Morgunblaðið - 12.12.2020, Blaðsíða 53
ÍÞRÓTTIR 53
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 2020
Ég mun sjá eftir Jóni Þór
Haukssyni, landsliðsþjálfara
kvenna í knattspyrnu. Ég hafði
mínar efasemdir þegar hann var
ráðinn á sínum tíma enda nánast
algjörlega óreyndur þegar kom
að því að stýra knattspyrnuliði
upp á eigin spýtur. Árangur hans
með kvennalandsliðið talar sínu
máli og enginn þjálfari í sögu
landsliðsins er með betra sigur-
hlutfall en hann.
Það tala margir um það að við
höfum verið í léttum riðli í und-
ankeppni EM en var riðillinn eitt-
hvað léttari en síðustu fjórar
undankeppnir? Ísland er á leið-
inni á fjórða Evrópumeistara-
mótið í röð og miðað við upp-
ganginn í kvennaboltanum
undanfarin ár er alveg hægt að
gera því skóna að riðlarnir sem
liðið spilaði í undankeppninni
fyrir lokamótin 2009 og 2013
hafi verið talsvert léttari.
Landsliðsþjálfarinn fyrr-
verandi tók líka sénsinn á ungum
leikmönnum og gaf stelpum eins
og Alexöndru Jóhannsdóttur,
Sveindísi Jane Jónsdóttur og
Karólínu Leu Vilhjálmsdóttur al-
vöru tækifæri. Þær eru búnar að
spila einhverja nítján landsleiki
samanlagt en eru samt orðnar
ómissandi fyrir íslenska liðið. Og
þær verða orðnar ennþá betri í
lokakeppninni á Englandi 2022.
Jón Þór var afar þægilegur
þegar kom að allri fjölmiðla-
umfjöllun í kringum kvenna-
landsliðið og það var alltaf hægt
að ná í hann. Það er búið að
skrifa mikið um aðdragandann
að því að þjálfarinn ákvað að
hætta með liðið og það þarf ekki
að ræða það frekar.
Fyrir mitt leyti tel ég að fjöl-
miðlar hafi fjallað um málið af
fagmennsku, þótt það séu ein-
hverjir ósammála mér auðvitað,
en það er bara eins og það er.
BAKVÖRÐUR
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
SVÍÞJÓÐ
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Knattspyrnukonan Hlín Eiríks-
dóttir er tilbúin að taka næsta skref
á ferlinum en hún skrifaði undir
tveggja ára samning við sænska úr-
valsdeildarfélagið Piteå í gær.
Sóknarkonan, sem er tvítug að
aldri, er uppalin hjá Val á Hlíð-
arenda en hún heldur utan til Sví-
þjóðar strax eftir áramót og fer á
sína fyrstu æfingu hjá liðinu 11. jan-
úar.
Hlín hefur verið á meðal bestu
leikmanna úrvalsdeildar kvenna,
Pepsi Max-deildarinnar, undanfarin
tvö tímabil en hún á að baki 80 leiki
í efstu deild þar sem hún hefur
skorað 33 mörk.
Þá á hún að baki 18 A-landsleiki
fyrir Ísland þar sem hún hefur skor-
að þrjú mörk en hún lék sinn fyrsta
meistaraflokksleik fyrir Val árið
2015, þá nýorðin fimmtán ára göm-
ul.
„Það er gott að vera búin að klára
þetta og skrifa undir í Svíþjóð,“
sagði Hlín í samtali við Morgun-
blaðið.
„Þetta var virkilega erfið ákvörð-
un enda held ég að öllum finnist erf-
itt að yfirgefa uppeldisfélagið sitt.
Það kom sterklega til greina að vera
áfram í Val en að lokum valdi ég að
fara til Svíþjóðar á þessum tíma-
punkti.
Þegar allt kemur til alls fannst
mér ég tilbúin að taka næsta skref
og það vó þyngst í ákvörðun minni.
Valur vildi að sjálfsögðu halda mér
en á sama tíma fékk ég mjög góðar
ráðleggingar frá þjálfurum Vals og
ég fann fyrir miklum stuðningi inn-
an félagsins.
