Morgunblaðið - 12.12.2020, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 2020
ÍTý í Viðskiptablaðinu er vikið aðRóbert Spanó, forseta Mannrétt-
indadómstóls Evr-
ópu í Strassborg, og
bent á að á ársfundi
Evrópusambands
blaðamanna í síð-
asta mánuði hafi
verið samþykkt
harðorð ályktun
gegn honum „og
þess krafist að hann víki úr embætti
vegna framgöngu hans í heimsókn
til Tyrklands í september“.
Í pistlinum er rakið nánar hversvegna heimsóknin var að-
finnsluverð og sagt að útlit sé fyrir
að hún hafi „ grafið undan
trúverðugleika dómstólsins á al-
þjóðavettvangi. Við því má dóm-
stóllinn ekki því undanfarin ár hef-
ur hann hlotið mikla gagnrýni fyrir
svokallaðar framsæknar lögskýr-
ingar í dómum sínum. Hann þykir
þannig búinn að gleyma upphaflegu
hlutverki sínu og farinn að gera til-
raunir til að setja einstökum ríkjum
lög. Sú gagnrýni er ekki ný af nál-
inni og hefur ekkert með úrskurð
hans í Landsréttarmálinu að gera.
Tý er vel minnisstætt þegar David
Cameron, þá forsætisráðherra Bret-
lands, sagði sig verkja um líkamann
vegna máls sem MDE vildi þröngva
upp á Breta. Meðal stjórnvalda í
Bretlandi og Danmörku hefur það
komið til alvarlegrar skoðunar að
segja sig frá MDE.“
Ásælni Mannréttindadómstólsinsí aukin völd á kostnað fullvalda
aðildarríkja hans er verulegt
áhyggjuefni og skiljanlegt að Bret-
ar og Danir hafi skoðað það alvar-
lega að segja sig frá þessari sér-
kennilegu stofnun. Dómstóll, ef
dómstól skyldi kalla, sem kveður
upp dóm eins og þann sem Ísland
fékk að upplifa á dögunum hefur í
besta falli týnt tilgangi sínum og
finnist hann ekki hljóta fleiri ríki að
íhuga að segja sig frá honum.
Þeirra á meðal Ísland.
Róbert Spanó
Áttavilltur
dómstóll
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Borgarráð samþykkti á síðasta fundi
tillögu borgarstjóra þess efnis að
gerð verði viljayfirlýsing við áhuga-
sama fjárfesta sem hyggjast endur-
nýja, byggja upp og mæta þörfum
fjölbreyttra jaðaríþrótta í Toppstöð-
inni í Elliðaárdal.
Reykjavíkurborg auglýsti á dög-
unum eftir hugmyndum um nýtingu
og endurgerð Toppstöðvarinnar í
Elliðaárdal. Fram kemur í greinar-
gerð að í kjölfarið hafi borginni bor-
ist erindi fjárfesta sem eru tilbúnir
að leggja fram eigin fé og lánsfé til
að umbreyta húsnæðinu í fjölbreytta
miðstöð jaðaríþrótta í borginni,
þ.m.t. aðstöðu fyrir klifur, hjólreið-
ar, keilu, bretti o.fl.
Lagt er til að gerð verði vilja-
yfirlýsing um verkefnið til að við-
komandi aðilar geti fullkannað fjár-
mögnun og leigusamninga við aðila
og félög tengd jaðaríþróttum. Einn-
ig verði gert ráð fyrir að ÍBR leiði
vinnu með jaðaríþróttafélögum og
geri þarfagreiningu og rekstrar-
áætlanir fyrir þeirra þarfir þannig
að hagsmuna þeirra sé gætt í kom-
andi viðræðum.
Toppstöðin er rúmlega 6.000 fer-
metra bygging, reist árið 1948, og
var um árabil notuð sem vararafstöð
fyrir Reykjavík. Borgin hyggst setja
200 milljónir króna í viðhald og end-
urbætur á húsnæðinu á næstu
tveimur árum. sisi@mbl.is
Verða jaðaríþróttir í Toppstöðinni?
Reykjavíkurborg samþykkir að ganga til samninga við áhugasama fjárfesta
Tölvumynd/Trípólíarkitektar
Toppstöðin Svona gæti húsið litið
út að loknum endurbótum á því.
Framkvæmdasvæðið við Tryggva-
götu, frá Pósthússtræti um Naustin
og framhjá Listasafni Reykjavíkur,
hefur verið búið undir tímabundna
opnun. Gatan verður opin fyrir allri
umferð frá og með mánudeginum 14.
desember.
Framkvæmdir við endurgerð
Tryggvagötu, fyrir framan Toll-
húsið, hófust í sumar. Gatan var
grafin upp og allar lagnir í götunni
endurnýjaðar en sumar þeirra voru
orðnar nærri 100 ára gamlar.
Tryggvagata var malbikuð í vik-
unni og einnig göngustígur meðfram
Tollhúsinu og nú er verið að undir-
búa svæðið fyrir umferð bíla og
gangandi vegfarenda á meðan fram-
kvæmdir eru í vetrardvala. „Svæðið
hefur þá alla burði til að vera fjölsótt
og lifandi það sem eftir er aðvent-
unnar,“ segir í tilkynningu frá
Reykjavíkurborg.
Búið er að endurskoða áætlun yfir
verkið í heild. Ekki verður farið í
uppgröft á stéttum á þessu ári en
það verður gert eins fljótt og auðið
er á vormánuðum ásamt vinnu við
seinni áfanga Tryggvagötu, frá
Naustum að Grófinni. sisi@mbl.is
Ljósmynd/Reykjavíkuborg
Tryggvagata Búið að malbika götu og gangstétt og umferð brátt hleypt á.
Tryggvagata opnuð
fyrir umferð að nýju