Bændablaðið - 10.09.2020, Side 51
Bændablaðið | Fimmtudagur 10. september 2020 51
Stöndum saman að
Íslenskum landbúnaði
Frá því Ísland byggðist hefur
landbúnaður verið samofinn
íslensku samfélagi. Fólk þurfti að
hafa mat ofan í sig og sína, þar
með voru fjölskyldur aðallega með
eitthvað af sauðfé og mjólkurkúm
auk þess sem það hafði kartöflur og
fleira til ræktunar. Með þessu móti
hafði fólk mat ofan í sig og sína, sem
sagt fæðuöryggi.
Hér áður fyrr hafði fólk til sveita
ekki annað en landbúnaðarafurðir til
að nærast á, þeir sem bjuggu við sjó
og vötn urðu sér einnig úti um fisk.
Mikil umræða hefur verið í
þjóðfélaginu um bændur undanfarin
ár, bæði jákvæð en meira hefur borið
á þeirri neikvæðu. Mest hefur borið á
gagnrýni hvað varðar umönnun dýra
og landsins okkar. Þessi gagnrýni er
mjög góð að ég tel og hafa bændur
tekið sig mikið á bæði í umönnun
dýra sinna og ekki síst hvernig á að
fara með það land sem þeir ráða yfir
og nýta.
Mikill fjöldi bænda eru að
græða upp land og eru í verkefni
sem ber nafnið „Bændur græða
landið“ (sjá https://land.is/baend-
ur-graeda-landid/). Í þessu verkefni
hafa bændur staðið sig mjög vel og
lagt mikla og ómetanlega vinnu í
þetta verkefni.
Ég get fullyrt að allflestir bænd-
ur huga vel að sínum dýrum og
þykir vænt um þau. Þeir eru með-
vitaðir um þau lög og reglur sem
þessu fylgir. Bændur hafa tileinkað
sér gæðastýringu, á hverju búi eru
til gæðastýringarferlar.
Sama á við hvað varðar landið,
bændum er mjög annt um sitt land
og hvernig gengið er um það og
ekki síst hvernig það er nýtt.
Í sameinuðu sveitarfélagi
Borgar fjarðarhrepps, Djúpavogs-
hrepps, Fljótsdalshéraðs og
Seyðisfjarðarkaupstaðar er stundaður
mikill og góður landbúnaður. Þar
leitast bændur við að hafa afurðirnar
sem sjálfbærastar og lausar við
sýklalyf. Í sauðfjárbúskap er ungviðið
einungis á húsi eina til tvær vikur áður
en því er hleypt út og síðan komið
í hagann, tekið heim úr haganum
að hausti og þá á sláturhús. Þetta er
hvað næst því sem hægt er að tala um
lífrænt ræktað kjöt. Nautgripir komast
út eins og reglugerðir segja til um.
Við þurfum að tala þannig um
landbúnað að fólk geri sér grein fyrir
hversu mikilvægur hann er landanum
í fæðuörygginu og hreinum afurðum,
og afurðaverð þarf að verða þannig
að bændur geti stundað sína vinnu
án aukavinnu.
Við þurfum að efla nýsköpun í
landbúnaði og styðja vel við það að
bændur geti unnið sína vöru heima
og komið henni beint til neytenda,
þannig eflum við verðmætasköpun
og afkomu búanna.
Nú þegar þessi veirufaraldur
gengur yfir okkur er nauðsynlegt
að heilbrigðisþjónusta sé í lagi. Við
þurfum líka að tryggja næga fæðu
handa landanum þ.e. að fæðuöryggið
sé í lagi og fæðan sé hrein og laus
við sýklalyf. Læt fylgja hér graf
sem tekið hefur verið saman vegna
sýklalyfjanotkunar í landbúnaði og
sýnir frábæra stöðu okkar í þeim
efnum.
Nýlega birtist grein frá land-
græðslustjóra þar sem hann talar
um að sauðfé eigi að vera í lokuð-
um girðingum þ.e. beitarhólfum.
Þar endurspeglast sjónarmið sem
hafa orðið háværari síðustu ár. Þessa
umræðu eigum við bændur að taka og
leggja okkar af mörkum að farsælli
niðurstöðu. Fyrir samfélögin, landið
okkar og búfénaðinn.
Það tíðkast víða úti um heim að
fé sé haft í beitarhólfum. Þegar beit
er búin í viðkomandi hólfi er skipt
yfir í annað og hitt látið gróa. Slík
stýring á beit hefur kosti, en þarna
verða í sumum tilvikum til ýmis
sýklavandamál sem skapast af því
að hólfin eru beitt svo mikið að dýrin
eru farin að éta skít undan sjálfum sér
og þarf þá að grípa til sýklalyfja. Þetta
er ekki það sem við myndum vilja sjá
í kjötframleiðslu á Íslandi. Bætum
það sem bæta þarf, en fórnum ekki
styrkleikum okkar.
Jakob Sigurðsson
Höfundur er oddviti
Borgarfjarðarhrepps og
er í fjórða sæti á lista
Sjálfstæðisflokksins í
nýsameinuðu sveitarfélagi
Borgarfjarðarhrepps,
Djúpavogshrepps,
Fljótsdalshéraðs og
Seyðisfjarðar.
Jakob Sigurðsson.
Í sameinuðu sveitarfélagi Borgar
fjarðarhrepps, Djúpavogs hrepps,
Fljótsdalshéraðs og Seyðisfjarðar
kaupstaðar er stundaður mikill og
góður landbúnaður.
