Bændablaðið - 10.09.2020, Page 39
Bændablaðið | Fimmtudagur 10. september 2020 39
Lífræn hreinsistöð
• Fyrirferðalítil fullkomin
sambyggð skolphreinsistöð
• Uppfyllir ýtrustu kröfur um
gæði hreinsunar
• Engin rotþró eða siturlögn
25 ára ábyrgð
• Tæming seyru á þriggja til
fimm ára fresti
• Engir hreyfanlegir hlutir
• Stærðir frá 6 – 55 persónueiningar
Tunguhálsi 10 - 110 Reykjavík
Sími 517 2220 - petur@idnver.is
G
ra
fik
a
19
Dýralæknaþjónusta í dreifðum byggðum á Austurlandi
Samningar lausir til umsóknar
Matvælastofnun auglýsir eftir sjálfstætt starfandi dýralæknum til að taka að sér
almenna dýralæknaþjónustu og bráðaþjónustu í dreifðum byggðum á Austurlandi.
Markmiðið er að tryggja dýraeigendum nauðsynlega almenna og bráðaþjónustu við
dýr á landssvæðum þar sem fjöldi dýra er takmarkaður og/eða verkefni dýralækna af
skornum skammti.
Starfið felur í sér að gegna dýralæknisþjónustu fyrir búfé og gæludýr á Austurlandi og að taka að sér
tiltekin störf fyrir MAST. Samningar gilda frá og með 1. desember 2020 til og með 30. apríl 2025.
Um þjónustusvæði 7 er að ræða sem hjúpar Fljótsdalshérað, Fljótsdalshrepp, Borgarfjarðarhrepp,
Seyðisfjarðarkaupstað, Fjarðarbyggð, Fáskrúðsfjörð, Stöðvarfjörð og Djúpavogshrepp.
Umsóknir skulu sendar í tölvupósti á netfangið starf@mast.is merktar “Dýralæknir – þjónustusvæði
7”, ásamt starfsferilskrá, prófskírteinum og kynningarbréfi. Umsóknarfrestur er til og með 28.
september 2020.
Nánari upplýsingar um samninginn er að finna á vef Matvælastofnunar: www.mast.is.
Dale Carnegie námskeiðið
Kemur til þín - hvert á land sem er
Nú býðst þér að koma á hið heimsfræga Dale
Carnegie námskeið í Live Online fjarþjálfun í rauntíma.
Ávinningur námskeiðsins:
• Læra að koma koma vel fyrir þig orði
• Minnka streitu og kvíða
• Styrkja sambönd og efla samskipti
• Setja sér skýr markmið og framtíðarsýn
• Líða vel á mannamótum
• Standa upp og segja skoðun sína
Tveir þjálfarar stýra námskeiðinu og þú
færð tækniaðstoð allan tímann.
Nánari upplýsingar á dale.is og í 555 7080
Bænda
Eftir áramótin kom frétt um
að ekki hefði tekist að inn-
heimta umferðarlagabrota-
sektir af útlendingum, þetta
er ótrúlega há upphæð. Hún
hefði komið sér vel í dag. Ég
hef upplýsingar um að sekt-
arkröfur hafa verið komnar
til Íslands frá Þýskalandi og
Ítalíu á undan þeim er af sér
braut. Einnig hafa Íslendingar
á ferð erlendis orðið að setja
tímabundna tryggingu fyrir
svona uppákomum. Það mætti
halda að hér á landi væru
starfshættir svo gamaldags að
allt væri handskrifað og sent
með sjópósti. Hvað á maður
að halda? Tækni dagsins í dag
segir mér að eitthvað sé öðru-
vísi hér en erlendis.
Ester Rut Unnsteinsdóttir fór
norður í friðlandið á útmánuði
til að hlusta á góuvælið í tófun-
um og uppgötvaði að fullorðnir
refir grafa ekki feng sinn við
nefið á öðrum. Úr því að send-
ur er leiðangur til að hlusta á
góuvælið ætti embætti umhverf-
is að senda út leiðangur til að
kanna ástand mófuglastofna vítt
um land og láta kanna ástand
minkastofnsins.
Nú kom í ljós við könnun
Bændablaðsins að krafan um
endurheimt votlendis er byggð
á grunni sem ábyrgir aðilar
myndu ekki samþykkja. Það
hefði verið hollt fyrir starfs-
menn umhverfisráðuneytisins
að kynna sér hvað náttúran er
búin að fylla upp sjálf af skurð-
um t.d. meðfram þjóðvegunum.