Það eru allir stoltir af mér innan
félagsins enda ekki á hverju degi
sem uppalinn leikmaður Vals fer í
atvinnumennsku,“ bætti Hlín við.
Eftirsótt á Norðurlöndum
Það voru nokkur lið sem höfðu
áhuga á sóknarmanninum efnilega.
„Það voru nokkur lið sem höfðu
áhuga á mér og það var erfitt að
velja á milli þeirra. Það voru tvö lið
sem ég þurfti að velja á milli og það
var eitthvað sem sagði mér að velja
Piteå. Mér fannst Piteå meira
spennandi að lokum og ég er sátt
með mína ákvörðun.
Það sem ég hef séð af sænsku
deildinni þá finnst mér hún vera sú
sterkasta á Norðurlöndum. Allir
leikir þarna eru mjög jafnir og það
er lítið um stór úrslit. Piteå endaði í
áttunda sæti deildarinnar á ný-
afstöðnu tímabili en var samt sutt
frá fimmta sætinu, sem segir manni
ýmislegt.
Hér heima er meiri styrkleika-
munur á liðunum og leikirnir mis-
krefjandi. Það eru mjög spennandi
hlutir í gangi hjá Piteå og það verð-
ur gaman að fá að taka þátt í þeim,“
sagði Hlín en lið Piteå varð óvænt
sænskur meistari árið 2018 og vann
þar sinn fyrsta meistaratitil.
Hefur sannað sig á Íslandi
Hlín er einungis tvítug að aldri en
hún hefur ekki miklar áhyggjur af
því að þurfa standa á eigin fótum.
„Ég ræddi við fullt af fólki sem ég
treysti mjög vel áður en ég tók
þessa ákvörðun, meðal annars eldri
stelpurnar í Valsliðinu og svo auð-
vitað þjálfarana líka. Ég sem mann-
eskja er tilbúin í að prófa eitthvað
alveg nýtt eftir góð síðustu ár á Ís-
landi.
Síðustu tvö tímabil hjá mér í
Pepsi Max-deildinni hafa verið góð
og mér finnst ég búin að sanna mig
heima ef svo má að orði komast. Ég
hef stimplað mig inn sem einn af
betri leikmönnum deildarinnar og
þá er góður tími til þess að takast á
við nýja áskorun.
Að sjálfsögðu langar mig að spila
á EM í Englandi sumarið 2022 en
ég er ekki að fara til Svíþjóðar til
þess að auka möguleika mína eitt-
hvað sérstaklega með landsliðinu.
Ég er að hugsa þetta í stærra sam-
hengi þótt ég sé líka með það á bak
við eyrað að EM sé eftir tvö ár.
Mig langar fyrst og fremst að
verða betri fótboltakona og mig
langar að gera ýmislegt eftir þetta
skref. Ég ætla mér að ná langt í fót-
boltanum og þetta skref er bara
hluti af því markmiði,“ bætti Hlín
við í samtali við Morgunblaðið.
Hallbera lék með Piteå
Piteå er frá samnefndri borg í
Norður-Svíþjóð, einni af þeim
nyrstu í landinu, enda á sömu
breiddargráðu og Akureyri, en þar
búa aðeins ríflega 23 þúsund manns.
Hlín ætti að geta fengið góð ráð
frá Hallberu Guðnýju Gísladóttur,
fyrirliða Vals, en hún er eini Íslend-
ingurinn sem hefur spilað með
Piteå, árin 2012 og 2013.
Skref í átt
að stærra
markmiði
Hlín Eiríksdóttir fer í atvinnu-
mennsku hjá Piteå í Svíþjóð
Morgunblaðið/Eggert
Svíþjóð Hlín Eiríksdóttir er á leið til Piteå í sænsku úrvalsdeildinni en hún
skoraði ellefu mörk í sextán leikjum Vals á Íslandsmótinu í ár.
Fyrsta keppnistímabil Fjölnis-
mannsins Kristjáns Arnar Krist-
jánssonar í atvinnumennsku í hand-
boltanum gengur nánast eins og
best verður á kosið.
