Morgunblaðið - 12.12.2020, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 2020
Landsbankinn hefur selt eignarhlut
sinn í Stoðum hf. í opnu söluferli, en
frestur til að skila inn tilboðum í
söluferlinu var til kl. 17 þriðjudag-
inn 8. desember sl. Þetta kemur
fram í frétt á vef bankans.
Þar segir að Landsbankinn hafi
auglýst opið söluferli á allt að 12,1%
eignarhlut sínum í fjárfestinga-
félaginu Stoðum hf. þann 23. nóv-
ember sl. „Söluferlið fór fram í
samræmi við stefnu Landsbankans
um sölu eigna og var öllum opið
sem uppfylltu skilyrði um að teljast
hæfir fjárfestar,“ segir í fréttinni.
Söluandvirðið 3,3 milljarðar
Einnig segir á vef bankans að alls
hafi þrettán fjárfestar tekið þátt í
söluferlinu, en bankinn hafi tekið
tilboði Fossa markaða hf., fyrir
hönd hóps fjárfesta, í allan eign-
arhlutinn. Söluandvirði hlutanna
nemur um 3,3 milljörðum króna.
Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans
hafði umsjón með söluferlinu.
Á heimasíðu Stoða kemur fram
að félagið eigi eignir að verðmæti
160 milljónir evra, eða jafnvirði
tæplega 25 milljarða íslenskra
króna. Á meðal helstu skráðra
eigna eru eignarhlutir í Arion
banka, um 5% hlutur, og í Síman-
um, um 15% hlutur. Þá á félagið
óskráðar eignir eins og um 30%
hlut í Ortus Secured Finance í
Bretlandi.
Landsbankinn selur í Stoðum
Fossar markaðir keyptu allt 13 fjárfestar í söluferlinu
Morgunblaðið/Kristinn
Landsbankinn Hefur selt eignarhlut sinn í Stoðum í opnu söluferli.
DRAUMA
JÓLA-
GJÖFIN
VÖNDUÐ
OG HLÝ
DÚNÚLPA
LAUGARDAG 11-17
SUNNUDAG 13-17
Skipholti 29b • S. 551 4422
Skoðið laxdal.is
VERÐ
59.900 kr.
er bæði spennandi
og ógnvekjandi
Bókin fæst í Eymundsson
UNGMENNABÓKIN
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
Skoðið hjahrafnhildi.is
SKÓR Í ÚRVALI
28.980
28.980
Einnig til í svörtu
26.980
30.980
Það hefur sýnt sig að íslenska þjóðin stendur
saman, sýnir stuðning og samhug
eftir bestu getu.
Hægt er að leggja framlög inn á reikning
nr. 0101-26-35021, kt. 470269-1119
S. 551 4349, 897 0044, maedur@simnet.is
Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur
JÓLASÖFNUN
Opið í dag kl. 11-15
Bæjarlind 6 | sími 554 7030
Við erum á facebook
Stakir jakkar
Str. S-XXL
r. . 90
Á fundi borgarráðs á fimmtudaginn
var kynnt bréf fjármála- og áhættu-
stýringarsviðs þar sem óskað er eftir
að ráðið samþykki leigusamning um
Vörðuskóla við Barónsstíg. Var það
samþykkt.
Leigutakinn er Kisi Production ehf.
Í greinargerð segir að um sé að ræða
upptökur á dans- og söngvamyndinni
Abbababb! sem er byggð á söng-
leiknum Abbababb eftir Dr. Gunna og
„sýndur var við miklar vinsældir árið
2007“. Áætlað er að upptökur hefjist í
lok janúar 2021 en leigutími er frá
desember 2020 til 1. apríl 2021. Gert
er ráð fyrir að Reykjavíkurborg vinni
að viðgerðum og endurbótum á sama
tíma. Hið leigða húsnæði er alls 3.229
fermetrar og hefur staðið ónotað síð-
an 2019. sisi@mbl.is
Abbababb! tekið
upp í Vörðuskóla
Morgunblaðið/Golli
Lagahöfundur Dr. Gunni samdi
söngleikinn Abbababb! árið 2007.
„Það er enn þá einhver von fyrir
skjólstæðing minn að ná vopnum sín-
um. Hann hefur verið grátt leikinn í
þessu máli,“ segir Jón Steinar Gunn-
laugsson, lögmaður Kristins Sigur-
jónssonar, fyrrverandi lektors við
Háskólann í Reykjavík.
Búið er að fella úr gildi synjun
Hæstaréttar er varðar áfrýjunar-
beiðni Kristins. Lektorinn hafði
fengið synjun um áfrýjunarbeiðni í
dómstólnum, en hann tapaði máli
gegn skólanum í Landsrétti. Jón
Steinar segir að óskað verði eftir því
að Hæstiréttur taki málið fyrir.
Að sögn Jóns Steinars var synj-
unin felld úr gildi sökum þess að einn
dómara sem stóðu að afgreiðslu
synjunarinnar var jafnframt kennari
við Háskólann í Reykjavík. Skólinn
er málsaðili, en Kristinn hafði stefnt
skólanum vegna uppsagnar hans í
október í fyrra. Ástæða uppsagnar-
innar voru ummæli sem hann hafði
uppi á netinu.
Dómarinn sem um ræðir er Sig-
urður Tómas Magnússon. Segir Jón
Steinar að málið sé með miklum ólík-
indum. „Þegar ég fékk tilkynningu
um að málið hefði verið tekið fyrir af
þremur dómurum og synjað þá hug-
kvæmdist mér að skoða það betur. Í
ljós kom að einn dómaranna sem
tóku þessa ákvörðun er maður sem
hafði verið að kenna við HR,“ segir
Jón Steinar og bætir við að hann hafi
verið við störf á haustönninni sem er
að líða.
„Það kemur í ljós að hann hefur
verið að vinna í kennslu- og prófdóm-
arastörfum á haustmisserinu sem er
að líða. Hann hefur þegið laun fyrir
það. Þetta þýðir að dómari er að
þiggja greiðslur fyrir störf hjá öðr-
um málsaðila,“ segir Jón Steinar.
Synjun um áfrýjunar-
beiðni var felld úr gildi
Einn dómara var starfsmaður Háskólans í Reykjavík
Morgunblaðið/Eggert
Hæstiréttur Búið er að fella úr gildi synjun Hæstaréttar er varðar áfrýj-
unarbeiðni Kristins Sigurjónssonar, fyrrverandi lektors við HR.
Kristinn
Sigurjónsson
Jón Steinar
Gunnlaugsson