Bændablaðið - 10.09.2020, Qupperneq 53
Bændablaðið | Fimmtudagur 10. september 2020 53
síðustu ára sem gerir hann álitlegan
kost ásamt háum efnahlutföllum og
úrvalsgóðri júgurgerð. Rétt er að
hafa bak við eyrað að spenar dætra
hans eru fremur grannir. Hæll hækk-
aði um eitt stig og stendur nú í 109
í heildareinkunn.
Hnykkur 14029, f. Lögur 07047,
mf. Stígur 97010. Hnykkur er
efnahlutfallanaut auk þess sem dætur
hans hafa til að bera ákaflega vel
borin júgur með mikla festu. Hann
gefur nokkuð granna spena. Fyrir
marga hljómar einnig spennandi
að allnokkur hluti afkvæma hans
skartar gráum lit enda var hann
sjálfur kolgráskjöldóttur. Hnykkur
er nú með 104 í heildareinkunn eftir
að hafa lækkað um eitt stig.
Kláus 14031, f. Hjarði 06029,
mf. Laski 00010. Kláus er í hópi
nautsfeðra enda eru dætur hans
sérlega mjólkurlagnar með góð
efnahlutföll í mjólk. Þær eru einnig
ákaflega skapgóðar en aðrir þættir
liggja nærri meðaltali. Kláus er
sammæðra Bárði 13027 en víst er
að fáar kýr geta státað af því að hafa
skilað tveimur nautum í hóp reyndra
nauta. Kláus lækkaði um tvö stig
en stendur eftir sem áður með 108 í
heildareinkunn.
Stáli 14050, f. Lögur 07047, mf.
Reykur 06040. Styrkleikar Stála
felast í góðri mjólkurlagni dætra,
prýðilegri júgur- og spenagerð auk
þess sem mjaltir og skap eru ofan
meðallag. Stáli lækkaði um tvö stig
milli keyrslna og stendur nú í 104 í
heildareinkunn.
Bjarki 15011, f. Laufás 08003,
mf. Ás 02048. Bjarki kom til
notkunar í vetur og hefur fengið
góða notkun. Hans styrkleikar liggja
mjólkurlagni, góðri júgurgerð og
úrvalsgóðum mjöltum og skapi.
Hafa verður í huga að spenar eru
nokkuð grannir. Bjarki lækkaði um
tvö stig og er nú með heildareinkunn
upp á 107.
Risi 15014, f. Laufás 08003, mf.
Hjarði 06029. Risi er eitt þeirra nauta
sem kom í notkun s.l. vetur og er
núna tekinn í flokk nautsfeðra. Risi
er með jákvætt mat fyrir flesta þætti
en hvað öflugastur hvað afurðagetu
snertir, einkum mjólkurmagn og
fituhlutfall. Þá er júgurgerð dætranna
góð, spenar fremur stuttir, mjaltir
góðar og skapið framúrskarandi.
Dætur Risa eru stórar kýr, nokkuð
sem gott er að hafa í huga við notkun
hans. Risi hækkaði um eitt stig og er
heildareinkunn hans nú 109.
Golíat 15018, f. Laufás 08003,
mf. Bolti 09021. Golíat kom til
notkunar á liðnum vetri og hefur
verið vel tekið. Styrkleikar hans
liggja í mikilli mjólkurlagni dætra,
góðri júgur- og spenagerð, góðum
mjöltum og prýðilegri skapgerð
en Golíat kemur ákaflega vel út í
gæðaröð. Hins vegar er fituhlutfall
í mjólk dætra í lægri kantinum.
Golíat gefur stórar kýr sem vekur
enga furðu ef litið er til ætternis
hans. Golíat hækkaði um eitt stig
og stendur nú í 107 í heildareinkunn.
Jólnir 15022, f. Bambi 08049,
mf. Sússi 05037. Jólnir varð fyrsti
sonur Bamba sem kom til notkunar
sem reynt naut síðasta vetur.
