árið 2019
segir að áhersla sé á umhverfis og
öryggismál. Einnig að taka tillit
til umhverfissjónarmiða við inn
kaup á vörum og þjónustu og að
innleiða vistvæn innkaup og þar
stendur líka orðrétt: „Að innleiða
notkun á vistvænum orkugjöfum
eða orkutækni.“
Samkvæmt ársskýrslu Strætó
er veruleikinn sá að vagnaflot
inn, sem rekinn er af Strætó,
samanstendur af 85 vögnum. Þeir
óku samtals rúmlega 5,3 millj
ónir kílómetra á síðasta ári. Þar af
eru 68 dísilvagnar og einungis 2
metanvagnar. Þá eru 15 rafmagns
vagnar í flotanum sem eru í eigu
sveitarfélaga á höfuðborgarsvæð
inu. Vagnafloti verktaka saman
stendur af 77 vögnum. Þar ef eru
48 vagnar reknir af Kynnisferðum
og 29 af Hagvögnum. Ekki kemur
fram hvers konar orku þeir nota,
en þrír metanvagnar munu vera í
notkun hjá SVA á Akureyri.
FRÉTTASKÝRING
Hörður Kristjánsson
hk@bondi.is
Stefnuleysi ríkjandi um nýtingu á metangasi
en samt er verið að stórauka framleiðsluna
– Gasi sem dygði á um 4.000 bíla fargað á hverju ári og sú sóun mun stóraukast með tilkomu nýrrar sorp- og jarðgerðarstöðvar GAJA
Gas- og jarðgerðarstöðin GAJA í Álfsnesi:
Mun margfalda afköst í gas- og moltuframleiðslu
Gas og jarðgerðarstöðin GAJA í
Álfsnesi er enn ekki komin í gagnið
og ekki er búið að gefa út starfs
leyfi fyrir stöð sem hefur þegar
kostað á sjötta milljarð króna. Í
júlí samþykktu sveitarfélögin á
höfuðborgarsvæðinu að leggja
stöðinni til um einn milljarð til
viðbótar í rekstrarfé. Er nú von
ast til að starfsleyfi fáist í október
og að stöðin verði komin í fullan
gang í byrjun næsta árs.
Miðað er við að gas og jarð
gerðarstöðin GAJA taki við rúm
lega 95% af úrgangi heimila á höf
uðborgarsvæðinu. Stöðin á að geta
meðhöndlað 35.000 tonn af lífrænum
heimilisúrgangi á ári og framleiða
um 3 milljónir Nm3 af metangasi
sem nýtist á ökutæki. Metangasið
er ígildi um 3,3 milljón lítra af bens
íni. Einnig verður til um 12 þúsund
tonn af moltu (jarðvegsbæti) á ári
úr lífrænum úrgangi sem nýta má í
landgræðslu, skógrækt eða til land
mótunar.
Bygging stöðvarinnar, sem
er 12.800 fermetrar, hefur sætt
mikilli gagnrýni, ekki síst vegna
framúrkeyrslu í kostnaði og
alvarlegra mistaka í áætlanagerð á
byggingarstigi. Þá hefur tæknin sem
kemur frá danska fyrirtækinu Aikan
A/S verið harðlega gagnrýnd. Margt
annað hefur verið í ólestri í kringum
þessa framkvæmd og hefur m.a. verið
bent á að til jarðgerðar þurfi flokkað
lífrænt sorp sem ekki sé safnað
sérstaklega á höfuðborgarsvæðinu.
Hugsunarleysi í nýtingu á
íslensku gasi
Það hefur vakið athygli að lítið
eða ekkert hefur verið hugsað fyrir
markaðssetningu á öllu því gasi
sem stöðin á að framleiða, sem
og því gasi sem þegar er unnið úr
sorphaugunum í Álfsnesi. Hefur þar
m.a. sætt furðu að sveitarfélögin á
höfuðborgarsvæðinu hafi lagt meiri
áherslu á að innleiða dýra rafknúna
strætisvagna en að nýta vistvænt
gas sem fellur til í Álfsnesi til að
knýja þessar almenningssamgöngur.
Þar séu eigendur Strætó að byggja
risavaxna og rándýra stöð til
eldsneytisframleiðslu án þess að
leggja fram áætlanir um nýtingu
þess, ekki einu sinni á eigin bíla og
tæki.