Aix hefur byrjað frábærlega og
er í 2.-3. sæti í efstu deildinni í
Frakklandi. Liðið hefur unnið sjö
leiki af fyrstu átta í deildinni en átt-
undi sigurinn kom í gær.
Aix heimsótti Toulouse og sigr-
aði 35:28. Kristján skoraði þrjú
mörk og var með góða skotnýtingu
því hann skaut fimm sinnum á
markið í leiknum. kris@mbl.is
Enn einn sigurinn
hjá Kristjáni
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Frakkland Kristján Örn Krist-
jánsson er í toppbaráttu.
Guðni Bergsson, formaður KSÍ,
segir að sambandið hafi haft sam-
band við Svíann Lars Lagerbäck
vegna karlalandsliðsins í knatt-
spyrnu. Guðni sagði frá þessu í
samtali við Fótbolta.net í gær en lít-
ið kemur þar fram um hvað þeim
fór á milli. Guðni segist hafa rætt
við Lagerbäck um landsliðið og
mögulega aðkomu en einnig kemur
fram að rætt hafi verið við fleiri á
síðustu dögum og vikum. Lars Lag-
erbäck var landsliðsþjálfari frá
2011-2014 og frá 2014-2016 ásamt
Heimi Hallgrímssyni.
Lagerbäck inni í
myndinni hjá KSÍ
Morgunblaðið/Eggert
Landsliðið Ætli Lars Lagerbäck
hafi áhuga á starifnu?
Jóhann Berg
Guðmundsson,
landsliðsmaður
Íslands í knatt-
spyrnu og leik-
maður Burnley í
ensku úrvals-
deildinni, er tæp-
ur vegna meiðsla
þessa dagana og
því ólíklegt að
hann spili með
Burnley þegar liðið heimsækir Ars-
enal á morgun. Þetta kom fram hjá
Sean Dyche, stjóra Burnley, á
blaðamannafundi í gær en Jóhann
Berg hefur verið afar óheppinn
með meiðsli undanfarin tvö tímabil.
Gylfi Þór Sigurðsson er leikfær
að venju hjá Everton en þar vantar
samt fjóra menn vegna meiðsla.
Carlo Ancelotti knattspyrnustjóri
Everton sagði í gær að James Rod-
riguez, Seamus Coleman, Lucas
Digne og Fabian Delph væru allir á
sjúkralistanum en Everton fær
Chelsea í heimsókn í kvöld.
12. umferðin hófst í gærkvöld
þegar West Ham vann Leeds 2:1 á
Elland Road. West Ham er í 5. sæti
en mörkin skoruðu þeir Tomas
Soucek og Angelo Ogbonna með
skalla. Mateusz Klich hafði komið
Leeds yfir með marki úr víta-
spyrnu.
Ólíklegt að
Jóhann mæti
Arsenal
Jóhann Berg
Guðmundsson.
Danir eiga enn möguleika á að
komast í undanúrslitin á EM
kvenna í handknattleik eftir naum-
an sigur á Svíum, 24:22, í gær-
kvöldi. Kristín Þorleifsdóttir var
markahæst hjá Svíum.
Kristín, sem er af íslensku bergi
brotin, skoraði fjögur mörk fyrir
Svíþjóð og gaf eina stoðsendingu.
Er þetta í annað sinn í keppninni
sem hún er markahæst í sænska lið-
inu. Svíar eru þá úr leik í kapp-
hlaupinu um sæti í undanúrslitum.
Þær sænsku fóru illa að ráði sínu og
brenndu af síðustu þremur víta-
köstum sínum í leiknum.
Danir komast áfram í undan-
úrslit ef þeim tekst að vinna síðustu
tvo leikina en sá síðasti er gegn
Rússum og verður áhugaverður.
Danmörk er með fjögur stig og á
leik til góða á Frakka og Rússa,
sem eru með sjö stig. Frakkland og
Rússland gerðu í gær jafntefli,
28:28. Svíþjóð er með eitt stig í
milliriðlinum. kris@mbl.is
AFP
Markahæst Kristín fagnar einu markanna í gær en Danir fögnuðu sigri.
Kristín markahæst
hjá Svíþjóð í gær