Morgunblaðið - 12.12.2020, Blaðsíða 22
22 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 2020
ÚR BÆJARLÍFINU
Jónas Erlendsson
Vík í Mýrdal
Mýrdalurinn hefur fundið veru-
lega fyrir áhrifum af Covid-19, þar
sem stór hluti atvinnulífsins hefur
undanfarin ár snúist í kringum
ferðamenn. Það er því víða erfið
staða hjá þeim sem reka ýmiskon-
ar gistingu og matsölustaði, og þar
af leiðandi einnig í afleiddum störf-
um.
Þó að ferðaþjónustan sé í
dvala er fullt af framkvæmdum að
fara í gang. Sveitarstjórn Mýrdals-
hrepps hefur ákveðið að byggja
nýjan leikskóla í stað þess gamla
sem stendur við grunnskólann.
Hefja á framkvæmdir á næsta ári
og taka skólann í notkun 2022.
Gamli leikskólinn er búinn að vera
í miklum plássvandræðum.
Með byggingu nýs leikskóla
leysist einnig vandi grunnskólans,
sem vantar aukið kennslurými.
Ekki veitir af að stækka leikskól-
ann þar sem óvenjumörg börn
hafa fæðst í Mýrdalnum á árinu.
Einnig er Mýrdalshreppur að
vinna í endurnýjun á götum og
gangstéttum í þorpinu.
Vegagerðin vinnur nú að
undirbúningi og rannsóknum
vegna jarðganga í gegnum Reyn-
isfjall og nýrrar veglínu um Mýr-
dal. Er það í samræmi við gildandi
samgönguáætlun 2020-2024 vegna
forhönnunar og mats á umhverfis-
áhrifum verksins. Bora á holur
báðum megin fjallsins til að kanna
bergið. Eftir áramót verður byrjað
á nýrri tvíbreiðri brú yfir Jökulsá
á Sólheimasandi sem á að verða
tilbúin eftir ár.
Þá hefur ungt fólk í Víkinni
hafið rekstur á verslun sem heitir
FB lagnir, í hluta af gamla Slátur-
félagshúsinu. Þau ætla að vera
með vörur frá Bílanausti og Sindra
ásamt byggingavörum, einnig eru
komnar gjafavörur og leikföng.
Þessi verslun er nokkuð sem hefur
vantað lengi í Víkinni og er til
mikilla þæginda fyrir íbúa svæð-
isins sem áður þurftu að keyra út í
Hvolsvöll ef vantaði eina skrúfu.
Prjónastofan Katla hefur
einnig tekið til starfa en hún er í
eigu ungs fólks sem flutti til Víkur
frá Póllandi og hefur búið hér í
nokkur ár. Þau eru að prjóna ull-
arvörur, svo sem húfur úr íslenskri
ull, og selja vörurnar bæði hér í
Vík í Mýrdal og annars staðar á
Íslandi, einnig er stefnt á útflutn-
ing.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Rekstur Ásta Alda Árnadóttir í nýrri verslun sinni í Vík í Mýrdal er nefnist FB lagnir. Ýmsar vörur eru þar til sölu.
Verslun og prjónastofa í Vík
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Vík í Mýrdal Marek Rutkowski, eigandi prjónastofunnar Kötlu, að störfum
á prjónastofunni. Hann opnaði stofuna ásamt pólskum samlöndum sínum.
Skoðið fleiri innréttingar á
innlifun.is
Suðurlandsbraut 26 Sími 587 2700
Opið 11-18 virka daga, 11-16 laugardaga innlifun.is ÞÝSK GÆÐI
Nemendur 1. til 6. bekkjar Árskóla á
Sauðárkróki fengu nýverið endur-
skinsvesti að gjöf frá Kiwanis-
klúbbnum Drangey í Skagafirði og
VÍS. Athöfnin fór fram skömmu áð-
ur en árleg friðarganga Árskóla
hófst í upphafi aðventunnar.