Nú í vetur hefði verið tæki-
færi til að sjá hvernig úrkoman
varð að snjó í vissri hæð og jók
þar með hættu á snjóflóðum
eins og á Flateyri. Það er ekki
til fyrirmyndar að rukka inn fé
í nafni lífsnauðsynlegs málefn-
is en láta hluta fjármagnsins í
eitthvað annað. Vonandi kemur
fjármagnið snarlega tilbaka því
það er bráðari þörf á snjóflóða-
vörnum en t.d. hálendisþjóð-
garði.
Umhverfisráðherra ætti að
einbeita sér að því að verja
landið fyrir þeirri óværu sem
laumast með í blómapottum og
óhreinum bílum og skoða hvern-
ig Ástralir og Nýsjálendingar
verja löndin sín. Kolefnisspor
280 tonna af mold er líklega
ekki til að tala um í viðbót við
allt annað sem ekki þarf að flytja
inn.
Meðan Þorgerður Katrín var
landbúnaðarráðherra hafði hún
borgarbörn í þjónustu sinni. Hún
hældi þeim mikið á aðalfundi
L.S.
Ef þessi borgarbörn eru enn
starfskraftar landbúnaðarráðu-
neytisins undrar mig ekki á
ýmsu er frá þeim stað kemur
eins og gerðist í Katrínar tíð.
Kristján Þ.J. hlýtur að hafa
þekkingu á sóttvörnum eftir veru
sína í heilbrigðisráðuneytinu og
þar með átta sig á alvarleika þess
að draga úr viðhaldi sauðfjár-
veikivarnalína.
Matvælastofnun er áreið-
anlega í fjárhagskröggum eftir
dóminn og sektina í sambandi
við kjötbökuna og fleiri sektir,
það er hastarlegt ef þau vinnu-
brögð eiga að bitna á sauð-
fjárbændum. Nú skulu erlend
vottorð gilda að mestu svo það
léttir á MAST fjárhagslega og
vinnulega. Íslendingar hafa í
gegnum tíðina fengið að kenna
á því að gagnrýna ekki erlend
vottorð. Þau eru mjög oft miðuð
við annað umhverfi en hér er.
Frumvarp er í smíðum er mun
leyfa að sauðfé sé ómarkað með
eingöngu plötu til aðgreiningar.
Að þessu hljóta að standa aðil-
ar sem hafa mjög litla eða enga
þekkingu eða reynslu af sauðfé
og þekkja ekki sneitt frá stýft
hvað þá meira. Því stærri sem
platan er því meiri hætta er á
að hún rifni úr eyranu. Þeir sem
koma með svona hugmynd hljóta
að vera ungbörn sem lesa bara
tölur í réttum á haustin. Stjórn
L.S. hlýtur að taka hraustlega á
svona rugli.
Landgræðslustjóri vill
setja allt sauðfé í heimahólf.
Sennilega er honum ekki sjálfrátt
eða ráðgjafar hans vita ekki hvað
kostar að girða km og enn síður
hvað viðhald er og kostnaður
yrði mörgum ofviða ekki síður
en sauðfjárveikivörnum.
Eitt og annað vekur athygli
eins og öll flötu þökin á
nýbyggingunum. Ég veit að
vatn sækir niður í móti og það
er tilfellið með húsnæðið sem
heilbrigðiskerfið getur ekki
notað því vatninu nægði ekki að
fara niður á efstu hæðina heldur
hélt áfram niður á næstu hæð.
Hver er ábyrgur? Ég hélt að þetta
byggingarlag hentaði ekki nema
þar sem rignir bara kannski einu
sinni á ári en ekki hér á landi.
Myglu í yngri húsum er vert að
kanna. Það er mikill kostnaður
að endurbyggja hús og mygla er
slæm fyrir heilsuna.
Það er margt sem mér finnst að
margur um slíkt ræðir.
Sýnist öðrum sitt um það
sérlega ef hann græðir
Gunnar Þórisson
Vangaveltur
LESENDABÁS
PRÓPÍONSÝRA
Ný
tt!
208L - kr. 56.110 án vsk.
1000L - kr. 249.900 án vsk.
Örugg varðveisla á byggi allan geymslutímann.
Hámarksvörn gegn myglu- og gersveppum.
Heldur aftur af óæskilegri gerjun.
Eykur fóðurinntöku.
Kostir notkunar
Sími 480 5600
Gunnbjarnarholti, 804 Selfossi
Sími 480 5610
Kaupvangi 10, 700 Egilsstöðum