Jólnir er ákaflega jafn hvað flesta
eiginleika varðar en hvað sterkastur
í afurðagetu þar sem dætur hans
eru mjólkurlagnar með fremur há
efnahlutföll í mjólk. Rétt er að
hafa í huga að Jólnir gefur granna
spena. Hann stendur nú með 106 í
heildareinkunn eftir að hafa lækkað
um tvö stig.
Ný reynd naut í notkun
Að þessu sinni var ákveðið að
taka þrjú ný naut til notkunar sem
reynd naut. Þar er um að ræða einn
Toppsson og tvo Bambasyni.
Köngull 05019 er frá Auðsholti
í Hrunamannahreppi undan Toppi
07046 og Furu 933 Bambadóttur
08049. Köngull er efnahlutfallanaut
en dætur hans státa af háum
hlutföllum fitu og próteins í mjólk.
Hins vegar er afurðagetan hvað
mjólkurmagn varðar undir
meðallagi. Júgurgerð dætra Könguls
er með afbrigðum góð og spenar vel
gerðir en stuttir. Mjaltir þessara kúa
eru góðar sem og skapið. Köngull er
með 108 í heildareinkunn.
Svampur 15027 er frá Bakka á
Kjalarnesi undan Bamba 08049 og
Kommu 379 Skurðsdóttur 02012.
Dætur Svamps eru meðalkýr ef litið
er til afurðagetu en kostir þeirra
liggja í júgurhreysti, góðum mjöltum
og afburðagóðu skapi. Hafa þarf í
huga að þrátt fyrir góða spenagerð
eru spenarnir stuttir. Svampur er með
106 í heildareinkunn.
Ábóti 15029 er frá Skipholti 3 í
Hrunamannahreppi undan Bamba
08049 og Abbadís 469 Þollsdóttur
99008. Styrkur Ábóta liggur í
stórgóðri júgurgerð og mikilli
júgurhreysti. Spenar eru vel gerðir
en ákaflega fíngerðir, bæði fremur
stuttir og mjög grannir. Undan Ábóta
geta komið skapgallaðir gripir án
þess að hægt sé að flokka það sem
vandamál. Heildareinkunn Ábóta
er 108.
Nautsfeður
Að undanförnu hefur Nautastöðin
einkum verið að kaupa kálfa
undan Sjarma 12090, Jörfa 13011,
Hálfmána 13022 og Ými 13051.
Segja má að kominn sé nægur fjöldi
undan þessum nautum nema Ými
en komi nautkálfur undan þessum
nautum og afbragðskúm er það að
sjálfsögðu skoðað.
Á næstu vikum verður sjónum
einkum beint að kálfum undan Pipar
12007, Hæl 14008 og Kláusi 14031.
Þeim tilmælum er beint til manna
að láta sæða kýr á nautsmæðraskrá
og efnilegar kvígur með einhverju
eftirtalinna nauta; Pipar 12007, Ými
13051, Hæl 14008, Kláusi 14031
eða Risa 15014. Ými skal ekki nota
nema á kýr með há efnahlutföll í
mjólk.
Nautsmæður
Á nautsmæðraskrá í Huppu (með
rautt flagg) eru kýr með a.m.k. 106
í heildareinkunn, 90 fyrir fituhlutfall
og 100 fyrir mjaltir. Þegar tilkynnt
er um nautkálf undan væntanlegri
nautsmóður eru aðrir þættir vegnir
og metnir svo sem afurðir og
frjósemi.
Á skrá yfir efnilegar kvígur (með
grænt flagg) eru kvígur sem eru með
a.m.k. 108 í heildareinkunn, 90
fyrir fituhltfall og 100 fyrir mjaltir.
Þegar tilkynnt erum nautkálf undan
kvígu eru aðrir þættir skoðaðir og
beðið fyrstu mælingar, kýrsýnis og
ákveðinnar reynslu áður en ákvörðun
um framhaldið er tekin.