Alls voru gefin 230 vesti en Kiw-
anismenn og VÍS hyggjast gefa
svona vesti í alla grunnskóla á Norð-
urlandi vestra, alls nærri 400 sér-
merkt vesti hverjum skóla.
Í Feyki var haft eftir kjörforseta
Drangeyjar, Gunnari Línberg Sig-
urjónssyni, að hugmynd að gjöfinni
hefði kviknað fyrir tveimur árum.
Nú sé hún orðin að veruleika. „Í
Covid er ekkert að gera svo maður
verður eitthvað að dunda sér við,“
sagði Gunnar og vonaðist til þess að
aðrir Kiwanisklúbbar á landinu
myndu fylgja fordæmi Drangeyjar á
sínum svæðum.
Með gjöfinni fylgdi sú ósk að vest-
in yrðu notuð við sem flest tækifæri,
ekki síst í svartasta skammdeginu.
Ljósmyndir/Drangey
Sauðárkrókur Nemendur á yngsta stigi Árskóla fá endurskinsvestin.
Endurskinsvesti til
nemenda Árskóla
Gjöf frá Kiwanismönnum og VÍS
Árskóli Fulltrúar Árskóla tóku við
gjöfinni frá Kiwanis og VÍS.
Borgarráð hefur veitt sviðsstjóra
velferðarsviðs heimild til að end-
urnýja þjónustusamning við Út-
lendingastofnun, þannig að allt að
300 umsækjendur um alþjóðlega
vernd fái þjónustu í Reykjavík. Með
því var brugðist við beiðni Útlend-
ingastofnunar, sem barst í október
sl., segir í tilkynningu frá borginni.
Allur kostnaður vegna samnings-
ins greiðist af Útlendingastofnun.
Jafnframt var sviðsstjóra veitt um-
boð til að ganga til samninga við fé-
lagsmálaráðuneytið um tilrauna-
verkefni um samræmda móttöku
flóttamanna. Að sögn Regínu Ás-
valdsdóttur, sviðsstjóra velferðar-
sviðs, er verið að ganga frá síðustu
lausu endunum varðandi þann
samning sem gerir ráð fyrir að vel-
ferðarsvið geti þjónustað allt að
380 flóttamenn á ári.
Umsækjendum um alþjóðlega
vernd sem setjast að í Reykjavík
hefur fjölgað verulega á undan-
förnum árum. Í fyrsta samningnum
sem Reykjavíkurborg gerði við Út-
lendingastofnun árið 2014 var allt
að 50 manns tryggð þjónusta. Í
samningnum sem gilti frá apríl
2019 veitti Reykjavíkurborg allt að
220 einstaklingum þjónustu.
Allt að 300 fá alþjóð-
lega vernd í Reykjavík
Bók Jóns Bald-
vins Hannibals-
sonar, Tæpi-
tungulaust –
lífsskoðanir jafn-
aðarmanns, kom
út í Litháen í
gær, 11. desem-
ber. Á þessu ári
eru 30 ár liðin
frá því að Lithá-
ar lýstu yfir end-
urreistu sjálfstæði þjóðarinnar en
Jón Baldvin, þá utanríkisráðherra,
var helsti stuðningsmaður Eystra-
saltsríkjanna í þeirri sjálfstæðis-
baráttu, segir í tilkynningu um bók-
ina. Útgáfan er hluti af afmælis-
dagskrá Litháa. Halda átti
sérstakan hátíðarfund í þjóðþingi
Litháens, Seimas, en var frestað
vegna Covid-19. Hafði Jóni Baldvini
verið boðið að ávarpa þingið, eins
og hann hefur gert árlega sl. 30 ár.
Formála í bókinni ritar málvís-
indamaðurinn Ramunas Bogdanas,
með yfirskriftinni „Ísbrjóturinn úr
norðri“.
Bók Jóns Baldvins
kom út í Litháen
Útgáfa Kápa bók-
arinnar í Litháen.