LESENDABÁS
Bænda
Smáauglýsingar 56-30-300
24. septemberSími: 563 0300 / Netfang: bbl@bondi.is / bbl.is
41,9% fólks
á landsbyggðinni
les Bændablaðið
21,9% 41,9%
á landsbyggðinni
á höfuðborgarsvæðinu
29,2%
landsmanna lesa
Bændablaðið
Lestur Bændablaðsins: BÆNDABLAÐIÐ ER GEFIÐ ÚT Í 32 ÞÚSUND
EINTÖKUM Á TVEGGJA VIKNA FRESTI
Heimild: Prentmiðlakönnun Gallup, okt.-des. 2019. Aldur 12-80 ára.
Hvar auglýsir þú?
Garðeigendur hafa verið dugleg-
ir að gróðursetja tré, runna og
blóm í garða sína í vor og sumar.
Þeir eiga því láni að fagna að hér
eru starfandi garðplöntustöðvar
sem stýrt er af vel menntuðum
sérfræðingum í plöntuuppeldi og
þangað má sækja bæði fræðslu,
upplifun og úrval tegunda sem
henta íslenskum aðstæðum.
Það er vandaverk að framleiða
til sölu runna og tré sem taka
vel við sér að gróðursetningu
lokinni. Stálpuð trjáplanta með
vel þéttu rótarkerfi sem þolir vel
flutning hefur fengið uppeldi
sem getur tekið mörg ár og ótal
handtök í gróðrarstöðinni. Sáning
trjáfræs krefst bæði séraðstöðu og
þekkingar og ungplönturnar eru
viðkvæmar. Tegundir og yrki þeirra
hafa farið í gegnum strangt úrval
áður en þær eru settar á markað og
ekki hætta á að neytandinn kaupi
köttinn í sekknum.
Ekki er ástæða til að gróðursetja
mjög hávaxin tré í heimilisgarða.
Oft eru notaðar trjáplöntur sem
eru hálfur til einn metri á hæð og
þá er ekki nauðsynlegt að binda
þær sérstaklega upp. Hærri plöntur
gætu þurft stuðning í eitt til tvö ár
til að rótarkerfið haggist ekki eftir
gróðursetningu. Garðeigandinn
þarf að velja plöntunni stað eftir
þörfum hverrar tegundar og hafa
í huga að trén geta á fáum árum
orðið stór og krónumikil. Því er
mikilvægt að þau séu ekki gróð-
ursett of nærri húsum eða lóða-
mörkum. Vetrarskýling getur verið
nauðsynleg sumum tegundum en
þar hefur gróðursetningartíminn
ekki úrslitaáhrif.
Haustið er ákjósanlegur
gróðursetningartími
Reynslan hefur kennt okkur að
haustið hentar vel til að gróður-
setja tré og runna. Plöntur sem
fást í gróðrarstöðvum á þeim tíma
hafa að jafnaði lokið hæðarvexti og
lauftré eru tekin að sölna lítið eitt.
Rótarvöxturinn er samt í fullum
gangi fram eftir hausti, þótt lítið
beri á. Næring úr laufi dregst niður
um stofninn og veitir rótarkerfinu
orku til að starfa áfram. Í raun er
hægt að gróðursetja trjáplöntur svo
langt fram eftir hausti sem hægt er
að grafa holu í jörðina með góðu
móti, en hentugra er ef rótarkerfið
fær að vaxa í fáeinar vikur eftir
gróðursetningu. Þá er plantan til-
búin til vaxtar um leið og vorar
á ný. Septembermánuður er því
sérlega hentugur tími til gróður-
setningar og þá er enn úrval trjáa
og runna til sölu í garðplöntustöðv-
unum.
Oft er það svo að tré og runnar
sem gróðursett eru að vori þarf
að vökva vel allt sumarið þegar
þurrkar ganga. Á haustin losnar
ræktandinn við þær áhyggjur.
Jarðraki er nægur og því ekki
ástæða til sífelldrar vökvunar, nóg
er að vökva vel eftir gróðursetn-
ingu og spara ekki safnhaugamold-
ina. Tré eru gróðursett á þann hátt
að plöntuhnausinn allur er settur
á kaf en þess gætt að stofninn fari
ekki neðar en hann stóð í upp-
eldinu. Runnagróður er hægt að
gróðursetja heldur dýpra.
Gróðursett í
sumarhúsalóðina
Öll sömu lögmál gilda um
gróðursetningu smáplantna í stærra
land, til dæmis í sumarhúsalóðina.
Þar er bæði hægt að nota stálpaðar
hnaus- eða pottaplöntur og
skógarplöntur sem seldar eru
í bökkum. Í óræktuðu, rýru
landi gæti þurft að taka tillit til
hugsanlegrar holklakamyndunar
við val á staðsetningu en að öllu
jöfnu hentar vel að gróðursetja þær
á haustin. Plönturnar eru komnar
í vetarhvíld og ekki er hætt við
ofþornun, sem verður margri
smáplöntunni að aldurtila þegar
gróðursett er á vorin og sumrin.
Allar tegundir njóta góðs af
haustgróðursetningu
Gott er að nota haustið við
gróðursetningu þeirra trjá- og
runnategunda sem framleiddar
eru í íslenskum gróðrarstöðvum.
Barrtré, lauftré, skrautrunnar og
limgerðisplöntur fagna því að
losna úr þrengslum pottsins eða
rótarhnaussins, nota haustið til rót-
arvaxtar og launa ræktandanum
með kröftugum vexti næsta vor.
Ingólfur Guðnason,
brautarstjóri garðyrkjufram-
leiðslu Garðyrkjuskóla LbhÍ
Reykjum, Ölfusi
GARÐYRKJUSKÓLI LBHÍ REYKJUM
Gróðursetjum tré og
runna á haustin
Stálpuð trjáplanta með vel þéttu rótarkerfi sem þolir vel flutning hefur
fengið uppeldi sem getur tekið mörg ár og ótal handtök.
Mynd / Björgvin Eggertsson