Mjaltaathugun
Að öllu jöfnu er keyrð mjaltaathugun
tvisvar sinnum á ári. Þessi
upplýsingaöflun gefur mikilsverðar
upplýsingar um dætur nautanna og
er mikilvægur þáttur í afkvæmadómi
þeirra. Illu heilli hafa skil á
mjaltaathugunum farið versnandi
og nú er svo komið að þetta er sá
þáttur sem mest tefur afkvæmadóm
nautanna en eftir upptöku
mælidagalíkans fyrir afurðir fæst
mat á þær mun fyrr en áður. Síðasta
athugun var keyrði í apríl s.l. og þá
uppfylltu 464 bú skilyrðin sem eru
að á búinu séu a.m.k. fimm kýr sem
ekki hafa áður verið í athugun og
engin þeirra sé samfeðra. Af þessum
464 búum hafa 302 eða 65% skilað
athuguninni þegar þetta er skrifað.
Fyrir aðeins örfáum árum síðan var
skilahlutfall alla jafnan um og yfir
90%. Ég vil því biðja menn að fylla
út og skila mjaltaathugun eins fljótt
og kostur er þannig að þessi þáttur
tefji ekki afkvæmadóm nautanna.
Nautakosturinn
Eins og sjá má á yfirlitinu hér á
undan er sá nautakostur sem í boði
er fjölbreyttur og mörg nautanna
hafa mikla kosti til að bera. Eins
og gengur eru þeir misjafnir og því
þarf að huga að pörun þeirra við
einstakar kýr af kostgæfni. RML
býður upp á gerð pörunaráætlana
og fyrir þá sem hafa áhuga á því
er um að gera að notfæra sér þá
þekkingu sem ráðunautar RML hafa
á einstökum nautum, kostum þeirra
og göllum.
Hópur reyndra nauta í notkun
hefur oft verið öflugri en nú en það
er samt engin ástæða til að örvænta.
Í boði eru úrvalsgóð naut þar sem
hægt er að finna kosti sem fallið geta
vel að þeim kostum og göllum sem
þær kýr eða kvígur sem sæða á hafa
til að bera. Við val nautanna er ávallt
reynt að horfa til ætternis þannig að
ekki þurfi að sæða kýr eða kvígur
með of skyldum nautum en það er
eitthvað sem ávallt þarf að hafa í
huga þegar um er að ræða jafn lítinn
stofn og íslenski kúastofninn er.
Óreynd naut
Útsending úr nautum fæddum 2018
er langt komin og mun ljúka á næstu
vikum. Þar er um að ræða syni
Lúðurs 10067, Dropa 10077, Gýmis
11007 og Skalla 11023. Árgangurinn
frá 2019 tekur þá við en þá munu
koma til dreifingar nokkrir synir
Bakkusar 12001 auk fyrstu sona
Sjarma 12090 og Jörfa 13011.
Að lokum
Kynbótastarf í nautgriparækt
tekur langan tíma með því kerfi
afkvæmaprófana sem við búum við
í dag. Hornsteinar þess eru gott og
vandað skýrsluhald og mikil og góð
þátttaka í sæðingum. Oft hefur verið
rætt um mikla notkun heimanauta
hérlendis og reyndin er sú að um
30% allra kálfa sem fæðast eru undan
heimanautum. Kynbótastarfið er
því keyrt á 2/3 mögulegra afkasta.
Sambærilegar tölur frá hinum
Norðurlöndunum eru að innan við
10% kálfa eru undan heimanautum.
KLETTUR / SALA OG ÞJÓNUSTA / KLETTAGARÐAR 8-10
104 REYKJAVÍK / 590 5100 / klettur.is
Eigum á lager nýja kynslóð af MultiOne EZ-7
liðléttingum sem eru 100% rafknúnir með
góða endingu á rafhlöðunni.
Frábær fjölnotavél með 1600 kg lyftigetu
og möguleika á ýmsum aukahlutum.
Vélarnar afhendast með skóflu og taðgreip.
Hafðu samband við Ívar Atla í síma 590 5116
eða sendu línu á iab@klettur.is.
Ný kynslóð
100% rafmagn!
Svampur 15027.
Sími: 517-8240 - Súðarvogur 20 - www.eyjalind.is
Vertu vinur okkar á Facebook
Sæti og varahlutir í
- Lyftara
- Vinnuvélar
- Vörubíla
- Báta