Bágborið dreifingarkerfi fyrir gas
Þegar litið er á dreifistöðvar fyrir gas
er málið enn furðulegra. Einungis er
mögulegt að fylla gas á bíla á fimm
stöðvum á landinu, samkvæmt upp
lýsingum Metans ehf. Það eru Olís í
Mjódd 2 dælur, Olís við Glæsibæ
2 dælur, Skeljungur/Orkan við
Miklubraut 2 dælur, N1 á Bíldshöfða
4 dælur og Miðhúsabraut á Akureyri
2 dælur. /HKr.
Um síðustu áramót voru skráðar
hjá Samgöngustofu 1.479 bensín/
metanbíla, dísil/metanbílar voru
3 og 415 hreinir metanbílar. Því
voru 1.897 ökutæki sem gengu að
einhverju leyti fyrir metani. Þá
voru einungis 17.697 ökutæki sem
teljast að einhverju leyti vistvæn,
eða 4,97% af heildarfjölda
ökutækja. Það er þó talsvert
hærra en heimsmeðaltalið sem
er undir 2,5%.
Heildarfjöldi ökutækja sem
ganga fyrir öðrum orkugjöfum en
bensíni og dísilolíu, er mun minni
en ætla mætti af umræðunni og
þeim mikla áhuga sem virðist
vera á rafbílum og tvinnbílum af
ýmsum toga.
Í árslok 2019 var heildarfjöldi
skráðra ökutækja í landinu
355.636. Þar af voru 269.825
fólksbílar, 28.939 sendibílar,
12.848 vörubifreiðar og 3.178
rútur eða hópferðabifreiðar, eða
samtals 88,5% af heildinni. Inni í
heildartölunni eru líka dráttarvélar,
skráðir aftanívagnar, torfæruhjól
og bæði þung og létt bifhjól.
Af heildarfjölda ökutækja um
síðustu áramót voru rúmlega 336
þúsund bensín og dísilknúin
ökutæki, eða 94,5%. Hreinir
rafmagnsbílar voru þá 4.062
(1,1% af heildarfjölda og 1,5%
af heildarfjölda fólksbifreiða),
bensín/rafmagns tengiltvinnbílar
voru 7.437, bensín/rafmagns
tvinnbílar voru 5.496, dísil/
rafmagns tengiltvinnbílar voru
574 og dísil/rafmagns tvinnbílar
voru 105 talsins. Þá má geta þess
að rafbílar sem ganga fyrir vetni,
voru 23 talsins. Samkvæmt nýjustu
tölum Bílgreinasambandsins hefur
hægt verulega á sölu nýrra bíla á
Íslandi. Er það fyrst og fremst rakið
til COVID19 heimsfaraldursins og
59,7% minni sölu á bílaleigubílum.
Á fyrstu 8 mánuðum ársins
hafa selst 6.254 nýir fólksbílar, eða
31,4% færri en á sama tímabili í
fyrra. Nýorkubílar standa samt
fyrir meirihluta bílakaupa hjá
einstaklingum, eða 64,4% af öllum
seldum nýjum bílum til einstaklinga
það sem af er ári. Þetta hlutfall var
41,7% á sama tíma á síðasta ári.
Svipað gildir um almenn fyrirtæki
önnur en bílaleigur. Nýorkubílar
voru 55,8% af bílakaupum þeirra
það sem af er ári, en hlutfallið var
38,5% fyrstu 8 mánuðina í fyrra.
Langt í land í orkuskiptum ökutækja
– af 355.636 ökutækjum 2019 töldust 17.697 vera vistvæn eða 4,97%
Gas- og jarðgerðarstöðin GAJA í Álfsnesi. Áhugavert að nafnið er það sama
og á ítölsku víngerðinni Gaja sem stofnuð var af Giovanni Gaja 1859.
Ile-de-France Mobilités fólksflutningafyrirtækið í Frakklandi gerði samning
við IVECO um kaup á 409 gasknúnum strætisvögnum til afhendingar 2020
og 2021. Verða vagnarnir í notkun í miðborgarkjarna Parísar. Tankfyllingin á
vögnunum dugar í 400 km akstur, sem sagt er henta vel á Stór-Parísarsvæðinu.
Til samanburðar er Stór-Reykjavíkursvæðið að reka eigin metanframleiðslu,
en nýtir gasið einungis á tvo af sínum 85 strætisvögnum. Mynd / SustainableBus